Fjarðarpósturinn - 10.11.1983, Qupperneq 6
6
FJARÐARPÓSTURINN
starfsfólk st. Jósefsspftala:
Spítalann þarf að reka áf ram á sama grundveiii
Nú þegar Ijóst er aó St. Jósefs-
spítali verður seldur bíða Hafnfirð-
ingar spcnntir eftir því að fá fréttir
af framvindu mála. Verður spíal-
inn rekinn áfram með svipuðu
fyrirkomulagi, eða munu væntan-
legir kaupendur frekar kjósa að
sérhæfa Itann á einhverju sviði? Og
hvað segir starfsfólk spítalans um
þessi mál og hvert er álit þeirra á
framtíð spítalans?
Við spurðum Sigurgeir Guð-
mundsson, forstjóra, Gunnhildi
Sigurðardóttur, hjúkrunarfor-
stjóra og Jósef Ólafsson yfirlækni
lyflækningadeildar nokkurra
spurninga varðandi söluna á St.
Jósefsspítala.
Við spyrjum Sigurgeir fyrst um
stöðu mála í dag og hvort viðræður
um sölu séu komnar eitthvað á veg.
Það er yfirlýst að eigendur ætla
sér að selja og að viðræður standa
yfir við ríkisvaldið. Þær viðræður
eru ekki konrnar það langt að hægt
sé að spá nokkru um niðurstöðu,
enda held ég að óhætt sé að fullyrða
að menn flýti sér hægt í þessu máli.
Hver hafa verið viðbrögð bœjar-
yfirvalda?
Eins og komið hefur fram hafa
bæjaryfirvöld komið á framfæri
þeirri skoðun sinni að það sé mikið
hagsmunamál fyrir Hafnfirðinga
að starfsemi spítalans haldi áfram
með svipuðu sniði og sinni fyrst og
fremst þörfum Hafnfirðinga. Þá
hafa bæjaryfirvöld farið fram á að
fá að fylgjast með viðræðum eig-
enda spítalans og heilbrigðisráðu-
neytisins. Ég er óneitanlega glaður
yfir þessari einrómu afstöðu bæjar-
stjórnar og vona að hún fylgi henni
eftir þegar hlutur bæjarins kemur
til umræðu í sambandi við söluna.
Jósef: Ég er þeirrar skoðunar, og
tek þar með undir orð Guðmundar
Guðmundssonar formanns spítaia-
stjórnar á fundi fyrir skömmu, að
einmitt nú þurfi bæjarstjórinn að
láta reyna á það með formlegri
umsókn til ríkisins að fá að kaupa
spítalann með ríkinu. í lögum um
heilbrigðisþjónustu er kveðið á um
15% eign sveitarfélaga og 85% rík-
isins á heilbrigðisstofnunum. í
anda þeirra laga verður bæjar-
stjórnin að móta stefnu sína, ef hún
ætlar ekki að láta íhlutunarrétt sinn
um framtíð spítalans ganga sér úr
greipum. Með þvi eina móti tryggir
hún áfram áhrif heimamanna á
Eiríkur Jóhannesson hefur starfað
við spítalann í áratugi.
reksturinn með sömu markmiðum
og verið hafa, sem er ómissandi
þáttur í heilbrigðiskerfi svæðisins.
Er það samdóma álit starfsfólks
að spítalann eigi að reka áfram á
svipaðan hátt og hingað til?
Já, það er óhætt að segja það.
Við höfum kappkostað í okkar
starfi að uppfylla þær kröfur sem
samkvæmt lögum eiga að gilda um
deildaskipt sjúkrahús. Við teljum
okkur nú þegar hafa náð því marki
og bíðum eftir viðurkenningu þar
að lútandi. Reyndar höfum við
fengið óbeina viðurkenningu frá
Háskólanum sem farinn er að
senda til okkar læknanema í þjálf-
un. í lögum er kveðið á um deilda-
skipt sjúkrahús í hverju héraði og
ef rekstri St. Jósefsspítala verður
breytt er hætt við að ganga verði
framhjá þessum lögum, auk þess
sem uppbyggingarstarf okkar er
unnið fyrir gýg.
Hér látum við þessu spjalli lokið.
Við þökkum þeim Sigurgeiri,
Gunnhildi og Jósef fyrir góðar
móttökur og vonum að óskir þeirra
um framtíð St. Jóscfsspitala verði
að veruleika.
REYKJAVÍKURVEG 66 222 HAFNARFJ.
Glæsilegir videoskápar.
Gott verö!!!!
Fataskáparnir frá Axel Eyjólfssyni eiga
alls staðar við.
Allar stærðir og gerðir fyrirliggjandi.
Kynnið ykkur úrvalið.