Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.07.1988, Page 1

Fjarðarpósturinn - 20.07.1988, Page 1
AIK FERÐASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266 FMRÐflR pöstur/nn 26. TBL. 1988-6. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ VERÐ KR. 50,- dl|S FERÐASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266 Bæjarstjóri, Guðmundur Ámi Stefánsson, vegna bókana í byggingamefnd: Frétt Fjarðarpóstsins meira eóa minna rugl - Fjar&atpóstuHnn stendur við hvert orð, sem eftir honum var haft Bæjarstjóri, Guðmundur Árni Stefánsson, lagði fram á síðasta fundi byggingarnefndar Iangt skriflegt svar við fyrirspurnum í byggingarnefnd vegna fréttar Fjarðarpóstsins. Þar segir hann m.a., að frétt Fjarð- arpóstsins frá 29. júní si. sé „að meira eða minna leyti rugl“, og „að honum séu gerðar þar upp skoðanir fjarri raunveruleika." Hann segist ennfremur aldrei hafa fundið fyrir neinum ágreiningi nefnda á milli um afgreiðsiu mála og að um umrætt mál sé „algjör samstaða nefnda í millum og undir engum kringumstæðum hafi verið höfð uppi orð, sem vísa á hið gagnstæða“, svo honum sé kunnugt. f Ummaeli á bæjarstjómarfundi draga diik áeftirsér Eyggingamefnd boðar bæjarstjóra á fund og kref st skriflegra svara Sámskiptaörðúgíéikar milli nefnda með að gæti náð fram að ganga, þeir sem sátu umræddann bæjar- jafnvel með ráðherraúrskurði. stjórnarfund. Auk bæjarfulltrúa, Það skal hér tekið fram, að í umræddri frétt Fjarðarpóstsins sagði að Tryggvi Harðarson hefði flutt tillögu á fundinum um að nefndirnar tvær, byggingarnefnd og skipulagsnefnd, yrðu kallaðar saman til fundar hið bráðasta. Svo rétt sé farið með, var Tryggvi með tillögu sinni um að fundur þessi yrði haldinn hið skjótasta að ítreka tillögu sama efnis frá í apr- ílmánuði. Hér skulu að lokum taldir upp voru viðstaddir umræðurnar bæjarritari, tíðindamaður Fjarð- arpóstsins og Halldór Árni Sveinsson frá Útvarpi Hafnar- fjarðar: Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Ingvar Viktorsson, Tryggvi Harð- arson, Valgerður Guðmundsdótt- ir, Árni Grétar Finnsson, Hjördís Guðbjörnsdóttir, Magnús Jón Árnason, Ólafur Proppé, Sigurð- ur Þorleifsson og Þórarinn Jón Magnússon. Ummzli bæjarsljóra, Guð- i mundar Áma Stefánssonar, á síð- I asta bxjarstjómarfundi fyrir sumarleyfi fóm heldur betur fyrir brjóstið á byggingamefnd. í sam- hljóða bókun nefndarinnar á síö- asta fundi hennar, 6. júlí sl., kreij- ast þeir ítrekað skriflegra skýringa á ummzlum hans, höfðum eftir honum af fundinum í Fjarðarpóst- i inum daginn eftir. Einnig óskar I nefndin eftir þvi, að bzjarstjóri mzti á nzsta fund nefndarinnar, sem haldinn verðurfímmtudaginn 14. júlí n.k. kl. 8.15, þ.e. á morgun. í frétt Fjarðarpóstsins daginn eftir bxjarstjórnarfundinn, sem haldinn var 28. júní sl., er fjallað um umræður um það sem nefnt var á fundinum „samskiptaörðug- leikar" milli byggingarncfndar og skipulagsnefndar bzjarins. Bxjarstjóri gcrði þar grein fyrir afgreiðslum byggingarncfndar á [_málum. sem ckki voru Jðslu skipulags- m Inn i tUtfni vamþvkklir Uipuitpjiefndnr inu bvrrinfsr *ð Hnmsnbrnul 4, cn l.mp.kkl nefnd.nnnar fenfur þ.ert i idnr Jerö. um- þjkkl byffinf .mefndnr, sem l.mþjkkls tkipnl.ft midbKj.r- I mili bcjarstjóra, Guðmundar Bzjarsl jóri safði þó siit il Ama Siefinssonar. kom fram, að þeiia lillekna dxmi bryu fefn þarna cr um að rxða brcynngar i skipulafslöfum þyrfli kannski að þaki, scm byffinfarncfnd iclur brcyia traðfcsiu tkipulafi. Hann brjðla f bifa við skipulag. Skipu- sagði cinnig. að það gxú orðið lagtncfnd samþykkli aflur i móli afleiit fyrir bxjarbúa, ef bygfinf. bygginguna og lagði fram til amcfnd hcldi upptcknum hxiliof Sluðningt grcinargcrð höfundar ncilaði íólki um nauðsynlegar lag- miðbxjartkipulagsins, Sifurþórt fxringar i húsum sfnum. Aðaltieinssonar. Flcih dxmi munu vcra um slik- 1 mili bxjarfulltrúa kom m.a. ar afgreiðslur, l.d. bcnri bxjar- fram, að ckki en* xrið Ijós mörkin sljóri i affrciðslu ncfndarinnar i i milU vcrkaviða þcssara ncfnda. bciðni um að byggð veröi sólstofa :f við húsiðað Hverfisfðiu24. Bygg- ingarncfnd bcndir f affrciðslu