Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 13.07.1988, Qupperneq 1

Fjarðarpósturinn - 13.07.1988, Qupperneq 1
^jllS ^ tnw FEREJASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266 FMRDflR 25.TBL. 1988-6. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ VERÐ KR. 50,- M K vTtnr^ FERÐASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266 Stórmeistaramir mætast í Hafnarborg eftir mánuð Skákþing íslands, íslandsmeist- aramótið í landsliðsflokki, verður haldið í Hafnarborg dagana 13. til 29. ágúst n.k. Þetta verður eitt sterkasta mót, sem haldið hefur verið hérlendis. Þar mætast svo til allir stórmeistarar landsins. Það er Skákfélag Hafnarfjarðar sem er mótshaldari, bæjarsjóður Hafnarfjarðar stendur straum af kostnaði, en Sparisjóður Hafnar- fjarðar styrkir það einnig. Keppnin í landsliðsflokki á Skákþingi íslands er eitt sterkasta mót sem haldið er hérlendis á ári hverju. Hingað til hefur það verið haldið á vorin, en nú hefur það verið flutt til, enda talið hag- kvæmara fyrir skákmeistarana, að sögn Þráins Guðmundssonar for- seta Skáksambandsins. Tvö efstu sætin á mótinu veita rétt til setu í Olympíuliði og á svæðamótum. Verðlaun verða þau hæstu sem hingað til hafa þekkst, eða 350 þús. kr. heildarverðlaun. Allar líkur eru á að sögn Þráins, að hér verði um mjög sterkt mót að ræða. Þátttakendur verða: Margeir Pétursson, Jón L. Árna- son, væntanlega Karl Þorsteins, Þröstur Þóhallsson og Hannes Hlífar Stefánsson. Ekki er endan- lega ljóst hvort Helgi Ólafsson verður með, en miklar líkur á því. Þá verða tveir sigurvegarar úr áskorendaflokki á mótinu, þ.e. þeir Róbert Harðarson og Þráinn Vigfússon. Þá fær mótshaldari, Skákfélag Hafnarfjarðar, að til- nefna tvo menn, en það verða þeir Ágúst Karlsson og Benedikt Jón- asson. Um boðssæti, sem einnig eru tvö, hafa tveir ungir efnilegir skákmenn sótt, Davíð Ólafsson og Jóhannes Ágústsson. Ef Helgi Ólafsson tekur ekki þátt í mótinu verður sæti hans skipað Ásgeiri Þór Árnasyni, en hann er bróðir Jóns L. Árnasonar. Ýmsir munu sakna nafns Jóhanns Hjartarsonar hér að framan en að sögn Þráins verður hann á kafi í undirbúningi fyrir World-Cup keppnina, sem verður hérlendis skömmu síðar. Þau voru aðfá’ann, enda veðrið til þess að finna sér verkefni utandyra. Það var enginn viðvaningsbragur á þessum hressu „bryggju- börnum" sem voru að dorga niður við höfn er Ijósmyndara Fjarðarpósts- ins bar að garði. Aflinn var ekkert slor; marhnútur og koli sem heimiliskötturinn hefði eflaust þegið með þökkum. Honum var gefið líf en örlög mansa voru ekki ráðin. Hafnfirðingur á mót „Collins- krakkanna“ Ungur Hafnflrðingur, Stef- án Freyr Guðmundsson, sem er 10 ára, og einn af efnileg- ustu skákmönnum okkar í drengjaflokki, hefur verið til- nefndur í hóp fjórtán stráka 13 ára og yngri til að taka þátt í Collins-Kids mótinu í Bandaríkjunum. Þetta er í áttunda skiptið sem mótið er haldið, en Íslendingar hafa farið með sigur af hólmi í sex skipti. Mótið verður haldið skammt frá New York 21. ágúst til 28. ágúst n.k. Sjá viðtal við Stefán Frey: „Það væri gaman að tefla við Jóhann Hjartarson“ á bls. 4 og5. Enn deilt um yfirkennarastööu Öldutúnsskóla: Kennarar mæltu ekki með Huldu Kennarar Oldutúnsskóla mæltu ekki með Huldu G. Sigurð- ardóttur í starf yfírkennara skóla síns, en Hulda hefur veríð settur yfírkennarí síðasta skólaár. Hún var meðal fjögurra umsækjenda um stöðuna. Kennararáðið mælti með Matthíasi Kristiansen að afstaðinni könnun meðal kennara, en þar hlaut hann meiri- hluta atkvæða. Skólastjóri skólans, Haukur Helgason, tók ekki afstöðu í mál- inu, ekki heldur þrír af kjörnum fulltrúum í skólanefnd. Tveir skólanefndarmenn, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, mæltu aftur á móti með Huldu og vísuðu til afstöðu sinnar við ráðningu henn- ar 1987. Ráðherra hefur ekki tek- ið afstöðu í málinu, en það er hann sem ákveður veitinguna. Þetta er í annað sinn sem deilur verða um ráðningu í þessa stöðu, en miklar pólitískar deilur urðu þegar Hulda var ráðin. Við afgreiðsluna í skólanefnd lögðu þrír fulltrúanna sem sátu hjá fram svohljóðandi bókun: „Með tilliti til forsögu ráðningar yfirkennara Öldutúnsskóla, sjáum við ekki ástæðu til að sinni að gera tillögu um hver umsækjenda skuli settur í stöðu yfirkennara Öldutúnsskóla skólaárið 1988-1989, en vekjum athygli ráðherra á umsögnum kennararáðs og skólastjóra Öldu- túnsskóla." Umsögn skólastjóra er svo- hljóðandi: „Ég tel ekki ástæðu til að ég taki þátt í þessu ráðningar- máli nú vegna forsögu þess. Ég vil taka fram, að samstarf mitt við yfirkennara skólans hefur ávallt verið gott.“ Aðrir umsækjendur um starfið voru þeir Gísli Svanberg Ásgeirs- son og Þórður Kristjánsson. Sam- kvæmt upplýsingum hjá Guð- mundi Magnússyni aðstoðar- manni menntamálaráðherra í !gær, hefur málið ekki borist til [afgreiðslu ráðherra. Fundargerðin var „sungin og samþykkf Það finnast stundum skemmtilegir punktar í annars harla leiði- gjömum fundargerðum skólanefndar bæjarins og skal hér einn slíkur festur á blað. í fundargerð frá 6. júlí s.l. segir svo um fundargerð „Styrkja- nefndar“: „Fundargerð „Styrkjanefndar" frá 1. júlí lögð fram, sungin og samþykkt." - Svo mörg voru þau orð.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.