Fréttablaðið - 15.11.2012, Page 6
15. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR6
STJÓRNSÝSLA Frásagnir af óráð-
síu í framkvæmdastjóratíð séra
Sigurðar Helga Guðmundssonar
hjá hjúkrunarheimilinu Eir kalla
enn frekar á rannsókn á málefn-
um heimilisins, að mati lögmanns
íbúa.
„Þessar ásakanir sýna enn frek-
ar en áður hversu mikilvægt er að
ráðist verði í rannsókn á starfsemi
Eirar síðustu ára og fjárhagsmál-
um heimilisins. Það er ljóst að það
þarf ekki bara að skoða byggingar-
framkvæmdir heldur reksturinn í
heild sinni,“ segir lögmaðurinn
Stefán Árni Auðólfsson, sem hefur
farið fram á að öll stjórn heimilis-
ins íhugi stöðu sína rækilega eftir
að alvarleg fjárhagsvandræði þess
komu í ljós.
Ýmislegt bendir til að fjárhags-
erfiðleika og óráðsíu innan Eirar
megi rekja mörg ár aftur í tímann
í framkvæmdastjóratíð séra Sig-
urðar Helga Guðmundssonar sem
lét af starfi á síðasta ári.
DV hefur fjallað um málefni
séra Sigurðar undanfarna daga.
Þar hefur hann verið sakaður um
frændhygli og sjálftöku og einn-
ig hefur þar komið fram að hann
hafi látið hjúkrunarheimilið greiða
fyrir 200 þúsunda króna ferð dótt-
ur sinnar og fjölskyldu hennar til
Alicante á Spáni.
Sigurður hefur útskýrt þetta
á þann veg að kaupin á ferðinni
hafi verið þóknun fyrir lögmanns-
þjónustu sem tengdasonur hans,
Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hefði
veitt Eir en aldrei fengið greitt
fyrir.
Framkvæmdastjóri Eirar fór
fram á það við Ríkisendurskoðun
fyrir nokkrum vikum að hún tæki
þessa tilteknu greiðslu til sérstakr-
ar athugunar.
Fram hefur komið í fréttum að
Ríkisendurskoðun hafnaði að taka
húsrekstrarsjóð Eirar til athug-
unar, enda félli hann ekki undir
verksvið stofnunarinnar. Greiðsl-
an til Jóhannesar var hins vegar
innt af hendi af rekstrarsjóðnum,
sem Ríkisendurskoðun getur tekið
til athugunar, að sögn Sveins Ara-
sonar ríkisendurskoðanda.
Ríkisendurskoðun svaraði
beiðni Sigurðar Rúnars Sigurjóns-
sonar, framkvæmdastjóra Eirar í
gær, en Fréttablaðið hefur ekki
upplýsingar um hver niðurstaðan
varð. Sigurður Rúnar hafði ekki
fengið svarið í hendur í gær.
Um framkvæmdastjóratíð séra
Sigurðar Helga hafði Sigurður
Rúnar þetta að segja: „Þetta er
fortíðin, ég hef aldrei hitt mann-
inn, séð hann eða talað við hann.
Þetta er bara eitthvað sem ætti að
skoða af hálfu rannsóknaraðila en
að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um
þetta.“
Fulltrúaráð stofnaðila Eirar
kemur saman til upplýsingafund-
ar með stjórnarmönnum á föstu-
dag. Gert er ráð fyrir að í kjölfarið
verði boðað til formlegs fulltrúa-
ráðsfundar með tveggja vikna fyr-
irvara. stigur@frettabladid.is
1. Hvaða bók Arnaldar Indriðason-
ar ætla erlendir kvikmyndafram-
leiðendur að kvikmynda?
2. Hversu margar kindur eru
taldar hafa drepist í veðurofsanum
nyrðra í haust?
3. Hver er fyrirliði kvennalandsliðs
Íslands í handknattleik?
SVÖR:
FÆREYJAR Jafnaðarflokkurinn fékk
sjö menn kjörna í bæjarstjórnar-
kosningum í Þórshöfn í Færeyj-
um í fyrradag og þar með hreinan
meirihluta.
Þjóðveldi fékk þrjá menn
kjörna, Fólkaflokkurinn tvo og
Sambandið einn.
Sveitarstjórnarkosningar fóru
fram um allar Færeyjar og meðal
annarra úrslita má nefna að í
Klaksvík, næstfjölmennasta bæ
eyjanna, mynduðu Sjálfstýris-
flokkurinn, Þjóðveldi og Jafnaðar-
flokkurinn meirihluta.
Heildarkjörsókn var 82,8%,
sem er nokkru meira en í síðustu
kosningum þegar rúm 78 prósent
greiddu atkvæði. - þj
Kosningar í Þórshöfn:
Jafnaðarmenn
hrósuðu sigri
FRÁ ÞÓRSHÖFN Kosið var til sveitar-
stjórna í Færeyjum í fyrradag. Jafnaðar-
menn hlutu hreinan meirihluta í höfuð-
staðnum Þórshöfn.
Lykilatriði í fjármögnun
atvinnutækja
Lykill býður fyrirtækjum örugga fjármögnun atvinnutækja
Það er lykilatriði að tala við réttan aðila þegar kemur að fjármögnun atvinnutækja. Starfsfólk okkar
býr yfir yfirgripsmikilli reynslu og veitir skjóta og góða þjónustu ásamt ítarlegum upplýsingum um
bestu valkosti í fjármögnun hverju sinni.
