Fjarðarpósturinn - 10.11.1983, Qupperneq 2
2
FJ ARÐARPOSTURINN
??? BÆJARBÚAR SPYRJA ???
Hvað líður
í Bláfjöll?
Skíflaáhugamaður spyr:
Hvað líður lagningu Bláfjalla-
vegar og hvenær má búast við að
Hafnfirðingar geti farið um hann
til skíðasvæðanna í Bláfjöllum?
Þorgeir Ibsen fulltrúi Hafnarfjarð-
ar í Bláfjallanefnd og Stefán Krist-
jánsson, framkv.stj. nefndarinnar:
Syðri hluti vegarins, þ.e. frá
Hafnarfirði stendur þannig nú að
búið er að ryðja upp vegarstæðið
nema um það bil 4'/2 km. Búiðerað
gera hluta hans akfæran en gengið
er út frá því að næsta sumar verði
vegurinn allur akfær til Bláfjalla.
Niðurskurður til framkvæmda
hefur einnig bitnað á þessu verki en
við vonum að þessar áætlanir
standist.
veginum
Hvað verður um „Garðarslund"?
Náttúruunnandi, sem óttast að
gróðurlundur séra Garðars heitins
Þorsteinssonar í Hvammahverfinu
sé í mikilli hættu vegna bygginga-
framkvæmda í nágrenni hans, spyr
hvort ekki sé áformað að vernda
hann frá eyðileggingu.
Einar I. Halldórsson, bæjarstjóri:
Skv. gildandi skipulagi er gert
ráð fyrir því, að ekki verði hróflað
mikið við stærstum hluta lundar-
ins.
Fyrirhugað er að snyrta hann og
bæta þegar framkvæmdum um-
hverfis hann lýkur. Gerðar hafa
verið ákveðnar ráðstafanir til þess
að vernda lundinn í framtíðinni.
— PÓSTHÓLF 57 —
Varðveitum „Siggubæ"
— bætum umgengni í Hellisgerði
Kæri Fjarðarpóstur!
Um leið og ég þakka fyrir ágætt
blað, þá langar mig til þess að gera
nokkrar athugasenrdir við þann lið
í „Bæjarbúar spyrja“ sem fjallar
um Siggubæ. Þar skýrir Einar I.
Halldórsson, bæjarstjóri, frá þvi
að gert sé ráð fyrir að bærinn
hverfi, hann þrengi að umferðinni
um götuna og því verði hann ekki
til frambúðar á þessum stað.
Ég bý í næsta nágrenni við Siggu-
bæ og mér finnst umferð um Hellis-
götuna alveg nógu hröð fyrir og er
sannfærð um að hún verður enn
meiri og margfalt hættulegri ef
gatan breikkar frá því sem nú er. Ég
trúi því ekki að menn vilja bjóða
þeirri hættu heim með því að rífa
bæinn.
Mér finnst því mun skynsam-
legra að bærinn verði látinn standa
þarna sem minning um þá tíma sem
liðnir eru. Honum þarf að halda
við en það hefur ekki verið gert.
Bærinn gæti jafnframt þjónað sem
hluti minjasafns. Hægt væri að
koma fyrir áhöldum og húsbúnaði
frá þeim tíma sem bærinn var
byggður, þ.e. frá fyrsta tug aldar-
innar.
Ég vona að fleiri bæjarbúar séu á
þeirri skoðun að mikill sjónarsvipt-
ir væri ef bærinn yrði rifinn. Það
kemur mér einnig á óvart að bæjar-
yfirvöld virðast ekki hafa eignar-
heimild til hússins og ekki hefur
enn verið tekin afstaða til erfða-
skrár frú Sigríðar Erlendsdóttur.
Eitt mál enn vil ég minnast á.
Umgengni í Helligerði mætti vera
betri en hún er. Oft er börnum og
unglingum kennt um og satt er það
að þau þurfa að læra að umgangast
gróðurinn. En í sumar sá ég tvisvar
sinnum fullorðið fólk fara út úr
Hellisgerði með fangið fullt af
blómum sem það hafði slitið upp í
garðinum. Mér finnst þetta fyrir
neðan allar hellur og ég vona að ég
eigi ekki eftir að sjá slíkt aftur. Ég
tók mynd af tveimur frúnr við þetta
athæfi og ég sá að þær urðu nú ekki
hrifnar af því. Ekki ætla ég að birta
þessar myndir en mér finnst það
lágkúrulegt ef Hellisgerði fær ekki
að vera í friði, slíkt augnyndi sem
það er.
