Fjarðarpósturinn - 25.02.1988, Qupperneq 13
FJARÐARPÓSTURINN
13
HANDBOLTI
ALLAR ALHLIÐA
BIFREIÐAVIÐGERÐIR
Fyrir leik FH og Stjörnunnar í
13. umferð I. deildar karla í hand-
knattleik bjuggust flestir við örugg-
um sigri FH-inga, enda hafa
Stjörnumenn verið þeim auðveld
bráð í þeim ,3 leikjum sem liðin hafa
leikið innbyrðis í vetur.
í leiknum á sunnudagskvöldið
virtist allt stefna í enn einn FH-sig-
urinn, því FH leiddi með 4-5 marka
mun fram undir miðjan seinni hálf-
leik. En þá sneri Stjarnan blaðinu
við og skoraði 9 mörk gegn 1 á rúm-
lega 10 mínútna kafla og komst í
þriggja marka forystu. Á síðustu
2-3 mínútunum náði FH svo með
harðfylgi að jafna leikinn og bjarga
þar með andlitinu. Á þessum loka-
mínútum spöruðu hafnfirsku
áhorfendurnir svo sannarlega ekki
hvatningarhrópin, og sennilega hef-
ur það gert gæfumuninn, því mikill
fítonskraftur greip leikmenn þegar
samstillt FH-hróp hljómuðu af
pöllunum.
Ekki verður FH-strákunum hrós-
að fyrir góðan leik að þessu sinni.
Skytturnar brugðust algjörlega, og
aðall liðsins, hraðaupphlaupin,
köfnuðu í fæðingu. Vonandi láta
FH-ingar þennan mótbyr sér að
kenningu verða, hrista af sér slenið,
og berjast af fullum krafti i næstu
leikjum.
FH og Valur tróna nú á toppi
deildarinnar, með 23 stig hvort fé-
lag og enn magnast spennan í ein-
vígi þessara liða um íslandsmeist-
aratitilinn.
Næst leika FH-ingar gegn Fram á
útivelli (28. febrúar), fá svo KA í
heimsókn 4. mars, en leika síðan
gegn UBK í Kópavogi 13. mars. Síð-
Smáauglýsing
ÍBÚÐ ÓSKAST
íbúð óskast til leigu. Ekki stærri
en fjögur herbergi.
Upplýsingar i síma 5 20 32.
ustu leikirnir eru svo gegn Víkingi
heima (23. mars) og Val á útivelli
(30. mars).
Að lokum má geta þess að í
hörkuspennandi keppni um marka-
kóngstitilinn eru þeir Þorgils Óttar
og Héðinn Gilsson í hópi efstu
manna. Þeir hafa hvor um sig skor-
að 72 mörk, og það sem meira er;
ekkert þeirra úr vítakasti.
Erum með þjónustu
^EAi anna
RAIMGE ROVER
Cöi3 LOKI
Blfreiðaverkstæði
Skútahraunl 13
Simar 54958 og 651221
IÁTTI i FKKI
STRE2TU STYTTA
----^
AÐ NÁ TÖKUM Á
STREITU Á ÁTTA DÖGUM
Námskeið sem stuðlar að betra og heilbrigðara lífi
þriðjudags og fimmtudagskvöld 1.-24. mars n.k.
kl. 20.00-22.00.
Innritun og nánari upplýsingar í símum 76750 og 673626.