Fréttablaðið - 15.11.2012, Page 44
KYNNING − AUGLÝSINGKrakkar FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 20124
Mér hefur alltaf fundist óskaplega gaman að smíða,“ segir Jóhanna sem var áður svínabóndi í Haga þar
sem hún fæddist, ólst upp og bjó sín fyrstu
þrjátíu hjúskaparár. Síðastliðinn áratug
hefur hún búið á Selfossi þar sem leikfanga-
smíðin kallar enn á hana úti í vinnuskúr.
„Í barnaskóla linnti ég ekki látum fyrr en
mér var leyft að sækja smíðatíma með strák-
unum. Á sama tíma hafði ég mikið yndi
af handavinnu og var iðin við sauma og
prjónaskap,“ segir Jóhanna innan um hand-
smíðuð leikföng sem bera handverki hennar
fagurt vitni.
„Fyrstu handsmíðuðu leikföngin voru hús
og bílar fyrir strákinn minn. Síðar bættust
við húsdýrin sem eru alfarið mín hönnun og
seinna dúkkuvagn, vagga og fleira skemmti-
legt,“ segir Jóhanna sem á í fórum sínum
dásamleg leikföng sem minna á gamla og
saklausari tíma.
„Dag einn fékk ég stráknum mínum tré-
kubb í hendur og hvatti hann til að skapa
eitthvað úr honum. Úr varð traktor sem
hann hannaði einn og óstuddur og er ótrú-
leg smíð,“ segir Jóhanna og handfjatlar
stæðilegan traktor með kerru í eftirdragi.
Leikföng Jóhönnu eru vistvæn og á ómál-
uð húsdýrin og bíla ber hún eingöngu dökk-
græna ólífuolíu svo börn geti að skaðlausu
nagað leikföngin. „Nú er ég að athuga hvort
ég geti líka notað repjuolíu frá Þorvaldseyri
sem er einnig kaldpressuð og vistvæn og
þránar aldrei.“
Á þremur áratugum hefur heimilis iðnaður
Jóhönnu undið jafnt og þétt upp á sig.
„Orðsporið breiddist smám saman út og
fólk tók eftir því hvað börnin undu sér vel
með tréleikföngin. Ég man hvað það gladdi
mig þegar kaupstaðarkrakki kom í Haga og
tók tréhúsdýrin fram yfir hrúgu af plast-
dýrum sem börnin mín áttu,“ segir Jóhanna
og brosir.
„Ég legg ofurkapp á mjúkar línur því
börnum þykir notalegt að meðhöndla mjúk-
an efnivið og það er staðreynd að þau verða
rólegri ef þau eiga ekki á hættu að lenda á
hvössum hornum. Tréleikföng eru líka níð-
sterk og endast barn frá barni,“ segir Jó-
hanna.
Hinn 8. desember tekur Jóhanna
þátt í jólamarkaði í Perlunni en
annars má nálgast leikföng hennar
á Facebook undir Jóhanna Haralds –
Tré Leikföng eða heima í Grashaga 1a
á Selfossi. Síminn er 694-5282. Hand-
verk Jóhönnu fæst einnig í Varmahlíð, á
Sveitamarkaðnum á Hvolsvelli, í Gesta-
stofu Þorvaldseyrar, í Þingborg austan við
Selfoss og Atmo við Laugaveg.
Ég man hvað það gladdi
mig þegar
kaup staðar krakki kom í Haga og
tók tréhúsdýrin fram yfir hrúgu af
plastdýrum sem börnin mín áttu.
Elskar að smíða barnagull
Fyrir 28 árum smíðaði hagleikskonan Jóhanna Haraldsdóttir frá Haga í Þjórsárdal falleg tréleikföng handa börnum sínum. Með
tímanum varð úr heimilisiðnaður þar sem Jóhanna nostrar við handgerð og traust barnagull sem alltaf standast tímans tönn.
Jóhanna lætur ekki einungis duga að smíða leikföngin sjálf heldur málar þau með fögru rósamunstri og saumar í sængurföt. Á Facebook-síðu Jóhönnu má einnig sjá for-
kunnarfögur pennasett sem hún rennir og gullfalleg sköft á ýmis eldhúsáhöld. MYND/SIGURÐUR SIGMUNDSSON
MARGVERÐLAUNUÐ
BARNAGLERAUGU FRÁ
SILMO
Award
France
iF Award
Germany
Red Dot
Award
Germany
Good
Design
Award
USA
Good
Design
Award
Japan
3 ára ábyrgð