Fjarðarpósturinn - 28.09.1988, Síða 1
M K
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
Forstöðumaður Hafnarborgan
FMRÐflR
pösturinn
32. TBL. — 6. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPT.
VERÐ KR. 50,-
/ifc
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
Enn er byggingamefnd í sviðsljósinu hjá bæjastjóm:
„Kemur vel á vondann ai verja hana“
- sagói bæjarstjóri m.a. í andsvömm við fyrirspumum Jóhanns Bergþórssonar.
Forseti bæjarstjómar
meðal 11 umsækjenda
Umsækjendur um stöðu forstöðumanns Hafnarborgar eru ellefu.
Það vekur athygli að einn umsækjendanna er forseti bæjarstjórnar,
Jóna Ósk Guðjónsdóttir. Umsóknarlistinn var lagður fyrir síðasta
fund bæjarráðs, en vísað til umsagnar stjórnar Hafnarborgar.
Umsækjendur eru eftirtaldir: dóttir, Sunnuvegi 12. Keneva
Ragnheiður Gestsdóttir, Aust-
urgötu 16. Jóna Ósk Guðjóns-
dóttir, Öldutúni 6. Petrún Péturs-
Jóna Ósk Guðjónsdóttir
Kunz, Hverfisgötu 25. Soffía Stef-
ánsdóttir, Heiðvangi 11. Guð-
bjartur Gunnarsson, Hófgerði 6,
Kópavogi. Margrét Guðmunds-
dóttir, Suðurbraut 14. Vilborg
Sigurjónsdóttir, Stekkjarhvammi
29, Ragnhildur Jónsdóttir,
Sævangi 21. Síðan æskja tveir
umsækjendur nafnleyndar.
Ekki náðist samband við Jónu
Ósk Guðjónsdóttur í gær til að
spyrja hana álits á, hvort það sam-
ræmdist að hennar mati, að forseti
bæjarstjórnar sækti um slíkt em-
bætti. Hún er stödd erlendis um
þessar mundir og stýrði Magnús
Jón Arnason formaður bæjarráðs
því bæjarstjórnarfundi í gærdag í
forföllum hennar.
Súvartíd
Sú var jú tíðin, en nú hefur snjóað í Esjuna. Þessi mynd var reyndar tekin í Gaflaraferð á Bendidorm
í síðustu viku, en minnir óneitanlega á liðna tíð. Njótendur sumars og sælu þarna eru, talið frá vinstri:
Bjarni Jónsson, Sigrún Pétursdóttir, Kristín Sigurbjörnsdóttir, Jón Arnar Jónsson. Lengst til hægri, ef
myndin prentast rétt, rétt sést í hluta af honum Jóni í Lækjarkoti, eða kannski bara buxurnar hans.
Sjá bls. 3.
Eigendaskipti
Eins og fram kom í 7. tölublaði Fjarðarpóstsins í aprflmánuði sl.
urðu þær breytingar á rekstri blaðsins, að Sigurður Sverrisson og
fleiri tóku við útgáfunni af undirrituðum, sem þó töldust enn eig-
endur Fjarðarpóstsins.
Nú hefur sú breyting orðið, að Fríða Proppé, núverandi ritstjóri
blaðsins, telst frá og með 1. október n.k. einn eigandi Fjarðar-
póstsins.
Undirritaðir árna Fríðu Proppé alls hins besta og vita, að Fjarð-
arpósturinn er í góðum höndum undir hennar stjórn. Við vonum,
að blaðið skipi áfram fastan sess í bæjarlífl Hafnfirðinga eins og
það sannarlega hefur gert hingað til.
Ellert Borgar Þorvaldsson
Rúnar Brynjólfsson
Guðmundur Sveinsson
Seinir starlsmenn?
Bæjarstarfsmenn og menn í
vinnu fyrir þá voru skammaðir
fyrir seinagang á síðasta bæjar-
ráðsfundi. Þetta var gert í sér-
stakri bókun sem send var við-
komandi.
Svo segir í fundargerð bæjar-
ráðs um málið. „Bæjarráð minnir
bæjarverkfræðing, skipulags-
stjóra og Björn Hallsson, arki-
tekt, á samþykkt bæjarráðs um
fjölbýlishúsabyggð í Fjárhúsholti
frá 10. mars s.l. Væntir bæjarráð
þess, að ofantaldir aðilar þurfi
ekki öllu lengri tíma til að ljúka
umbeðinni vinnu, þannig að unnt
verði að auglýsa lóðirnar lausar til
umsóknar.“ - Svo mörg voru þau
orð.
Byggingarnefnd kom enn til
umræðu á bæjarstjórnarfundi í
gær. Nú var það Jóhann G. Berg-
þórsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, sem kvaddi sér
hljóðs og kvartaði yflr afgreiðsl-
um nefndarinnar. Hann sagði
m.a., að hann hefði í langan tíma
setið hjá við afgreiðslur bæjar-
stjórnar á fundargerðum bygg-
ingarnefndar vegna óljósra
afgreiðslna hennar. Bæjarstjóri
stóð upp til svara og sagði þá m.a.:
„Það kemur vel á vondann að
þurfa að verja byggingarnefnd“.
Jóhann kvaddi sér hljóðs og
kvaðst alls ekki sáttur við
afgreiðslur nefndarinnar og taldi,
að afgreiðslur nefndarinnar ættu
að vera skýrari, bæði þegar þær
samþykktu og synjuðu erindum
bæjarbúa. Nefndi hann þar til
nokkur erindi, m.a. frá Sólvangi
um sólhús, sem hann sagði enga
skýringu hafa komið um neitun á.
Hann sagði einnig, að það þyrfti
að taka til endurskoðunar af-
greiðslutíma embættismanna
bæjarsins á þessu sviði. í dag
þyrfti að leggja inn erindi á föstu-
degi til að fá afgreiðslu á fimmtu-
degi. Áður hefði nægt að leggja
inn á mánudegi til að fá afgreiðslu
á miðvikudegi. Hann kvaðst
æskja skjótra úrræðna í þessu
máli.
Guðmundur Árni bæjarstjóri
svaraði og kvað það koma vel á
vondann að þurfa að standa fyrir
vörnum fyrir hönd nefndarinnar.
Hann kom þó með skýringar á
tveimur neitunum bygginga-
nefndar, sem hann sagði byggða á
persónulegum upplýsingum. Ekki
svaraði hann neinu um neitunina
á sólbaðsstofu Sólvangs, þó svo
erindið væri ítrekað með framí-
gripi. Bæjarstjóri sagði að lokum,
að þó væri málið „hægt og bít-
andi“ að taka rétta stefnu. Hann
sagði einnig að lokum: „Ég skal
taka það upp sem bæjarstjóri og
embættismaður að lagfæra þetta.“
Fúsi froskagleypir Óvönduð meðöl Sólhúsi við
á plötu BenJohnsons Sólvang hafnað
-sjábls.2 ogSteingnms .^^1 -sjábls.4