Fréttablaðið - 28.12.2012, Síða 30

Fréttablaðið - 28.12.2012, Síða 30
4 • LÍFIÐ 28. DESEMBER 2012 ÞÓRUNN ERNA CLAUSEN LEIKKONA „Markmið mín fyrir árið 2013 eru að huga betur að sjálfri mér og litlu fjölskyldunni minni, bæði líkamlega og andlega. Mig langar virkilega að koma mér í gott form og styrkja mig aftur. Vinnulega séð er ég með alls konar skemmtileg markmið. Þó að ég hafi lengi starfað samhliða leiklist- inni sem söngkona og textahöfundur þá hef ég aldrei gefið út lag sem ég syng sjálf. Ég ætla að gera það í janúar og gefa út síðasta lagið sem maðurinn minn, Sigurjón Brink, samdi áður en hann lést 17. janúar 2011.“ DÓRA TAKEFUSA ATHAFNAKONA „Ég set mér yfirleitt aldrei nokkur mark- mið. Mér finnst að maður eigi bara að vera samkvæmur sjálfum sér. Ef mig langar til dæmis að borða hollara, þá borða ég bara hollara.“ NÝTT ÁR, NÝ MARKMIÐ Margir hafa það að venju að setja sér markmið þegar nýtt ár gengur í garð. Lífið heyrði í fjórum flottum konum og spurði að því hvort þær hefðu sett sér markmið fyrir árið 2013. SARA BJÖRK GUNNARS- DÓTTIR KNATTSPYRNU- KONA „Markmiðin mín fyrir árið 2013 eru aðallega að komast sem lengst í meistaradeildinni með liðinu mínu, vera vel undirbúin fyrir EM með kvennalandsliðinu og vinna gullið í Svíþjóð. Svo hef ég líka sett mér nokkur pers- ónuleg markmið sem ég ætla bara að halda fyrir mig.“ GRETA SALÓME STEFÁNSDÓTTIR SÖNGKONA „Markmiðin mín á árinu eru að einbeita mér meira að hljóð- færinu mínu og eiga góðan tíma með því. Það er búið að vera mikið um verkefni hjá mér árið 2012 og ég hef ekki alveg getað sinnt fiðlunni nógu vel. Ég ætla þó líka að einbeita mér að hinu hljóðfærinu mínu sem er söngurinn og halda áfram að vinna í honum. Í crossfitinu ætla ég svo að ná 65 í snöru.“ Ætlar þú að breyta um lífsstíl? Heilsulausnir henta ein sem glíma við offitu, h og/eða sykursýki. Hefst 21. janúar. Kynningarfundur fimmtud. 10. janúar kl. Allir velkomnir • Mán., mið. og fös. kl. 6:20, 10 14:00 eða 19:30 • Verð kr. 16.900 pr. mán í 12 m • Fræðsla, einstaklingsviðtöl, að og stuðningur. • Skráning í síma 560 1010 eð mottaka@heilsuborg.is Að námskeiðinu standa m.a. hjúkrunarfræðingur, íþróttafræðingar, læknir, næringarfræðingur, sálfræðingar og sjúkraþjálfari. „Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó nokkurn tíma og var búin að vera að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég hef náð góðum árangri, náð að losna við mörg kíló og er bara svo miklu hressari og með miklu meiri orku. Maður verður að vilja gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það að megra sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma sér í gott líkamlegt og andlegt form.“ Helga Einarsdóttir staklingum jartasjúkdóma 17:30 :00, án. hald a á Það eru eflaust margir sem ætla að tileinka sér betri og bættari siði á nýja árinu þegar kemur að matar- ræði og hreyfingu. Þess ber þó að gæta að setja hæfileg markmið og fara ekki of geyst af stað. Hér má sjá nokkur einföld en góð ráð. 1. Byrjaðu daginn á heitu sítrónuvatni, það hjálpar líkamanum að losna við eiturefni og örva meltingar- veginn. 2. Drekktu meira vatn yfir daginn. Vertu með vatnsbrúsa við hönd- ina alla daginn. Þú finnur strax mun á húðinni, meltingunni og orkunni. 3. Finndu þér líkamsrækt sem þér þykir skemmtileg, annars endistu ekki út árið. Og mundu að þú þarft ekki að gera það sama og allir hinir. 4. Eldaðu eina nýja uppskrift í viku úr heilsusamlegri uppskriftabók. Áður en þú veist af verður þú farinn að tileinka þér betri og hollari elda- mennsku alla daga. 5. Verðlaunaðu þig með smá dekri eða öðru sem gleður þig ef þú stendur þig vel. Verðlaun eru nauðsynleg til að halda áfram. LITLAR EN GÓÐAR BREYTINGAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.