Lykill – opnar á möguleika.
Lykill er hluti af MP banka Ármúli 13a Sími 540 1700 Lykill.is
B
ran
den
bu
rg
B
ran
de
B
ran
de
B
ran
dd
n
bu
rg
n
bu
rg
n
bu
rg
ÚGANDA Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra segir að Ísland
muni gera allt sem í sínu valdi
stendur til að berjast gegn frum-
varpi sem gerir samkynhneigð að
dauðasök í Úganda.
Rebecca Kadaga, forseti
úgandska þingsins sagði á fjöl-
mennum fundi í höfuðborginni
Kampala, að frumvarpið verði sam-
þykkt fyrir árslok. Hún segist þess
fullviss að flestir Úgandabúar séu
samþykkir því. Hundruð stuðnings-
manna frumvarpsins komu saman
á fundinum, meðal annars kristnir
trúboðar sem báðu Kadaga um að
færa Úgandabúum lögin í jólagjöf.
Frumvarpið kom fyrst fram árið
2009 en því hefur verið frestað
vegna alþjóðlegs þrýstings, en það
hefur verið fordæmt víða um heim.
Meðal þeirra sem hafa fordæmt
ofsóknir gegn samkynhneigðum og
þetta frumvarp eru íslensk stjórn-
völd, en yfir milljarður króna hefur
farið í þróunaraðstoð til Úganda
undanfarin ár. Þróunarsamvinnu-
stofnun Íslands er einnig með
starfsstöð í Úganda og starfrækir
sendiráð í Kampala.
„Ísland mun gera allt sem í sínu
valdi stendur til að berjast gegn
frumvarpinu. Á sínum tíma mót-
mæltum við þessu harðlega og
vorum í hópi erlendra ríkja sem fór
á fund forseta Úganda til að koma á
framfæri hörðum mótmælum. Hann
tók því vel og sagði þá að slík lög
yrðu ekki staðfest,“ segir Össur.
Í millitíðinni hafa farið fram
kosningar. „Það er áhyggjuefni og
sorglegt að frumvarp sem er meng-
að af svona fordómum komi fram.
Við munum bregðast illa við þessu
og sömuleiðis þær þjóðir sem við
höfum ráðfærst við, ekki síst Norð-
urlanda- og Vestur-Evrópuþjóðir.“
- þeb
Utanríkisráðherra harðorður vegna fyrirætlana úgandska þingsins um lög gegn samkynhneigðum:
Munum rísa gegn dauðadómi samkynhneigðra
1. Napóleónsskjölin, 2. um 10.000, 3.
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir.
Rannsaka skal séra Sigurð
Séra Sigurður Helgi Guðmundsson hafnar braski sem framkvæmdastjóri Eirar. Farið fram á það við Ríkis-
endurskoðun að hún taki greiðslu til tengdasonar Sigurðar til skoðunar. Ríkisendurskoðun svaraði í gær.
SAKAÐUR UM ÝMISLEGT Séra
Sigurður hefur verið sakaður
um frændhygli með því að ráða
skyldmenni sín til starfa hjá Eir
og sjálftöku með því að láta Eir
skipta við hans eigið fyrirtæki.
Hann hafnar þessu öllu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Séra Sigurður Helgi, sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri Eirar vorið
2011, sendi frá sér yfirlýsingu í gær í tilefni af umfjöllun um störf hans.
„Ég hafna því alfarið að störf mín þar hafi orkað tvímælis,“ segir í yfir-
lýsingunni. „Því fagna ég því ef gerð verður úttekt á rekstri hjúkrunarheimil-
isins. Hún mun væntanlega leiða í ljós hvort eitthvað hafi verið athugavert
við störf mín sem framkvæmdastjóri eða við störf stjórnar heimilisins á
þessum tíma.“
Hann kveðst ekki telja rétt að tjá sig frekar um málið að sinni.
Hafnar braski og fagnar úttekt
JÓHANNES RÚNAR
JÓHANNSSON
SVEINN
ARASON
Í ÚGANDA Ef frumvarpið verður að
lögum verður samkynhneigð dauðasök í
Úganda. MYND/ÚR SAFNI
Vara við stórstreymi
Landhelgisgæslan vekur athygli á
að samfara slæmri veðurspá verður
óvenju mikil sjávarhæð næstu daga.
Eru umráðamenn skipa, báta og hafna
beðnir um að hafa varann á. Á þetta
sérstaklega við um hafnir suðvestan-
lands.
ÖRYGGISMÁL
Féll af reiðhjóli og rotaðist
Ung stúlka féll af hjóli í Keflavík í
byrjun vikunnar og rotaðist. Hálka var
á götum bæjarins þegar óhappið varð.
Stúlkan var ekki með hjálm. Hún var
flutt með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja og þaðan á Landspítalann.
LÖGREGLUMÁL
VEISTU SVARIÐ?
Þetta er fortíðin, ég
hef aldrei hitt mann-
inn, séð hann eða talað við
hann.
SIGURÐUR RÚNAR SIGURJÓNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI EIRAR