Fjarðarpósturinn - 12.10.1988, Blaðsíða 5
FJARMR
pósturmn
RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÍÐA PROPPÉ
AUGLÝSINGAR: HJÖRDÍS ÞORSTEINSDÓTTIR
DREIFING: HALLDÓRA GYÐA MATTHlASDÓTTIR
LJÓSMYNDIR: FJARÐARPÓSTURINN OG RÓBERT ÁGÚSTSSON
SETNING, UMBROT, FILMUVINNA OG PRENTUN: BORGARPRENT
ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN
SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ REYKJAVÍKURVEGI 72 OG ER OPIN ALLA VIRKA
DAGA FRÁ KL. 10-17. SÍMAR 65174S OG 651945 (SÍMSVARI EFTIR LOKUN SKRIFSTOFU).
Forseti án meirihluta
Umsókn forseta bæjarstjórnar, Jónu Óskar Guðjónsdóttur, um
stöðu forstjóra Hafnarborgar hefur valdið meirihlutanum og sérstak-
lega Alþýðuflokksmönnum miklum vandræðum. Því er ekki að neita,
aö hrikt hefur í samstarfinu síðustu daga og niðurstaðan er vand-
ræðaleg, svo ekki sé meira sagt.
Það er vissulega íhugunarefni, sem Jóna Ósk bendir réttilega á i
viðtali I Fjarðarpóstinum I síðastatölublaði, hvortfólkáaðgjaldaþess
að nenna að taka þátt I bæjarmálastörfum. Hún kvaðst hafa áhuga á
forstjórastöðunni, en gera sér grein fyrir að hún yrði látin gjalda stöðu
sinnar, ef ekki sem forseti þá sem krati.
Það er hins vegar málsmeðferðin sem vekur athygli og spurningar.
Jóna Ósk mun hafa samþykkt að draga umsóknina til baka um leið og
hún kom utan og gerði sér grein fyrir að hún hafði ekki stuðning eigin
meirihluta. Eflaust hefði hún átt að kanna þá stöðu, áður en hún fór
utan, jafnvel áður en hún sótti um. Sú spurning vaknar, hvort henni
hafi jafnvel veriö staðan Ijós og að hún hafi viljað að þetta kæmi fram.
Alþýðuflokksmenn eru í vægast sagt erfiðri stöðu vegna máls
þessa. Bókanir bæjarstjóra í fundargerð stjórnar Hafnarborgar eru
með því vandræðalegra sem sést hefur á spjöldum bæjarmála-
sögunnar.
Bæjarstjóri segir í sérstakri bókun, að honum hafi ekki unnist tími til
að taka afstöðu til umsækjenda, þar sem Jóna Ósk, sem hann hafi
ætlað að styðja, hafi dregið umsókn sína til baka. Tími hans til að taka
afstöðu til hinna umsækjendanna hafi því verið of skammur, en það
var látið koma fram í upphafi fundargerðarinnar, að bréfið hefði ekki
borist fyrr en hálftíma fyrir boðaðan fund. Bæjarstjóri og fulltrúi
Alþýðuflokksins mættu þó áfundinn meðtværbókanir, báðarvélritað-
ar og víst er að fáir trúa því að bæjarstjórinn hafi ekki vitað af bréfi
Jónu Óskar fyrr.
Það kemur víst fáum á óvart, sem fylgjast með bæjarmálunum, þó
fleira eigi eftir að koma upp í meirihlutasamstarfinu eftir þessa uppá-
komu. Staða fjármála bæjarins er samkvæmt athugunum Fjarðar-
póstsins lakari en menn reiknuðu með, en upplýsinga þar um er að
vænta síðar í vikunni. Bæjarstjóri hefur boðið embættismönnum sín-
um að herða sultarólina og fjárhagserfiðleikar hafa ætíð reynt á í sam-
búðum. - Það er því full ástæða til að fylgjast grannt með og það mun
Fjarðarpósturinn gera hér eftir sem hingað til.
