Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 17.03.1988, Síða 1

Fjarðarpósturinn - 17.03.1988, Síða 1
^íus ^srltlar^ FERÐASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266 Samúóar- aðgerðir við Eyja- menn Verkamannafclagið Hlíf hefur ákveðið samúðaraðgerð- ir til stuðnings verkafólki í Vestmannaeyjum. Hafa félagsnienn tilkynnt, að ekki verið unnið við löndun báta frá Vestmannaeyjum og farið þess á leit við Fiskmark- aðinn og aðra sem málið varðar, að bátar frá Vestmanna- eyjum fái ekki þjónustu í Hafn- arfirði. Að sögn Hallgríms Péturs- sonar hjá Hlíf er staðan í verkalýðsmálunum óljós. FfflRDflR ^^MpösturMn 10. TBL. 1988-6. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. MARS VERÐ KRÓNUR 50,- V m t.*: Byggð þrjú til fjögur þúsund íbúa á Hvaleyrarholti: Stefnt aö því að hefja fram Stefnt er að því, að unnt verði að hefja framkvæmdir á nýja íbúða- byggingarsvæðinu á Hvaleyrarholti um mitt næsta ár. Svæði þetta á að tengjast Suðurbænum og er staðsett suður af iðnaðarhverfinu á holtinu sem liggur suður í hraunið. Skipulagsvinna er vel á veg komin. Fjarðarpósturinn ræddi nýverið við Jóhannes Kjarval skipulags- stjóra bæjarins um þetta nýja byggingarsvæði. Hann sagði, að reiknað væri með byggð þrjú til fjögur þúsund íbúa og að hverfið yrði sérstakt skóla- og þjónustu- svæði. Gert er og ráð fyrir sérstöku verslunarsvæði og sagði Jóhannes að stefnt væri að því, að þarna byggðist upp öll þjónusta við íbú- ana jafnóðum og hverfið Rós íhnappagat tollara -sjabls.2 byggðist. Um tegund íbúð- abyggðar sagði hann það verða svipað í skipulagningu og Norður- bærinn, þ.e. að um 50% íbúða yrði í fjölbýlishúsum, 25% í rað- húsum og parhúsum og 25% í ein- býli. Jóhannes var spurður, hvort reiknað væri með að þetta nýja hverfi gæti tekið við síaukinni eftirspurn og jafnvel enn meiri, ef nýtt álver rís í Straumsvík. Hann svaraði því til, að þarna væru miklir möguleikar en að auki væri annar kóstur fyrir hendi, en það er framhald byggðar í Setbergs- hverfi. Þess utan eru í byggingu íbúðir í Hvammahverfi og unnt að bæta við íbúðabyggð á svæðinu ofan við fyrirhugaða nýja kapellu kaþólskra við Jófríðarstaðarveg. Jóhannes sagði í lokin, að nýja Hvaleyrarholtshverfið kæmi til með að tengjast bænum á mjög skemmtilegan hátt, en bærinn væri sérstaklega fallegur skipu- lagslega séð með legu sinni í kringum sjálfan fjörðinn. Hann sagði fólk eflaust álíta fyrst í stað, að það væri að byggja utan bæjar- ins, en það gerðist í hvert skipti sem ný hverfi byggðust, svo sem verið hefði í Norðurbænum. sleppt Fálkanunt, sem leitaði ásjár áhafnarinnar á Venusi fyrir nokkru og sagt var frá í síðasta tölublaði Fjarðarpóstsins, var sleppt í gær. Fálkinn, sem hlot- ið hefur nafniö Venus eftir skipi bjögunarmanna sinna, var freisinu feginn og virtist bera sig hið besta á fluginu, þó það flokkaðist fremur undir lágflug fyrst í stað. Ævar Petersen dýrafræðing- ur hjá Náttúrufræðistofnun, sem annast hefur Venus stð- ustu viku, sleppti honum laus- um á svæðinu ofan við hesthús- in, innan kirkjugarðsins, en Hafnarfjörður varð fyrir valinu þar sem Hafnarfjörður er eig- inleg heimahöfn hans. Áður hafði hann sett merki á hann. Ævar bað þá sem hugsanlega rækjust á fugla, með slíkum merkjum, annað hvort afvega eða dauða, að hafa samband við stofnunina. Aðspurður sagði Ævar enn- fremur, að fæðuþörf Venusar væri u.þ.b. einn fugl á sólar- hring. Kvað hann litlar líkur á öðru en hann bjargaði sér. Venus flaug fyrst stuttar leiðir og mjög lágt, en hækkaði flugið smátt og smátt. Tveir hrafnar virtust ekki alveg ánægðir með „innrás" Venusar á svæðið og létu ófriðlega um það leyti sem við yfirgáfum svæðið í von um að Venusi takist að „festa hér rætur.“ Verkakvennafélagió Framtíiin: Yf irvinnubann á morgun? Verkakvennafélagið Framtíðin hefur látið fara fram atkvæða- greiðslur á tveimur stöðum af fjórum hjá fiskvinnslukonum um það, hvort boða eigi til yfirvinnubanns. Samkvæmt heimildum Fjarðarpóstsins eru allar líkur á því að boðað verði til yfirvinnubanns á morgun, föstudag. Það tæki þá gildi á föstudag eftir viku, þ.e. 25. mars. í dag, fimmtudag verða greidd atkvæði um yfirvinnubannið á hinum tveimur vinnustöðunum, en hugur félagskvenna mun í langflestum tilfellum standa til þess að til yfirvinnubanns komi. Hverer Emilí Kattholti -sjábls.3 „Við Lækinn Í60ár“ -sjábls.8-9 Landleiða- mönnum svarað -sjábls.11 Iþrótta- fréttir úr Firðinum -sjá bls. 14-15

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.