Fjarðarpósturinn - 24.08.1988, Síða 1
^ik
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
Fátt er um
skipakomur
Lítið hefur verið um skipakom-
ur í höfnina síðustu vikur, að sögn
Viðars Þórðarsonar á hafnarskrif-
stofunni. Engin flutningaskip
voru í höfninni í gær, að undan-
skildum nokkrum togurum sem
bíða eftir að komast á veiðar.
Viðar sagði að á sama tíma í
fyrra og árið þar á undan hefði
verið mjög mikið að gera á þess-
um árstíma. Ástæður þess hefðu
m.a. verið yfirvinnubann við
höfnina í Reykjavík, þannig að
skip sem komu til landsins um
helgar lögðust að bryggju í Hafn-
arfirði. Þetta virtist ekki gilda nú,
þó svo yfirvinnubann væri enn við
líði við Reykjavíkurhöfn.
Viðar sagði aðspurður, að eitt
skip væri væntanlegt á fimmtu-
dag,en þaðværiHofsjökull. Skip-
ið hefur undanfarna mánuði kom-
ið með á milli 70-80 bíla í hverri
ferð, bæði notaða bíla og nýj a. Nú
er aðeins einn sjúkrabíll um borð.
Tvö hafnfirsk
íkaupunumá
Granda h.f.
Tvö hafnfirsk fyrirtæki eru
meðal þeirra sem boðið hafa í
hlut Reykjavíkurborgar í
Granda h.f., en tilboðið er
upp á hálfan milljarð kr.
Fyrirtæki þessi eru Hvalur
h.f. og Venus.
^ik
KGr
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
Dræmaðsókn
íkaffistofu
Hafnarborgar
Þrátt fyrir að lítið lát hafi verið
á kvörtunum bæjarbúa síðustu
árin yfir deyfðinni í miðbænum,
þá hefur aðsókn að nýju kaffistof-
unni í Hafnarborg verið með ein-
dæmum léleg. Eigendur Fjörunn-
ar hafa þegar hætt rekstrinum,
sem fyrirhugaður var í tilrauna-
skyni í þrjá mánuði. Guðmunda
Guðrún Björgvinsdóttir hefur
tekið að sér að reka stofuna,
a.m.k. fyrst um sinn.
Hið sama má segja um aðsókn-
ina að sjálfri menningar- og lista-
stofnuninni. Þetta kemur m.a.
fram í grein, sem Sverrir Magnús-'
son, frumkvöðull að stofnuninni,'
ritar í miðopnu Fjarðarpóstsins.
Sverrir skrifar grein sína til
andsvara þeim staðhæfingum,1
sem komið hafa fram í „Hafn-'
firska fréttablaðinu", að fjöl-
margir gestir, „heilu rúturnar“ af;
þeim, hafi endurtekið komið að;
Hafnarborg lokaðri. Sverrir telur'
síðan í greininni saman þá gesti’
sem borið hafa að garði og virðist'
ekki þurfa samlagningarvél við1
það verk. '
Það yrði fjölmörgum mikil von-
brigði, ef ekki tekst að glæða mið-
bæinn lífi. Kaffistofan er opin
daglega frá kl. 14 til 19 og lengur á
kvöldin á meðan Skákþingið
stendur yfir.
FJflRÐflR
MÉmpósturmn
28. TBL. 1988-6. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST
VERÐ KR. 50,-
Dagvistunarmálin stefna í óefni
Ef fram heldur sem horfir, stefnir í óefni hvað varðar dagvistunar-
mál barna. Þrátt fyrir að stofnanir hafi stöðugt verið í byggingu og dag-
vistunarpláss í bænum sé nú 561, lengjast biðlistar sífellt og engan veg-
inn er unnt að fullnægja þörfum forgangshópa um vistun barna. Fél-
agsmálastofnun hefur gripið til þess ráðs, að greiða niður „ömmu- og
afagæslu“ barna einstæðra foreldra, á sama hátt og gæsla hjá dag-
mönnum er greidd niður.
Þetta kemur fram í viðtali við
Mörtu Bergmann forstöðumann
félagsmálastofnunar í Fjarðar-
póstinum í dag. Það kemur einnig
fram í viðtalinu, að þróunin í
þessum málum virðist ógnvænleg.
Marta bendir í því sambandi á
könnun sem landlæknisembættið-
lét nýverið gera, en hún leiddi í
ljós, að um fjórðungur barnafjöl-
skyldna eru nú fjölskyldur ein-
stæðra foreldra.
Niðurgreiðslan á „ömmu- og
afagæslunni" er um margt merki-
legt framtak og gæti vísast verið
fyrsta skrefið í þá átt að greiða
foreldrum fyrir að vera heima og
gæta barna sinna. Það kemur þó
fram í viðtalinu við Mörtu, að
margt sé þar í veginum, bæði
félagslegt og hvað varðar stjórn-
málin.
Þá segir Marta ennfremur, að
starfsmenn félagsmálastofnunar j
verði sífellt varir við, að léleg
aðstaða barna komi niður á
þroska þeirra, t.d. sé málþroski
oft á tíðum mjög bágborinn. Hún
segir alltof margar fjölskyldur í
upplausn, margar láglaunafjöl-
skyldur hafi orðið gjaldþrota síð-
ustu árin og beðið skipbrot.
Fátækt er fyrir hendi í Hafnar-
firði. Á síðasta ári greiddi félags-
málastofnun framfærslu til 150
einstaklinga. Þetta kemur einnig
fram í viðtalinu og margt fleira
sem varðar málefni hafnfirskra
barna og fjölskyldna.
Sjá: „Ommu- og afagæsla“
niðurgreidd á bls. 7.
Hannes Hlrfar steinsnar
frá alþjóðameisturunum
AUt útlit er fyrir, að alþjóða- í Hafnarborg. Hann þarf að násjö umferðir eru eftir hefur hann þeg-
meistaratitillinn verði í höfn hjá stigum á mótinu til að ná þessum ar náð sex stigum.
Hannesi Hlífari í lok skákþingsins þriðja áfanga. Nú þegar þrjár Að loknum skákunum í gær-
kvöldi var Margeir Pétursson efst-
ur með sjö vinninga, en hann vann
Hannes Hlífar í gærkvöldi. f öðru
sæti er Jón L. Árnason með sex og
hálfan, en hann sigraði Benedikt
Jónasson í gær. í þriðja sæti er síð-
an Hannes Hlífar.
Fjórða sætið skipar síðan Karl
Þorsteins, en hann vann Þröst
Þórhallsson í gær. Hafnfirðingur-
inn Ágúst Karlsson skipar fimmta
til sjötta sætið á mótinu, ásamt
Róberti Harðarsyni. Ágúst hefur
staðið sig vel á mótinu og virðist
ætla að bæta við sig ELÓ-stigum.