Og enn veröa allir hissa
Alltof mikill hraðakstur og gífurlegur fjöldi umferðarslysa hefur sett
svip sinn á þjóðlífið síðustu vikur. Það virðist þar að auki sannast enn
á ný, að Vetur konungur kemur ökumönnum gjörsamlega í opna
skjöldu. Það er ekki fyrr en annar hverökumaður hefur lent í vandræð-
um vegna snjóa og hálku að farið er að huga að vetrarbúnaði bifreið-
anna.
Allt hefur þetta kæruleysi okkar kostað þjóðarbúið ómælda fjár-
hæðir, að frátöldum þjáningum og eyðilögðu lífi ótaldra einstaklinga.
Hvernig væri að drífa sig með bílinn á dekkjaverkstæði og láta stilla
Ijósin í leiðinni?
Páll í Pallabúð hefur selt verslunina og hættir n.k. laugardag eftir lúmlega hálfarar aldar verslunarrekstur.
0, PU HYRIHAFNARFJORÐUR:
„Eg held,að annar hver ráðsetturHafn
firðingur hafi verið sendill hjá mér“
Páll Guðjónsson í Kastalanum, sem betur er þekkt undir nafninu
Pallabúð, hefur selt verslunina og hættir starfrækslu hennar á laugar-
dag. Páll er elstur starfandi kaupmanna í Hafnarfirði og hóf hann starf-
rækslu Pallabúðar sjálfur í júlímánuði 1939. Hann hafði þá verið við
verslunarstörf allt frá fermingu, hóf feril sinn sem sendisveinn hjá Jóni
Mathiesen kaupmanni á fermingarárinu, 1932.
Það má segja, að þegar Páll legur maður og sá besti skóli sem
ma segja,
hættir rekstrinum nú á laugardag-
inn sé orðið fáliðað í þeim hópi
kaupmanna, sem man tímanna
tvenna og jafnvel þrenna, eins og
Páll. Við heimsóttum Pál ogeigin-
konu hans, Huldu Sigurjónsdótt-
ur, á hlýlegt heimili þeirra fyrir
ofan Pallabúð við Hverfisgötuna
um helgina. Erindið var að rabba
örlítið um liðinn tíma og fá smá-
innsýn í langa verslunarsögu
þeirra hjóna.
Páll er fæddur frostaveturinn
mikla, 1918, á Vatnsleysuströnd,
en flutti ásamt fjölskyldu sinni
átta ára gamall í Fjörðinn og hef-
ur verið hér síðan. Hann sagðist
hafa byrjað barnungur að breiða
fisk og vinna ýmis störf, eins og
títt var á þeim árum, en ferming-
arárið hóf hann störf hjá Jóni
Mathiesen kaupmanni sem sendi-
sveinn. Hann rak þá verslun við
Strandgötuna. Páll gerðist síðar,
eða árið 1936 verslunarstjóri í
verslun Jóns við Hverfisgötu 56,
en keypti hana síðan sjálfur árið
1939.
Um kaupin sagði Páll: „Ég var
þá ekki orðinn myndugur, en
maður varð að vera orðinn 21 árs
til að fá borgarabréf og verslunar-
leyfi. Bergur Jónsson bæjarfógeti
sagði þá við mig: „Þú bara byrjar
Páll, ég redda þessu.“ Hann
útvegaði mér síðan bréfið og ég
man að það kostaði 136 kr. Berg-
ur var góður granni og verslaði við
mig í fjölda ára. Hann bjó hér á
Sunnuveginum.“
Páli og Huldu var tíðrætt um
Jón Mathiesen og hans ágætu
konu. Sagði Páll m.a. um vistina
hjá honum: „Hann var stórkost-
Álftanes hjólandi og með hand-
vagna. „Ég held að annar hver
ráðsettur Hafnfirðingur hafi verið
sendill einhvern tíma hjá mér á
þeim árum“, sagði Páll m.a. um
þetta tímabil.
Páll rak Pallabúð fram til ársins
að skilja, gífurleg.
Varðandi breytingar á verslun-
arháttum síðustu 10-20 árin sagði
Páll að hún væri ótrúlega mikil.
