Fréttablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 74
15. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR
lifsstill@frettabladid.is
MÍNÚTUM styttri verður ævi þín ef þú eyðir klukkutíma í að horfa á
sjónvarpið. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var í Háskólanum í
Queensland. Auk þess eykur of mikið sjónvarpsgláp líkurnar á Alzheimer.
22
? Ég er sautján ára gutti og á við smá vandamál að stríða
(að mér finnst). Eins og flestir á
þessum aldri er ég byrjaður að
sofa hjá en vandamálið er að ég
fæ það svo alltof, alltof fljótt! Það
er bara í svona þrjár mínútur og
mér finnst það bara allt of stutt!
Ég var þess vegna að velta því
fyrir mér hvort þú gætir gefið
mér einhver góð ráð?
SVAR: Mér þykir það óendanlega
áhugavert hversu mikið karl-
menn eiga það til að spá í end-
ingu. Ég fæ þessa spurningu
gjarnan frá jafnöldrum þínum
svo ekki hafa miklar áhyggjur,
þú ert ekki aleinn í heiminum,
það eru margir að pæla í þessu.
Ætli það megi ekki skrifast á
kynfræðsluna (eins og svo margt
annað) enda ómögulegt að sjá út
frá bíómyndum hversu lengi sam-
farir standa og fáir sem tala af
hreinskilni um endingu. Bara
eitt áður en við höldum lengra; í
kynlífi þýðir lengri ending ekki
endilega betri gæði. Annað sem
gleymist stundum er hvar kynlíf-
ið byrjar og hvar það endar. Kyn-
líf er meira en bara inn-út og þá
má alveg vera heillengi í sleik og
að putta, runka, sleikja og sjúga.
Oftar en ekki er mikil áhersla
lögð á þetta inn-út og það látið
skilgreina gæði kynlífisins þegar
það er minnsti hlutinn af því. For-
leikur er kjörinn tími til að fá
sína fyrstu fullnægingu. Svo má
hvíla sig aðeins og byrja aftur
eða jafnvel láta keleríið nægja,
það getur verið jafn fullnægjandi
fyrir báða aðila. Fæstar konur fá
fullnægingu í beinum samförum
án beinnar örvunar sníps svo ef
þú ert að stunda kynlíf með konu
þá er gott að gefa henni nægt
kelerí fyrir samfarir og í sam-
förum.
Spurningin um að endast leng-
ur er spurning um æfingu og að
fara sér hægt. Ef þú finnur að
þú ert að fara að fá fullnægingu,
hægðu þá á þér, jafnvel taktu
hann út og farðu að kela við ból-
félagann. Endingin byggist svo
smám saman upp en það er gott
að hafa í huga að samfarir end-
ast sjaldnast lengur en 10 mín-
útur, hafðu það endilega á bak við
eyrað á meðan. Passaðu að sinna
bólfélaganum í forleiknum og á
meðan samförum stendur og ekki
gleyma að tala saman. Finnið út
hvað hentar ykkur og ef báðir
aðilar óska eftir lengri endingu
í samförum þá getið þið þjálfað
það í sameiningu.
Kelerí er hluti af kynlífi
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
KELERÍ HLUTI AF KYNLÍFI Kelerí getur verið jafn fullnægjandi fyrir báða aðila og
beinar samfarir. NORDICPHOTOS/GETTY
HEILSA 1. Hugsaðu um mataræðið:
Of mikið koffín og sykur getur leitt
til meiri þreytu. Borðaðu reglulega
ávexti, grænmeti og prótín til að
halda þér hressum út daginn.
2. Nægur svefn: Slepptu áfengi og
koffíni í lok dags til að koma í veg
fyrir andvökunætur. Ekki horfa
sjónvarp uppi í rúmi og búðu til
ákveðna ró í svefnherberginu.
3. Líkamsrækt: Regluleg líkams-
rækt skiptir miklu máli og gerir
mann ekki of þreyttan. Þvert á
móti auka reglulegar æfingar bæði
úthald og orku yfir daginn. Mælt
er með um 40 mínútna hreyfingu
fjórum sinnum í viku.
Komdu í veg fyrir síþreytu
TÍSKA Tvíhneppt, dökkblátt og vítt.
Tískan í yfirhöfnum er herraleg og
þægileg í vetur. Yfirhafnir eru háðar
tískustraumum líkt og margt annað. Í
vetur verða hlýjar úlpur og víðar kápur
áberandi. Litaflóran er mikil og skemmti-
leg; dökkblár, vínrauður, brúnn og ljós-
ari pastellitir.
Hlýtt og
herralegt
TVÍHNEPPT Tvíhnepptir jakkar líkt og
þessi frá Salvatore Ferragamo verða vinsælir
í vetur. NORDICPHOTOS/GETTY
HLÝLEGT Hlý
og þægileg úlpa
frá Burberry
Prorsum.
Dökkblái liturinn
verður áberandi
í vetur.
KLASSÍSKT Blazer-
jakkinn í ólíkum
stærðum og gerðum
verður áfram vin-
sæll. Isabel Marant
hannaði þennan.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða!
Miðasala í
fullum gangi!
Sýnt í Borgarleikhúsinu
í október, nóvember og desember.
Sýningar í Hofi á Akureyri í nóvember.