Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 09.06.1988, Síða 1

Fjarðarpósturinn - 09.06.1988, Síða 1
 Al\S _/ MWmU^ vnsn# FJflRDflR FERÐASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266 20. TBL. 1988-6. ÁRG. / /ff//|/f FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ f|f Jl'% g MMM $ $§ ff M VERÐKR.50,- MlJfe# 1 MFWW FfcRtJASKKIFS IOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266 Sex útgerðar- og flutningafyrir- tæki sameinast í Faxafrosti h.f. Faxafrost h.f. er heiti á nýju stórfyrirtæki, sem sex fyrirtæki í útgerð og sjóflutningum hafa stofnsett, þar af er eitt danskt. Markmið fyrirtækisins er að koma upp aðstöðu við Hafnar- fjarðarhöfn til útflutningsþjónustu. Eitt fyrirtækjanna er Ok h.f., sem þegar hefur fengið úthlutað sex til sjö þúsund fer- metra athafnasvæði upp af Suðurgarði. Hafin er bygging þar á 1.200 fermetra frystigeymslu, sem verður eign hins nýja fyrir- tækis. Heildarathafnasvæðið mun þegar vera talið of lítið og hefur Faxafrost leitað hófanna um frekara landsvæði. Það var Guðráður, sem dró fyrstur að húni íslenska fánann á flaggstönginni við Hrafnistu, sem bæjarfélagið gaf daginn fyrir heimsókn forsetans. Flaggstöngin var gefin í tilefni af afmæli bæjar- ins og Sjómannadagsins og er sagt frá athöfninni í miðopnu blaðsins. Þess má geta, að forsetakosn- ingarnar verða 25. júní n.k. Að sögn fulltrúa hjá bæjarfógeta er þátttaka í utankjörstaðakosning- um nú betri en nokkru sinni fyrr. Forsetinn hjá Islands hrafhistumönnum Forseti íslands, Yigdís Finn- bogadóttir, heimsótti Hrafnistu í Hafnarfirði sl. föstudag í tilefni af 50 ára afmæli Sjómannadagsins. Heilsaði hún m.a. upp á Guðráð Sigurðsson fyrrverandi skipstjóra hjá Eimskip um árabil. Var mynd- in tekið við það tækifæri. Samkvæmt heimildum Fjarð- arpóstsins mun Faxafrost þegar hafa viðrað hugmyndir um að fyrirtæki fái aukna hafnaraðstöðu þar sem talið er að sex til sjö þús- und fermetra svæðið, sem Ok hef- ur þegar fengið úthlutað, nægi ekki fyrir þann rekstur sem fyrir- hugaður er. Málið mun verða tek- ið til athugunar á vettvangi hafn- arstjórnar fljótlega. Ytri höfnin mun vera efst á blaði í þeim athug- unum, enda ekki lengur um aðrar lóðir að ræða við höfnina, nema ef vera skyldi við Straumsvík. I stjóm Faxafrosts eru: Bjöm Haraldsson frá Ok, sem er stjórn- arformaður, Birgir Ómar Har- aldsson Jöklum, sem er varafor- maður, Ágúst Einarsson, Jöklum, Sveinn Ingólfsson, Skagstrend- ingi og Guðmundur Guðmunds- Framkvœmdir við 1.200 fermetra frystigeymslu eru (fullum gangi, eins ogsjá má á meðfylgjandi mynd, en son, Hrönn. hún er staðsett upp af Suðurgarðinum. Fyrirtækin sem eru eigendur að Faxafrosti h.f. eru eftirtalin: Ok h.f., Skagstrendingur h.f., Brein- holt, sem er danskt með aðalat- hafnasvæði í Esbjerg, Nesskip h.f., Jöklar h.f. og Hrönn h.f. Skagstrendingur og Hrönn eru útgerðarfyrirtæki og er Guðbjörg- in á ísafirði m. a. gerð út af Hrönn. Ok h.f. og Nesskip h.f. gera út nokkur flutningaskip, sem kunn- ugt er, en Jöklar h.f. er dótturfyr- irtæki annars stærsta fiskútflytj- enda landsins, Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, en það fyrir- tæki gerir út flutningaskipið Hofs- jökul. Breinholt í Esbjerg er m.a. umboðsmaður Ok og hefur yfir að ráða stórum frystigeymslum þar í landi. vina -sjábls.6 Afmælis- hátíðar- höldin -sjá bls.4-5

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.