Fjarðarpósturinn - 10.11.1983, Side 14
14
FJARÐARPÓSTURINN
— FYRIRTÆKI í FIRDINUM —
Bókbær
— ný bókaverslun í bænum
22. júlí sl. opnaði ný bókaversl-
un, BÓKBÆR, að Reykjavíkurvegi
60. Hlutafélagið Bókbær hf. rekur
verslunina, en aðaleigendur þess
eru Guðjón L. Sigurðsson, Eggcrt
Ólafsson, og eiginkonur þeirra.
í stuttu spjalli við Fjarðarpóst-
inn kvað einn eigendanna, Guðjón
L. Sigurðsson, Bókbæ versla með
bækur og ritföng í eins fjölbreyttu
úrvali og húsnæðið leyfir. „Við
höfum ekki möguleika á að sér-
hæfa okkur á einhverju sviði og
getum ekki legið með stóran lager
vegna takmarkaðs húspláss“, sagði
Guðjón. „Hins vegar bjóðum við
upp á góða pöntunarþjónustu og
getum utvegað viðskiptavinum
okkar flest það lesefni sem þeir
óska eftir, á tiltölulega stuttum
tíma.“
En hvernig hafa viðskiptin geng-
ið og hverjareru framtiðarhorfurn-
ar?
„Fyrstu vikurnar voru skiljan-
lega mjög rólegar, en í september
gengu viðskiptin skínandi vel.
Síðustu vikurnar hefur hins vegar
aftur dregið úr þeim, enda ekki við
örðu að búast, — flestir hafa sjálf-
sagt látið kaup á ódýra kjötinu
ganga fyrir bókakaupum. Ég er
samt mjög bjartsýnn á framtíðina.
Næstu mánuðir eru vertíð bóksal-
anna og ég reikna fastlega með að
við njótum góðs af því. Bókbær er
eina bókaverslunin í þessum bæjar-
hluta og ég vona að almenningur og
fyrirtæki hér í nágrenninu notfæri
sér okkar þjónustu. Þá tel ég okkur
vera vel í sveit sett í hópi ágætra
verslana hér við Reykjavíkurveg-
inn, held reyndar að bókabúð hafi
einmitt vantað hér áður og komi til
með að auka á fjölbreytni verslan-
anna.“
Vió þökkum nú Guðjóni fyrir
spjallið, og hvetjum Hafnfirðinga
til að reyna viðskiptin við Bókbæ.
HNOSS — ný gjafavöruverslun
4. nóvember sl. opnaði ný verslun að Dalshrauni 13. Þetta er gjafavöru-
verslun, sem hlotið hefur nafnið HNOSS.
Eigendur verslunarinnar eru þeir sömu og reka verslunina Myndina og
heildsölufyrirtækið JÓGA.
HNOSS hefur fyrst og fremst gjafavörur á boðstólum, glervörur, tré-
vörur, keramik o.fl. Er hér yfirleitt um handunna vöru að ræða, þannig
að engir tveir munir eru eins. Á næstunni mun verða boðið upp á úrval af
jólavörum, svo sem jólaseríum, stjörnum og aðventuljósum.
Þá má geta þess að í HNOSSI verða til sölu málverk og um þessar
mundir eru þar til sýnis og sölu málverk og teikingar eftir þá Birgi Schiöth
og Gunnar Þorleifsson.
Verslanirnar HNOSS og MYNDIN, sem eru hlið við hlið og reknar sam-
hliða eru opnar alla virka daga frá kl. 9-18, laugardaga kl. 10-17 og sunnu-
daga kl. 13-17. Væntanlega breytast opnunartímar þegar nær dregur jól-
um og verður þá opið lengur.
Fjarðarpósturinn óskar eigendum þessara glæsilegu verslana til ham-
ingju með nýju búðina og góðs gengis í framtíðinni.
Tvær nýjar dagbækur
fyrir árið 1984
Útgáfan Fjöður hf liefur sent frá
sér einkar vandaðar dagbækur
fyrir árið 1984. Hér er mn að ræða
viðskiptabók í stóru broti
(21,5x26,5) og vasadagbók
(9,2 X 17,6 cm). Bækurnar eru inn-
bundnar í vandað band og prentað-
ar á góðan pappír. I bókunum er
gert ráð fyrir einni viku í hverri
opnu, með tímasetningu (8.00 -
17.00) og minnislínum fyrir hvern
dag. Þá er í bókunum mánaðartal
ársins 1985, heimilis- og simaskrá,
auk minnisblaða. Þessar dagbækur
sem m.a. verða seldar í öllum bóka-
búðum eiga örugglega eftir að
koma sér vel fyrir þá sem vilja hafa
reglu á hlutunum.
NÝR EIGANDI SNYRTISTOFUNNAR STRANDGÖTU 34
Nýlega tók Sigríður G. Blöndal við rekstri snyrtistofunnar að Strand-
götu 34 (uppi í Apótekshúsinu) af Rósu Jónasdóttur.
Snyrtistofan býður upp á alla venjulega snyrtingu. Ennfremur er boðið
upp á sérstaka afsláttarkúra í andlitsböðum og húðhreinsun. Þá er hægt
að komast í Ijós á stofunni (samloku og sérstök andlitsljós). Nú er kynn-
ingarafsláttur í Ijósabekk og 15 andlitsljós innifalin.
Á stofunni hjá Sigríði vinna snyrtisérfræðingarnir Guðrún Hulda
Guðmundsdóttir og Þórunn Jensen. Fjarðarpósturinn óskar Sigríði til
hamingju með snyrtistofuna og góðs gengis í framtíðinni.
Nýtt bakarhArnarbakarí
Fyrir nokkru tók til starfa bakarí að Dalshrauni 13. Eigandi þess er
Sigurður Örn Jónsson og nefnist það Arnarbakarí. Stefnt er að því að
opna verslun í tengslum við bakaríið í þessum mánuði en þangað til geta
menn kynnst gómsætum brauðum merktum ARNARBAKARI í hill-
um Kostakaups. Fjarðarpósturinn mun síðar kynna þetta nýja fyrir-
tæki nánar.