Tilkoma stórmarkaðanna hefði
breytt miklu, en hann var lítið
hrifinn af stöðu verslunarinnar í
ég hefði getað fengið. Sjálf skóla-
gangan var aðeins barnaskóli, en
allt mitt lærði ég af Jóni. Það var
enda ætíð mikil vinátta með okk-
ur alla tíð.“ Hulda bætti því við,
að Jón hefði verið svaramaður
Páls við giftingu þeirra, en þau
giftu sig fyrsta vetrardag árið
1940. Börn þeirra eru fjögur.
Við spjölluðum nokkuð um
verslunarhætti og breytingar á
þeim. Páll sagði m.a. um verslun-
arhætti, þegar hann hóf störf:
„Það hefur mikið breyst. Á þeim
árum var öll vara keypt í sekkjum
og síðan vigtuð við búðarborðið.
Kjöt var höggvið á höggstokk
handa hverj um og einum og sagað
niður með handsög. Þegar Jón
verslaði hér fyrst var hér matvara
og fyrir utan var seld steinolía."
Þetta var verslunarmátinn allt
fram yfir stríðsárin, en upp
þeim fer að koma sekkjuð vara.
Páll segir og að stríðsárin og árin
upp úr þeim hafi fátækt og
skammtanir sett mikinn svip á
verslun. „Ég gleymi því seint,
hversu erfitt var hjá mörgum og
það reyndi oft á að reka verslun.
Þá giltu til dæmis bæjarávísanir
sem borgun, og það var oft engin
leið að losna við þær. Heildsalar
vildu ekki sjá þær sem greiðslu,
helst var að stórir skattgreiðendur
gætu notað þær. Þá var einnig til
siðs að senda allar vörur heim til
fólks.“
Eftirstríðsárin voru ár mikilla
breytinga. Páll sagði, að þá hefði
hann fengið fyrsta bílinn sinn frá
Englandi. Það þótti mikill munur,
en áður voru sendlar sendir með
vörur allt út í Setbergsland og út á
Páll Guðjónsson og Hulda Sigurjónsdóttir á heimili sínu á loftinu yfir Pallabúð við Hverfisgötuna.
1958, en þá varð hann gjaldþrota
og starfaði frá þeim tíma allt til
ársins 1977 í Kjötverslun Tómasar
að Laugarvegi 2. Hann hélt hús-
inu við Hverfisgötuna og árið
1977 keypti hann verslunina á ný,
sem þá bar nafnið Kastalinn. Búið
var að breyta henni í sjoppu, en
Páll gerði hana á ný að búð kaup-
mannsins á hominu. Þar hefur
hann haft opið alla daga frá kl. 8
til 23.30 og vinnan er, sem gefur
Styrktarfélag aldraðra
alls ekki hætt störfum
Fjarðarpóstinum barst eftirfarandi bréf vegna fréttar í síðasta blaði
þess efnis, að Styrktarfélag aldraðra væri hætt störfum. Þetta er rangt,
eins og kemur fram í meðfylgjandi yfirlýsingu frá stjórn félagsins.
Starfseminni „Opið hús“ hefur einvörðungu verið hætt um stund.
Frétt Fjarðarpóstsins byggist á röngum upplýsingum, sem blaðamanni
voru gefnar. Fjarðarpósturinn biður alla aðstandendur félagsins inni-
lega afsökunar á þessu ranghermi og vonast til að starfsemi Styrktarfé-
lagsins megi verða sem styrkust.
Hér fer á eftir bréf stjórnarinn-
ar: „Vegna fréttar í Fjarðarpóst-
inum hinn 5. þessa mánaðar um
Styrktarfélag aldraðra og þjón-
ustu þess við eldri borgara bæjar-
ins, vill stjórn Styrktarfélagsins
taka fram eftirfarandi:
1. Félagið er alls ekki hætt
störfum. Á síðasta sumri gekkst
Styrktarfélagið fyrir orlofsdvöl
aldraðra í Valhöll á Þingvöllum.
