Fjarðarpósturinn - 25.02.1988, Page 16
HARDflR
EIMSKIP — UPPBYGGING í
SUÐURHÖFN
Gengið hefur verið fram samn-
ingi milli hafnarsjóðs Hafnarfjarð-
ar og Hf. Eimskipafélags islands
um framtíðaraðstöðu fyrir félagið í
Hafnarfjarðarhöfn og uppbygg-
ingu hennar á næstu árum.
Með þessum samningi fær Eim-
skipafélagið aukið athafnarými í
Suðurhöfn, jafnframt því sem
kveðið er á um mannvirkjagerð og
uppbyggingu á svæðinu. Er þessi
samningur í framhaldi af þeim
samningi aðila, sem gerður var í
desember 1983.
Samkvæmt samningnum verður
heildarathafnasvæði Hf. Eim-
skipafélags islands í Suðurhöfn
Hafnarfjarðar alls 54.000m2.
Á fyrri hluta árs 1988 verður
byggð á athafnasvæðinu aðstaða
og saltgeymsla fyrir EimSalt.
Aðstaða þessi hefur fram til
þessa verið í leiguhúsnæði í Hafn-
arfirði, fjarri hafnarbakka.
Þá eru og áform um að hefja
byggingu þjónustumiðstöðvar árið
1988, er rúmi 400-600 tonna frysti-
geymslu og þar verði jafnframt að-
staða fyrir aðra þjónustu við frysti-
togara.
Önnur vöruafgreiðsla Eimskips
verður áfram á næstu árum starf-
rækt í Norðurhöfninni, með sama
hætti og verið hefur.
Á undanförnum árum hafa
flutningar Hf. Eimskipafélags ís-
lands um Hafnarfjarðarhöfn auk-
ist verulega. Heildarflutningsmagn
félagsins um Hafnarfjarðarhöfn
var árið 1987 alls 86.524 tn. og er
það 22% aukning frá árinu 1986 og
er það von aðila að áðurgreindur
samningur styrki enn frekar sí-
vaxandi viðskipti Eimskips og
Hafnarfjarðarhafnar.
BÆJARMALA-
PUNKTAR
Sigurður Aðalsteinsson,
Hnotubergi 5, og nokkrir íbúar
í hverfinu, hafa ítrekað mót-
mæli sín vegna íbúðarbyggingar
á lóðinni nr. 11 við Greniberg;
Þau æskja þess að framkvæmd-
ir verði stöðvaðar og leyfi til
byggingar afturkallað.
Lögð voru fram gögn máls-
ins, þ.á.m. afgreiðslur bygginga-
nefndar og bæjarstjórnar á mál-
inu.
Með vísan til fyrri umfjöllun-
ar bygginganefndar, bæjarráðs
og bæjarstjórnar á máli þessu,
sér bæjarráð ekki forsendur til
að taka það upp að nýju.
Erindi Sigurðar verður sent
bygginganefnd til kynningar.
Haraldur S. Magnússon hef-
ur ritað bæjarráði og vakið at-
hygli á iiauðsyn þess að veita hið
fyrsta styrki úr afrekssjóði til
þeirra Eggerts Bogasonar og
Ragnheiðar Ólafsdóttur.
Þar sem afreksmannasjóður
hefur ekki tekið til starfa, samþ.
bæjarráð að veita þeim Eggerti
og Ragnheiði 75.000 kr. styrk til
þátttöku í Olympíuleikunum,
m.a. vegna þess að Olympíu-
nefnd íslands hefur enn sem
komið er ekki virt afrek þeirra
að verðleikum.
Fulltrúaráð verkalýðsfélag-
anna í Hafnarfirði hefur óskað
eftir viðræðum við bæjaryfir-
völd um lóðamál og byggingu
sameiginlegs húss fyrir verka-
lýðsfélögin.
Vísað er til þess að fyrrver-
andi bæjarstjórn skipaði við-
ræðunefnd um þessi mál og
komu þá upp hugmyndir um
lóðina við Hafnarborg. Við-
ræðum var skotið á frest og
öngvar verið í hartnær tvö ár.
Forstöðumenn dagvistunar-
stofnana hafa farið þess á leit
við bæjarráð að framvegis verði
þeim greitt fyrir afnot einka-
bílasima í formi fasts bílastyrks.
