Fjarðarpósturinn - 10.11.1983, Qupperneq 16
FJflRDW
Atvinnulausum
fer fækkandi
Nú um mánaðamótin eru á
atvinnuleysisskrá 24 manns, þ.e. 13
konur og 11 karlar, er skiptist
þannig:
Verkakonur 8
Verkamenn 8
Verslunarkonur 4
Rafvirki 1
Bókagerðamaður 1
Iðnverkamenn 1
Iðnverkakonur 1
Skráðir atvinnuleysisdagar í
október 1983, 567. Hjá konum 298
dagar og körlum 269 dagar.
Skráðum atvinnuleysisdögum
hefur fækkað um 25 frá síðustu
mánaðamótum. Eins og um getur í
síðasta mánaðaryfirliti er ekki um
raunverulegt atvinnuleysi að ræða,
að undanskildum nokkrum sem
lausráðnir voru í Álverinu í
Straumsvík og hafa ekki verið
endurráðnir.
Rétt er að geta þess að af ofan-
greindum fjölda atvinnulausra eru
37,5% með læknisvottorð uppá
það, að viðkomandi þoli aðeins
létta vinnu.
Allt bendir til þess að atvinnu-
ástand verði eðlilegt fyrri hluta
nóvember, en margir óvissuþættir
eru í öflun hráefnis fyrir fisk-
vinnslufyrirtækin og er nú þegar
orðinn umtalsverður samdráttur.
Sædýrasaf nið opnar á ný
Hátt á annað þúsund manns
heimsótti Sædýrasafnið um síðustu
helgi, en þá var safnið opnað að
nýju eftir u.þ.b. þriggja ára hvíld.
Forráðamenn safnsins voru mjög
ánægðir með þennan gestafjölda
og kváðust bjartsýnir á góða
aðsókn í framtíöinni.
Safnið verður opið alla daga
vikunnar frá kl. 10 - 19. Á virkum
dögum býr safnið sig undir að taka
sérstaklega á móti hópum skóla-
nemenda. Er þá æskilegt að tímar
séu pantaðir með einhverjum fyrir-
vara svo að hægt verði að veita
hópunum leiðsögn og gefa þeim
kost á að fylgjast með fóðrun dýr-
anna.
Að sjálfsögðu fá skólanemendur
hópafslátt á aðgangseyri að safn-
inu.
Fjarðarpósturinn fagnar opnun
Sædýrasafnsins og hvetur bæjar-
búa til að skreppa i heimsókn
þangað.
BÆJARMALA
JLpunktar
* Bæjarráð hefur samþykkt að
óska eftir því við póst- og síma-
málastjóra og samgöngu- og
fjármálaráðuneytið, að nú
þegar verði hafnar viðræður um
hugsanleg kaup Hafnarfjarðar-
bæjar á húseigninni Austurgötu
11 undir starfsemi Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar. Stefnt
skuli að því að niðurstaða við-
ræðna liggi fyrir áður en gengið
verði endanlega frá fjárlögum
ríkisins fyrir 1984. Jafnframt er
þess farið á leit við samgöngu-
og fjármálaráðherra að þeir afli
heimilda til hugsanlegrar sölu
fasteignarinnar.
* Heilbrigðisráð hefur sam-
þykkt að afturkalla stöðvun á
rekstri söluturnsins, sem sam-
þykkt var á fundi ráðsins 27.
sept. 1983. Stefáni Jónssyni,
Hverfisgötu 57, hefur verið
veitt bráðabirgðaleyfi til þess að
starfrækja sælgætis- og tóbaks-
verslun, sem eingöngu hefur á
boðstólum innpakkað sælgæti,
innpakkaðan ís úr frysti ásamt
gosdrykkjum.
* Bæjarrád hefur úthlutað lóð-
um til eftirtalinna:
a.
Jófríðarstaðavegur 17 og 19 (einbýli):
1. Björn B. Líndal, Kviholti 3.
2. Hörður Þórarinsson, Grænukinn 18.
b.
Móabarð 33 (einbýli):
Jón Georg Ragnarsson, Selvogsgötu 9.
Til vara Guðmundur R. Guðmundsson,
Suðurbraut 14.
Vallarbarð 25:
Ragnar Höskuldsson, Reykjavík
c.
Klettagata 8 (einbýli):
Ingvi R. Einarsson, Breiðvangi 24
d.
Setberg (einbýli);
1. Jón Vignir Jónsson, Sævangi 15
2. Sigurður Ó. Jónsson, Sævangi H
3. Guðrún J. Sigurjónsdóttir, Hurc'ar-
baki, Kjós.
4. Jón Marteinsson, Köldukinn 20
5. Páll Viggó Jónsson, Álfaskeiði 90
e.
Setberg (raðhús):
1. Gísli Jón Höskuldsson, Reykjavikur-
vegi 50
2. Sveinn Jónsson, Selvogsgötu 20
* Bæjarstjórn hefur sámþ. að
umferð um Stakkahraun og
Hjallahraun hafi aðalbrautar-
rétt gagnvart aðliggjandi
götum.
Heilbrigðisráð mælir
með heilsugæslustöd
Heilbrigðisráð Hafnarfjarðar
hefur skilað til bæjaryfirvalda ítar-
legri greinargerð um fyrirkomulag
heilbrigðisþjónustu i Hafnarfirði
og kostnað er fylgi við að breyta frá
núverandi fyrirkomulagi yfir í
heilsugæslustöðvarkerfi skv.
lögum nr. 59/1983.
í greinargerð hennar kemur fram
að heilbrgðisráð telur að með
heilsugæslustöð verði hægt að
bæta þjónustu til muna. Bent er á,
að ýmis þjónusta, sem nú er bundin
einstaka dögum, verði látin í té alla
daga, gæsluvaktir starfi allan sólar-
hringinn og m.a. verði opið um
helgar, og minniháttar slysaþjón-
usta verði veitt.
Hvað snertir kostnaðinn er sýnt
að fyrir bæjarsjóð verði hann
nokkuð meiri en hann er í dag.
Óvissa ríkir þó um endanlega
kostnaðarhlutdeild ríkis og bæjar,
enda hefur enn ekki verið sett gjald-
skrá af ráðherra, skv. lögum um
heilsugæslustöðvar, þar sem kveð-
ið er á um greiðslu sjúkrasamlaga
fyrir rannsóknir og meðferð veitta
á heilsustöð.
Heilbrigðisráð Hafnarfjarðar
mælir einróma með því við bæjar-
stjórn að tekin verði upp rekstur
heilsugæslustöðvar skv. lögum þar
að lútandi, enda leiði kerfisbreyt-
ingin til bættrar þjónustu við
bæjarbúa, þar sem m.a. telja megi
að tilvísunum til sérfræðinga fækki
en læknisverk á stöðinni sjálfri
aukist að sama skapi.