Dvöldu þar tveir hópar í viku
hvor, 25. ágúst til 1. september og
9. til 16. september.
2. Ástæður fyrir því, að starf-
semi, sem nefnd hefur verið
„Opið hús“ hefur verið lögð
niður, eru þær, að konur sem séð
hafa um þennan þátt starfseminn-
ar í sjálfboðavinnu, eru orðnar
þreyttar og lasburða, enda farnar
að eldast sjálfar og aðrir sjálfboð-
aliðar hafa ekki fengist til
starfsins, þótt leitað hafi verið
eftir.
3.Stjórn félagsins vill taka
fram, að vilji einhverjir sjálfboða-
liðar koma til starfa og sjá um
„Opið hús“, er félagið reiðubúið
að halda starfseminni áfram. Ef
einhver vill sinna þessu, þá er sími
formanns 51090.“
dag og sagði m.a.: „Það er óvinn-
andi vegur að reka verslun í dag.
Álagning er sáralítil, allt frá 10%
á mjólkurvöru. Ég hef reiknað
það út að hún þarf að vera að
minnsta kosti 26% til að standa
undir kostnaði. Þá hefur ríkið lagt
meiri og meiri vinnu á verslunar-
eigendur. Við erum áreiðanlega
eina stéttinn, sem ætlast er til að
vinni kauplaust fyrir ríkið. Sölu-
skattsálagningin er sett á okkur
sem aukavinna og það er gífurleg
vinna og nýjasta tiltækið er stað-
greiðslukerfið. Mér finnst það
engin furða að verslunin sé víðast
á hausnum.“
- Hvað með viðskiptavinina.
Hafa þeir breyst í gegnum árin?
„Nei, fólkið hefur ekkert
breyst, sem betur fer. Við höfum
alltaf átt miklu láni að fagna með
starfsfólk og viðskiptavini. Mig
langar að nota þetta tækifæri til að
þakka öllu mínu frábæra starfs-
fólki í gegnum tíðina og eins við-
skiptavinunum fyrir góða sam-
vinnu. Ennfremur er ég mjög
ánægður og stoltur yfir því,
hversu góða kaupendur ég fékk
að búðinni. Það eru góðir og
gegnir Hafnfirðingar, þau Jó-
hanna Þorbjörnsdóttir og Guð-
mundur Kr. Guðmundsson. Ég
óska þeim góðs gengis með versl-
unina“, sagði Páll í lok viðtalsins.
Hulda tók undir orð eiginmanns
síns og bað fyrir kærar þakkir til
alls þessa góða fólks.
Eins og lesendum er kunnugt,
að, að Páll gæti alls ekki aðgerðar-
laus verið. Hann væri búinn að
vinna alltof mikið síðustu árin, en
skilja mátti, að það passaði ein-
hvern veginn ekki inni í kortið, að
Páll settist í helgan stein.
Við kvöddum þau heiðurshjón,
þökkuðum veitingar og hlýtt
viðmót. Fjarðarpósturinn mælir
áreiðanlega fyrir munn við-
skiptavina Pallabúðar í gegnum
árin, er hann sendir þeim hjónum
heillaóskir á þessum tímamótum
og þakkir fyrir góða þjónustu.
„Bmgga saman beiskan drykk
Baldi, Grímur og Láfi“
þá er Páll þekktur fyrir lipurð og
hann er af gamla skólanum. Er ég
spurði hann, hvort hann væri hér
með sestur í helgan stein hvað
hann nei við. Hann myndi áreið-
anlega finna sér eitthvað við að
vera, - þ.e. starfa. Hulda skaut því
Fyrripartarnir hans Kristjáns Stefánssonar í síðasta blaði voru nokk-
uð erfiðir viðureignar, því erfitt er að finna orð sem rýmar á móti vatn,
og ekki er Proppé auðveldara viðfangs. Sæmundur Stefánsson, sem
Kristján skoraði á hafði þó botna á reiðum höndum og koma þeir hér
á eftir ásamt fyrripörtum Kristjáns.
Á Benidorm er best að vera
bjórinn kostar sama og vatn.
