Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 25.02.1988, Page 13

Fjarðarpósturinn - 25.02.1988, Page 13
FJARÐARPÓSTURINN 13 HANDBOLTI ALLAR ALHLIÐA BIFREIÐAVIÐGERÐIR Fyrir leik FH og Stjörnunnar í 13. umferð I. deildar karla í hand- knattleik bjuggust flestir við örugg- um sigri FH-inga, enda hafa Stjörnumenn verið þeim auðveld bráð í þeim ,3 leikjum sem liðin hafa leikið innbyrðis í vetur. í leiknum á sunnudagskvöldið virtist allt stefna í enn einn FH-sig- urinn, því FH leiddi með 4-5 marka mun fram undir miðjan seinni hálf- leik. En þá sneri Stjarnan blaðinu við og skoraði 9 mörk gegn 1 á rúm- lega 10 mínútna kafla og komst í þriggja marka forystu. Á síðustu 2-3 mínútunum náði FH svo með harðfylgi að jafna leikinn og bjarga þar með andlitinu. Á þessum loka- mínútum spöruðu hafnfirsku áhorfendurnir svo sannarlega ekki hvatningarhrópin, og sennilega hef- ur það gert gæfumuninn, því mikill fítonskraftur greip leikmenn þegar samstillt FH-hróp hljómuðu af pöllunum. Ekki verður FH-strákunum hrós- að fyrir góðan leik að þessu sinni. Skytturnar brugðust algjörlega, og aðall liðsins, hraðaupphlaupin, köfnuðu í fæðingu. Vonandi láta FH-ingar þennan mótbyr sér að kenningu verða, hrista af sér slenið, og berjast af fullum krafti i næstu leikjum. FH og Valur tróna nú á toppi deildarinnar, með 23 stig hvort fé- lag og enn magnast spennan í ein- vígi þessara liða um íslandsmeist- aratitilinn. Næst leika FH-ingar gegn Fram á útivelli (28. febrúar), fá svo KA í heimsókn 4. mars, en leika síðan gegn UBK í Kópavogi 13. mars. Síð- Smáauglýsing ÍBÚÐ ÓSKAST íbúð óskast til leigu. Ekki stærri en fjögur herbergi. Upplýsingar i síma 5 20 32. ustu leikirnir eru svo gegn Víkingi heima (23. mars) og Val á útivelli (30. mars). Að lokum má geta þess að í hörkuspennandi keppni um marka- kóngstitilinn eru þeir Þorgils Óttar og Héðinn Gilsson í hópi efstu manna. Þeir hafa hvor um sig skor- að 72 mörk, og það sem meira er; ekkert þeirra úr vítakasti. Erum með þjónustu ^EAi anna RAIMGE ROVER Cöi3 LOKI Blfreiðaverkstæði Skútahraunl 13 Simar 54958 og 651221 IÁTTI i FKKI STRE2TU STYTTA ----^ AÐ NÁ TÖKUM Á STREITU Á ÁTTA DÖGUM Námskeið sem stuðlar að betra og heilbrigðara lífi þriðjudags og fimmtudagskvöld 1.-24. mars n.k. kl. 20.00-22.00. Innritun og nánari upplýsingar í símum 76750 og 673626.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.