GAFLARI.
Jón Sveinsson:
Til umhugsunar
Þótt þessi fyrirsögn hafi verið valin,
liefði sennilega hetnr att við að hún
hefði verið: „Til umhugsunar og að-
gerða'*.
Já þess gerist nú brjn þörf, að fólk
vakni til umhugsunar og aðgerða ein-
mitt núna, og licfi ég tvennl í huga þegar
ég segi þetta.
I. l’að er kunnara en frá þurfti að
segja, að núna þessa dagan öðrum
fremur, gengur alda meðal barna og
unglinga í Hafnarfirði, með allskyns
snefilefni, öðru nafni „sniff".
Þetta þori ég og vil fullyrða, þar sem
ég rek verslunina Lækjarkot og nærri
hvern einasta dag konia börn og ungl-
ingar i búðina til mín, til þess að kaupa
allar mögulegar tegundir af þynnum og
lími, þau jafnvel hnupla þessum vörum.
II. Þá má nefna krass og krot á eigur
fólks og liins opinhera, ásaml
skemmdarfýsn.
Hafi einhver sem þessar línur lielur
lesið fram að þessu, vcrið í vafa um, að
hér er um rélla fyllyrðingu að ræða, þá
vil ég biðja hinn sama um að hugsa sig
tvisvar um. Þetta eru ineinsemdir sem
við ágætir Hafnafirðingar þurfum að
sameinast um að uppræta. Það verður
ekki gert með þvi að ráðast á afleiðing-
una, en svo vil ég nefna börnin og ungl-
ingana sem eru þjáð af hiniini tveim
fyrrgreindu meinum.
Nei við þurfum að ráðast af alefli
gegn orsökinni. Klestir munu því sam-
mála að betri árangur fæst með þvi. Nú
kann einlner að spyrja hver sé orsökin?
Ef til vill sýnist sitt hverjum, en sjálfur
er ég þess fullviss að liiin liggur að miklu
leyti hjá okkur sein eigum að teljast full-
orðin og uppalendur barna.
Hver er svo leiðin út úr þessum
ógöngum? Því er einnig fljótsvarað,
hún er að við sameinumst um að ráða
bót á þessu. Hvernig? Jú livað varðar
fyrra atriðið, þá feti fleiri í fótspor
okkar í Lækjarkoti og hætti að selja
börnum og iinglingum þau efni, sem
þau nota til þess að „sniffa" af. Varð-
andi siðara atriðið, þá stöndum við
vörð um eigur fólks, ekki bara okkar
lieldur lika annarra, þannig að sjái ein-
liver þörf til að áminna um betri
umgengni, þá verða þeir fullorðnu sem
nærri eru að styðja þann sem vill vanda
um, en ekki vera afskiptalausir eða
jafnvel hneykslast i orði eða æði á
afskiptaseminni. Þið sem hafið lagt á
ykkur að lesa þetta pár, viljið þið ekki
með mestu vinsemd a.m.k. hugsa um
þetta.
Hvað sem öðru líður þá þýðir ekki
lengur fyrir okkur liina almennu borg-
ara að sitja þegjandi aðgerðarlausir og
liugsa sem svo: Þetta er ekki mitt vanda-
mál, mér keinur þetla ekkert við, aðrir
eiga að leysa þetta. Aðrir hverjir, vill ég
spyrja? Málið er ekki svona einfalt. Nú
duga engin vettlingatök lengur lieldur
verðum við almennir borgarar, upp-
alendur og aðrir að standa saman með
opinberum aðilum svo sem lögreglu,
kennurum og fleirum, sem liafa fram að
þessu látið sig þessi mál varða.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð min
fleiri að sinni, en vil hvetja alla til um-
hugsunar og aðgerða þó ekki væri nema
gegn þessum tveim vandamáliim. Sem
lokaorð vil ég biðja foreldra að senda
ekki börn sín í búdina til niín til að
kaupa þessi framanlöldu „sniffefni",
nema þá að gera okkur í Lækjarkoti
viðvart áður.
Með vinsemd og virðingu
Jón Svcinsson
Norðurvangi 11.
Hafnarfirði.