sinni bxjarstjöm i. að samkvxmi miðbxjartkipulafi cift umrxil hús að vikja. Nokkrar umrxður fóru fram um milið og gerði Tryffvi Harð- arson það m.a. að nllðfu sinni. að ncfndir þcssar yrðu lciddarsaman og reyni að finna lausn i þcssum rxða kxmi. ■m ^ Mál þetta er tilkomið vegna umræðna á síðasta fundi bæjar- stjórnar fyrir sumarfrí, sem Fjarð- arpósturinn greindi frá. Þar ræddi bæjarstjóri um afgreiðslu bygg- ingarnefndar á tilteknum málum og sagði m.a., svo það sé hér ítrekað, að það gæti orðið afleitt fyrir bæjarbúa, ef byggingarnefnd héldi uppteknum hætti og neitaði fólki um nauðsynlegar lagfæring- ar á húsum sínum. Það skal ennfremur hér upplýst, sem ekki kom fram í frétt Fjarðarpóstsins á sínum tíma, að bæjarstjóri sagði einnig í þessum umræðum, að rifta mætti niður- stöðum byggingarnefndar með ráðherraúrskurði, ef þess þyrfti á að halda. Það skal hér ítrekað, að Fjarð- arpósturinn stendur við hvert orð sem haft er eftir bæjarstjóranum í umræddri frétt. Ef ruglingslega er sagt frá í fréttinni, og „málum hrært þar saman í belg og biðu“, eins og bæjarstjóri segir einnig í skýrslu sinni, kemur það einvörð- ungu til af því að bæjarstjóri hefur þá flutt mál sitt ruglingslega og í belg og biðu. Hann ræddi þessi mál a.m.k. öll undir því sama for- orði, að afgreiðslur byggingar- nefndar gætu orðið afleitar fyrir bæjarbúa og þar þyrfti að verða á breyting, sem hann sagðist reikna y s«é Fjarðarpósturinn fer í sumarfrí Fjarðarpósturinn fer frá og með þessu tölublaði í sumarfrí næstu tvær vikurnar. Næsta blað, 27. tbl., kemur því út miðvikudaginn 10. ágúst n.k. Eftir sumarfrí verða þær breytingar, að blaðið verður ekki leng- ur selt í áskrift. Ástæðan er sú, að innheimta blaðsins vegna áskrifta hefur gengið illa. Ennfremur sjá útgefendur sér ekki fært að standa undir þeirri gífurlegu vinnu sem fvleir áskrifendaumsjón. Þess í stað verður lausasölu- skiljanlega síðar til viðtakenda. kerfið styrkt. Blaðsölubörnin okkar munu áfram ganga í hús í hverfum og bjóða blaðið til sölu. Þau munu fá í hendur núverandi áskrifendalista sér til halds og trausts. Þá verður lausasala á útsölustöðum efld. Við munum þó áfram bjóða áskrift að blaðinu í pósti. Þann- ig kostar hvert eintak 60 kr. en með því móti berst blaðið Við biðjum hina fjölmörgu áskrifendur okkar velvirðingar á þessum breytingum, en því miður sjáum við okkur ekki fært að standa undir rekstrinum að óbreyttu. Við notum tækifærið og ósk- um lesendum okkar gleðilegrar verslunarmannahelgar, sérstak- lega verslunar- og skrifstofufólki sem helgin er tileinkuð. Fyrsta skóflustungan tekin að Setbergsskóla Tvö börn, þau Jóna Kristín Heimisdóttir og Hjalti Harðarson, tóku fyrstu skóflustungurnar að Setbergsskóla sl. miðvikudag. Gert er ráð fyrir, að fyrri áfanga hússins verði lokið fyrir 1. september 1989 og að þá hefjist kennsla í skólanum. Við athöfnina ávarpaði bæjar- stjóri, Guðmundur Árni Stefáns- son, viðstadda og sagði m.a., að skólinn yrði byggður í tveimur áföngum. Samtals verður hann 3.489 fermetrar og mun þar verða kennt í öllum aldurshópum grunnskólans, þ.e. frá 6 ára upp í 9. bekk. Tvær bekkjardeildir verða í hverjum nemendaárgangi. Björn Hallsson arkitekt hefur teiknað Setbergsskóla, en hann hefur einnig verið aðalhönnuður hverfisins. I fyrsta áfanga verða sjö almennar kennslustofur, tvö hóprými og aðstaða fyrir umönn- un yngstu nemendanna utan kennslustunda. Þar verður einnig setustofa fyrir nemendur, tón- menntastofa og fjölnýtisalur. Þar er gert ráð fyrir íþróttakennslu fyrir yngstu nemendurnar, einnig eru þar búnings- og baðklefar. Ennfremur er í þessum áfanga skólasafn, skólaskrifstofa, skrif- stofur skólastjóra og kennara, fundarherbergi, kennarastofa og vinnuaðstaða fyrir kennara, svo og húsnæði fyrir húsvörð og heilsugæslu. Nú standa yfir byggingarfram- kvæmdir við Engidalsskóla. Þar er verið að bæta tæplega 600 fer- metrum við húsnæðið, sem tekið verður í notkun í haust. Á sama tíma verður tekin upp kennsla 11 og 12 ára barna í skólanum, en elstu nemendurnir hafa hingað til verið 10 ára.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.