Iðrakveisu upp að skera,
ísafoldar hvítu skatn (ar).
og
Með Hagsýn fara hópar stórir
hagstæð kjör á sólarströnd.
Undu Hebbi og Hænsna-Þórir
harla kátir við sjónarrönd
og
Fjarðarpóstsins Fríða Proppé,
ferðast vítt í leit að efni.
Hygg ég fátt að frúna stoppe
fram á við hún ætíð stefni.
Við þökkum Sæmundi botnana
og ennfremur fyrripartana, sem
koma hér á eftir. Við skorum á
lesendur að reyna sig nú við kveð-
skapinn og senda okkur fyrir
hádegi n.k. mánudag.
Illa brúnir þeir aftur koma,
sem ægihvítir fóru út.
og
Eilíf blíða ■ bænum okkar,
blessunarrík vor kratastjórn.
og
Brugga saman beiskan drykk,
Baldi, Grímur og Láfi
Sæmundur skoraði síðan á
Ásmund Sigvaldason hjá Hag-
virki að setjast í hagyrðingastól-
inn í næsta blaði. Heimilisfangið
okkar er Reykjavíkurvegur 72,
þ.e. fyrir ofan Kostakaup, síman-
úmerin eru 65 17 45 og 65 19 45.
Útvarp Hafnarfjörðun
Skólamir með beinar útsendingar
Mikill áhugi er í öllum skólum
bæjarins á fjölmiðlum, sérstak-
lega Ijósvakamiðlum. Hafa náðst
samningar við Útvarp Hafnar-
fjörð um fasta útsendingatíma
skólanna á kvöldin. Munu allir
klúbbar, sem hafa þetta áhugamál
á oddinum, vera orðnir yfirfullir.
Að sögn Halldórs Árna
útvarpsstjóra hefur verið ákveðið
að raða kvöldum niður á skólana á
eftirfarandi hátt.
Mánudagur, Víðistaðaskóli frá
kl. 20-22.
Þriðjudagur, Útvarpsklúbbur
Lækjarskóla frá kl. 20-22.
Miðvikudagur, Útvarpsklúbbur
Öldutúnsskóla frá kl. 20-22 og
Útvarpsklúbbur
skóla frá kl. 22-24.
Flensborgar-
Föstudagur. Útvarpsklúbbur
Flensborgarskóla frá kl. 22-24.
Þá er í athugun að sögn Hall-
dórs Árna, að útvarpa beint frá
Vitanum á fimmtudagskvöldum.
Blöndu-starfsmenn Hagvirkis:
Boöin flugferö
til Amsterdam
Starfsmenn Hagvirkis við ákveðið að bjóða öllu starfsfólki
Blöndu fengu glaðning frá fyrir- sínu, ásamt mökum, sem er um
tækinu nýverið, því ákveðið var 700 manns, út að skemmta sér
að gefa þeim íbónus helgarferð til þann 20. október n.k. Hótel
Amsterdam. Island verður fyrir valinu og vænt-
Starfsmennirnir geta sjálfir anlegaverðurþarkáttáhjalla.
ráðið, hvenær þeir fljúga til
Amsterdam á tímabilinu frá októ-
ber til mars.
Þá hefur Hagvirki einnig
Hafirðu
(jj smakkað vín
- láttu þér þá AHDREI
detta í hug
að keyra!
||U^lFEROAR
Flóamarkaður
Hörkudugleg kona á besta
aldri, með 20 ára reynslu í
allskyns skrifstofustörfum
óskar eftir vinnu á skrifstofu í
Hafnarfirði eða Garðabæ.
Uppl. í síma 52743.
Roeckl-ullarvörumar
komnar.
Nýjustu vetrarlitimir
Húfur, treflar, hanskar
og ullarsjöl úr kasmírull
Strandgötu 32*52615
EURDCARD
DEKKIÐ
Reykjavíkurvegi 56
Sími 51538
Nú er tími
vetrardekkjanna
Bjóöum úrval af nýjum dekkj-
um
ásamt sóluöum Norðdekk
Vanir menn.
4
5