Bæjarráð samþ. að greiðslur
vegna umræddra afnota af bif-
reiðum verði áfram samkvæmt
framlögðum reikningum.
Borist hefur til bæjarráðs
beiðni frá Fauna, þar sem þess
er farið á leit að samþykkt verði
að Fauna yfirtaki skuld þrota-
bús Sædýrasafnsins við bæjar-
sjóð Hafnarfjarðar. Lánið verði
tryggt með veði í eignum Sæ-
dýrasafnsins.
EMIL í KATTHOLTI
Eflaust kannast flestir krakkar við prakkarann og ærslabelginn Emil í
Kattholti. Án efa er mörgum börnum minnisstætt þegar Emil greyið festi
súpuskálina á höfðinu og náði henni alls ekki aftur af.
Um þessar mundir er verið að æfa leikrit hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
sem fjallar um fjölskylduna í Kattholti og vini þeirra í sveitinni. Uppátæki
Emils í Kattholti sem sett eru á svið í Bæjarbíó Hafnarfirði eiga án efa eftir
að kæta bæði unga og gamla og ekki sakar að heimilisfólkið í Kattholti er
söngglatt fólk svo oft er fjörugt á bænum.
Aðalpersónur verksins eru systkinin Emil og Ida. Þau leika tveir hafn-
firskir krakkar: Haraldur Freyr Gíslason og Katrín Sigurgeirsdóttir.
Leikritið Emil í Kattholti er eftir hinn þekkta barnabókahöfund Astrid
Lindgren. Þýðandi er Vilborg Dagbjartsdóttir en hún þýddi einmitt bæk-
urnar um Emil í Kattholti á íslensku. Fimm manna hljómsveit tekur þátt
í sýningunni og er Jón Björgvinsson hljómsveitarstjóri. Leikstjóri er Viðar
Eggertsson.
Frumsýnt verður um miðjan marz og verða sýningar í Bæjarbíó Hafnar-
firði um helgar.
á A W
ÆTTJT,7W:'V;1
■ HFASTEIGNASALA
Reykjavikurvegi 72 Halnartiiöi ■ Simi 54511 n™ 4ir"yi,i
OPID V 'irka daga ki 918 sunnudaga kl 1316
l Heimasimi soiumanns Magnusai Emilssonar 53274 |
GUÐM. KRISTJÁNSSON HDL.
HLÖDVER KJARTANSSON HDL.
▲ BREKKUBYGGÐ: Glœsilegt
ca. 95m2 endaraöhús á einnl
hœð ásamt 24m2 bílsk. Áhv. ca.
1.4 millj. írá Veddeild. Verá 5.5
millj.
▲ VALLARBARÐ. ca. 180m2
einb.hús á 2 hœðum íb. haett
en ekki fullb. Eingöngu skipti á
4-5 herb. íb. Verð 7.3 millj.
AÁLFASKEIÐ I BYGG., Glœsi-
legt 187m2 einb.hús auk 32m2
bílsk. Aíh. fokh. innan, fullb. ut-
an í júlí-ág. Verð tilboð.
▲ ERLUHRAUN: Glœsilegt
255m2 einbýlish. á 2 hœðum á
góðum stað. Innb. bílsk. og gott
vinnupláss í kj. Einkasala. Skipti
mögul. á 3ja herb. í Norðurb.
A ÖLDUGATA: ca. POm2 3ja
herb. eíri hœð, í góðu standi.
Verð 4 millj.
A KROSSEYRARVEGUR, 55m2
3ja herb. risíb. Góðar geymslur.
Verð 2.3 millj.
A ÁSBÚÐARTRÖD, Mjög
skemmtileg 3ja - 4ra herb. risíb.
Allt sér. Ekkert áhv. Laus fljótl.
Einkasala.
A FAGRAKINN, 75m2 2ja herb.
jarðh. Verð 2.650 þús.
A STAPAHRAUN: Nýtt iðn. húsn.
144m2 á jaröhœð og 72m2 á efri
hϚ.
A KELDUHVAMMUR, 85m2 3ja
herb risíb. í skiptum fyrir ód.
Verð 3.5 millj.
A ÖLDUGATA, 62m2 2ja herb.
efri hceð í góðu standi. Verð 2.9
millj.