Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 03.03.1988, Side 1

Fjarðarpósturinn - 03.03.1988, Side 1
AUS FERÐASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266 FiflRDflR 8.TBL. 1988-6. ARG. FIMMTUDAGUR 3. MARS VERÐ KRÓNUR 50,- AUS FERÐASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími 652266 Samningamir kotfelldir á átakafundi hjá FramtíÓinni í gær JEtvb þið aö semja fyrir okk- ur eða atvirmurekendur?" „í næstu samningum gefið þið þeim jólin líkasögðu bálreióar fundarkonur m.a. Yfirskriftirnar eru sýnishorn af þeirri harðorðu gagnrýni sem Guð- ríður Elíasdóttir, formaður Framtíðarinnar, og Þórir Daníelsson, framkvæmdastjóri Yerkamannasambands Islands, fengu framan í sig á hörðum fundi hjá Verkakvennafélaginu Framtíðinni í gær. Samning- arnir voru síðan kolfelldir af rúmlega hundrað fundarmönnum, þar sem 94 sögðu nei, en aðeins 8 já, tveir seðlar voru ógildir, einn auður. Úrslitum var tekið með dynjandi lófataki. Aður hafði farið fram atkvæðagreiðsla um hvort kjósa ætti sérstaklega um þann hluta samn- ingsins sem fjallar um breyttan vinnutíma. Tillaga formanns þess efnis var felld með 41 atkvæði gegn 38. Verkfallsheimild var í Iokin sam- þykkt og sögðu þá 100 já en nei aðeins þrjár, einn seðill var auður, ann- ar ógildur. Aðeins konur úr fiskvinnslunni greiddu atkvæði, en fimm félagskonur af Sólvangi sátu fundinn. í upphafsræðu formanns, sérstaklega með það að hafa ekki Guðríðar Elíasdóttur, skýrði hún ástæðu þess að hún undirritaði heildarsamninginn á þá lund, að hann hefði gengið verulega til móts við ræstingarkonur í Reykja- vík, sem lengi hefðu setið eftir. Ennfremur sagði hún, að náðst hefði samkomulag um desember- uppbót og 80% álag á alla vinnu í fiskvinnslu utan dagvinnu. Ann- ars sagðist hún alls ekki ánægð og fengið allar starfsaldurshækkan- irnar í gegn. Hún kvaðst þó ekki hafa séð, að meira næðist án mikilla átaka og sagði í lokin, að ef samningarnir yrðu felldir myndi hún bera fram tillögu um heimild til verkfallsboðunar. Betri er einn fugl í hendi Þórir Daníelsson fram- kvæmdastjóri Verkamannasam- Fjarðarpósturinn í nýjum búningi Fjarðarpósturinn kemur í dag út í fyrsta sinn undir stjórn nýrra eigenda og jafnframt í mjög breyttri mynd frá því sem verið hefur. Brotið hefur verið stækkað, dálkarnir eru orðnir fímm í stað Qögurra áður, blár litur er í haus blaðsins og efnis- uppsetning er öll önnur svo fátt eitt sé nefnt. Þá verður sú grundvallar- breyting á Fjarðarpóstinum frá og með deginum í dag, að blaðið verður selt en hefur verið dreift ókeypis fram til þessa. Ástæður þessa hafa verið raktar áður í blaðinu en megintilgangurinn með þessari breytingu er að styrkja rekstrargrundvöll Fjarð- arpóstsins. bandsins skýrði síðan samningana og sagðist eins óánægður og Guðríður með starfsaldurshækk- anatillögurnar sem hann líkti við heimsku að ekki skyldu hafa verið samþykktar. Hann sagði einnig, að hann hefði skrifað undir þar sem ekki hefði verið hægt að ná lengra án átaka og að „betri væri einn fugl í hendi en margir á flugi“. Á þeim punkti í ræðu Þóris var eins og þolinmæði fundarkvenna þryti og fyrsta konan af mörgum sem gripu fram í fyrir honum það sem eftir var fundar, spurði ákveðnum rómi: „Af hverjugetur fólk hér ekki farið í verkföll eins og fólkið úti á landi?“ Þórir útskýrði síðan kafla samninganna um breytingar á vinnutíma, sem heimilar vinnu- veitenda m.a. að hefja dagvinnu kl. 7 að morgni, en í staðinn ber þeim að greiða næturvinnu eftir hefðbundinn vinnutíma. Það kom þá í ljós, að þessi kafli samning- anna virtist ergja fundarkonur hvað mest og var fátt um svör við fjölmörgum spurningum þeirra, t.d. hvernigfæri með tímasetning- ar vinnu hlutafólks o.fl. Færa jólin fram á vor . . . Ákvæðið um, að vinnuveitandi megi láta fiskvinnslufólk vinna sumardaginn fyrsta og uppstign- ingardag gegn því að gefa frí næsta mánudag varð fundarkon- um tíðrætt um. Komu fram í því sambandi yfirlýsingar eins og sú, hvort atvinnurekendur hefðu ekki farið fram á að færa jólin fram á vor og hvort þau Þórir og Guðríð- ur myndu ekki gefa þeim jólin líka í næstu samningum. Var m.a. Frá fundi Framtíðarinnar í gœr. bent á, að þessa daga ættu börn frí í skólum og dagheimili og leik- skólar væru lokaðir. Af máli fundarkvenna mátti ráða, að þær töldu forustumenn verkalýðshreyfingarinnar hafa samið illilega af sér fyrir þeirra hönd. Þær sögðust m.a. telja, að fækkun kaffitíma og óljós vinnu- tímatilhögun yrði til enn frekari þrælkunar. Fullorðin kona stóð upp og sagði, að þessi hluti samn- inganna minnti sig helst á þá tíma, þegar móðir hennar hefði unnið út í gamla daga. Gífurlegur hiti var í fundar- mönnum um tíma og minnti for- maður oft á fundarsköp og líkti fundinum tvívegis í áminningum sínum við vitlausraspítala. Ekki ein einasta fundarkona spurði eða kom með athugasemd við starfs- aldurhækkanirnar. Guðríður sagði eftir fundinn í viðtali við Fjarðarpóstinn, að hún hefði aldrei fyrr setið svo harðan fund í félagi sínu. Aðspurð sagðist hún kalla saman samninganefnd félagsins strax í dag og hafa sam- band við atvinnurekendur til að skýra þeim frá niðurstöðunni og æskja samningaviðræðna. Viku- frestur er frá verkfallsboðun til vinnustöðvunar. Verkamannafélagið Hlíf fund- ar í kvöld um samningana.

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.