Fjarðarpósturinn - 10.03.1988, Blaðsíða 5
® M B
iiiinnn,
0
Opnun félagsmiðstöðvar frestað um viku:
Dagskrá „opnunannkunnar'
hefur þegar verið ákveðin
Opnun félagsmiðstöðvarinnar við Strandgötu 1 hefur verið frestað
um viku, eða til sunnudagsins 20. mars. Formleg opnun verður þá frá
kl. 13-15. Að lokinni opnunarhátíðinni þar sem m.a. verða tilkynnt
úrslit samkeppni grunnskólabarna úr 7., 8. og 9. bekk um nafn á mið-
stöðina veðrur húsið opið almenningi kl. 15-19. Um kvöldið frá kl. 20-
23 verður diskótek fyrir unglinga f. 1975 og eldri þar sem unglingar
sýna dans. Forstöðumaður nýju félagsmiðstöðvarinnar hefur verið
ráðin Margrét K. Sverrisdóttir.
Húsið verður opið almenningi
til sýnis sunnudaginn 27. mars kl.
13-19. Eru þá foreldrar sérstak-
lega velkomnir, að sögn Margrét-
Félagsmiðstöðin er að Strandgötu 1. Opnun hennar hefur verið frestað
um viku.
Margrét sagði, að fyrsta vikan í
starfseminni, „opnunarvikan"
væri þegar skipulögð en hún er
svofelld:
Mánudaginn 21. mars: Opið
hús fyrir unglinga sem eru í 9.
bekk og eldri.
briðjudaginn 22. mars: Hljóm-
sveitin „Síðan skein sól“
skemmtir, en söngvari hennar er
Helgi Björnsson sem áður söng
með hljómsveitinni Grafík.
r r r
0, PU HYRIHAFNARFJORÐUR:
„Hafnfirðingar
botnið braginn“
Við fyrriparta Ragnheiðar
Sveinbjörnsdóttur bárust okkur
eftirfarandi botnar, en við birtum
þá í einu lagi með fyrripörtunum:
Þeir eru frá Valnýju Benedikts-
dóttur, Hverfisgötu 26:
Hamarinn yfir Hafnarfirði
heldur ætíð vörð.
Léttir okkur lífsins byrði,
Ijúf sé þakkargjörð.
og:
Haustkvöld mörg í Hellisgerði
hef ég notið yndisstunda.
Þó að blikni blóm á sverði,
blítt er þar og gott til funda.
\
-- Þökkum við Valnýju kærlega
góða botna.
Hörður Zóphaníasson tók
áskorun Ragnheiðar með miklum
krafti og bauð upp á nokkra fyrri-
parta sem við völdum í samein-
ingu tvo úr. Hann botnaði einnig
fyrriparta Ragnheiðar svo:
Hamarinn yfir Hafnarfirði
heldur ætið vörð.
Allar góðar vættir virði
og verndi Hafnarfjörð.
og:
Haustkvöld mörg í Hellisgerði
hef ég notið yndisstunda.
Þar er eins og alltaf verði
úrræði til heitra funda.
Fyrripartar Harðar eru þessir:
Hafnfirðingar botnið braginn.
Braga strengi látið hljóma.
og
Um Hafnfirðinga sagðar eru
sögur,
sumar bara haganlega gerðar.
Það er forsjálni að
greiða á gjalddaga
Rafveita Hafnarfjarðar
Miðvikudagur 23. mars: Opið
hús fyrir unglinga sem eru í 7. og
8. bekk.
Fimmtudagur 24. mars: Hafn-
firskar unglingahljómsveitir leika
fyrir gesti.
Föstudagur 25. mars: Diskótek
og skemmtiatriði.
Einnig verður skemmtun fyrir
10-12 ára krakka, sem nánar verð-
ur auglýst síðar.
Fjarðar-
pósturinn
- fréttnblað
allra Halh-
Brðinga
Föstuvaka
í Hafnar-
fjarðar-
kirkju
Föstuvaka verður í Hafn-
arfjarðarkirkju næstkomandi
sunnudagskvöld. Sigfinnur
Þorleifsson, sjúkrahúsprest-
ur, flytur þá erindi. Sigfinnur
hefur starfað mikið að
málefnum deyjandi fólks og
einnig með fólki sem orðið
hefur fyrir ástvinamissi.
Auk erindis Sigfinns verður
söngur á föstuvökunni. Eiður
Ágúst Gunnarsson, óperu-
söngvari, syngur og Hlíf Sig-
urjónsdóttir, fiðluleikari,
leikur undir. Auk þess flytur
kirkjukór Hafnarfjarðar-
kirkju tónlist undir stjórn
Helga Bragasonar.
Hörður Zóphaníasson, hagyrð-
ingur Fjarðarpóstsins að þessu
Við þökkum Herði kærlega
fyrir, en hann skorar á gamla
húsvörðinn sinn, Ásgeir Jón
Jóhannsson, að setjast á hagyrð-
ingabekk í næsta tölublaði.
Fjarðarpósturinn hefur ákveð-
ið, að lengja skilafrest á botnum
fram til hádegis á þriðjudögum,
þannig að nú fá Hafnfirðingar enn
betri tíma til reyna sig við stuðla,
höfuðstafi og rím og við bíðum
enn spennt eftir botnum.
ÞEMA
HÁRGREIÐSLU- OG SNYRTISTOFA
REYKJAVÍKURVEGI64 - SÍMI51938
Bjóðum upp á alla almenna snyrtingu
fyrir ungt fólk á öllum aldri
★ Andlitsböð
★ Fótaaðgerð
★ Vaxmeðferð
★ Litanir
★ Förðun
★ Gervineglur
★ Permanent
★ Klipping
★ Strípur
★ Blástur
10% afsláttur af húðhreinsun til 20. apríl
Munið að panta tímanlega fyrír
páska og fermingar!
5