Fjarðarpósturinn - 26.10.1988, Page 1
>11IC
^ IkláH#
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
FJflRDflR
W^Mpostur/ni,
36.TBL. 1988-6. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 26. OKT.
VERÐ KR. 50,-
IklH#
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
Óvænt nióurstaia varðandi nýjan skólastjóra Tónlistarskólans:
Om Arason kjörinn
- en hann hlaut ekkert atkvæði í skólanefnd
Örn Arason gítarleikari var kjörinn skólastjóri Tónlistarskólans í
Hafnarfirði í gær með fímm atkvæðum bæjarfulltrúa. Gunnar Gunn-
arsson tónlistarkennari hlaut þrjú atkvæði og Guðni Þ. Guðmundsson
þrjú atkvæði. í skólanefnd hlaut Gunnar Gunnarsson aftur á móti þrjú
atkvæði og Guðni tvö. Örn hlaut þar ekkert atkvæði. Gengið hefur á
boðsendingum milli bæjarráðs og skólancfndar síðustu daga vegna
máls þessa og kom til nokkurrar umræðu um þær á bæjarstjórnarfund-
inum.
Skólanefnd fjallaði um
umsóknirnar níu á fundi sínum
12. október sl. og fékk skóla-
nefndin „tvo valinkunna menn á
tónlistarsviðinu" til að leggja fag-
legt mat á menntun umsækjenda
og stjórnunarreynslu, eins og seg-
ir í fundargerðinni. Síðan var
gengið til atkvæða í skólanefnd og
hlaut Gunnar þar þrjú atkvæði og
Guðni tvö, eins og að framan
greinir.
Á bæjarráðsfundi 20. október
var fjallað um fundargerðina og
eftirfarandi bókun gerð: „Bæjar-
ráð telur, að sú aðferð sem skóla-
nefnd viðhafði við (svokallað)
mat á menntun umsækjenda sé
ómarktæk. Þetta vill bæjarráð
taka skýrt fram og munu bæjar-
ráðsmenn ekki láta þetta „munn-
lega sérfræðiálit" hafa nokkur
áhrif á endanlega ráðningu til
þessa starfs.“
Eitthvað fór bókunin fyrir
brjóstið á fræðslunefnd, því hún
kom saman á ný í fyrradag og bók-
aði, að hún liti á þessa afgreiðslu
sem vantraust á störf skólanefnd-
ar og að hún myndi því beiðast
undan því að meta umsækjendur
almennt.
Árni Grétar Finnsson tók fyrst-
ur til máls um bókun skólanefndar
og sagði að sér fyndist að óeðli-
lega hefði verið staðið að málinu
að hálfu skólanefndar. Engar
upplýsingar fylgdu um hverjir
hefðu metið umsækjendur og
hefði fræðslustjóri einn haft milli-
göngu við þá aðila fyrir hönd
nefndarinnar. Magnús Jón Árna-
son sagði fundargerð skólanefnd-
ar um margt óvenjulega, en taldi
um misskilning að ræða. Skóla-
nefndin væri að biðjast undan en
ekki að falla frá skyldum sínum.
Hann sagði nefndina eftir sem
áður geta leitað álits hverra sem
væri og bæjarstjórn geta tekið
sjálfstæða ákvörðun þrátt fyrir
það.
Að lokum tók bæjarstjóri,
Guðmundur Árni, til máls. Hann
sagðist ekki vilja láta neinn velkj-
ast í vafa um það, að hann tæki
ákvarðanir án tillits til ónefndra
sérfræðinga, sem ekki kæmu einu
sinni fram undir nafni. Hann
sagðist ekki láta það rugla sig í
ríminu. „Þetta eru mín skilaboð“,
sagði hann.
Heilsufar gott,
engin lúsaplága
Hcilsufar Hafnfírðinga hefur almennt verið nokkuð gott, að sögn
Jóhanes Agústs Sigurðssonar héraðslæknis. Þó hefur gengið niður-
gangs- og uppgangspest síðustu vikur, en hún er að réna.
Jóhann Ágúst sagði, að haust- sem veikir væru fyrir.
og vorpestir væru orðnir fastur
Iiðu' í heilsufarssögu bæjarbúa.
Þá væri farið að reikna með in-
flúensu á fyrstu mánuðum hvers
árs og ráðstafanir ætíð gerðar í
tíma til að bólusetja aldraða og þá
Það virðist vera orðinn fastur
liður á höfuðborgarsvæðinu, að
skólabörn komi heim með miða
með tilkynningum um að lúsa hafi
orðið vart í viðkomandi skóla.
Jóhann Ágúst sagði að Hafnfirð-
Fyrirmyndarheilsugæsla
Heilsugæslustöðin nýja við Sólvang vekur athygli og hafa hópar
steymt að utan af landsbyggðinni til að skoða hana, að sögn Jóhanns Á.
Sigurðssonar héraðslæknis. Er stöðin talin góð fyrirmynd og skoða
menn þar allt í hólf og gólf.
TONLISTAR-
VEISLA
Um helgina verður mikill menningarviðburður í Firðinum, þeg-
ar kór Víðistaðasóknar efnir til tóplistarveislu í Víðistaðakirkju.
Merkið hér að ofan teiknaði listamaðurinn Gunnlaugur Stefán
Gíslason. Tónlistarveislan er haldin í fjáröflunarskyni, en kórinn
hyggst kaupa vandaðan konsertflygil í kirkjuna.
Sjá nánar á bls. 3.
Bæjarstjóm:
ingar virtust alveg hafa sloppið við
lýs að þessu sinni, engar slíkar
upplýsingar hefðu a.m.k. borist
heilbrigðisyfirvöldum í bænum.
Nafngiftir á hús
Á bæjarstjórnarfundi í gær kom til tals í tilefni af fundargerð fegrun-
arnefndar, að gaman væri að tekinn yrði upp sá siður að taka upp nafn-
giftir á hús og eins að setja upp spjöld með örnefnum við götur bæjar-
Það var Magnús Jón Árnason
sem hóf umræðuna og taldi hug-
mynd fegrunarnefndar varðandi
þetta allrar athygli verða. Árni
Grétar Finnsson tók undir þetta
og sagði vel athugandi hvort ekki
mætti skíra hús, þó þau héldu
áfram sínu götuheiti og númeri.
Fólk gæti þá t.d. tekið upp nafn
heimabyggðar sinnar, og gæti
Gunnar Rafn bæjarritari þannig
skírt hús sitt Siglfirðingahúsið.
Fleiri bæjarfulltrúar tóku já-
kvætt undir hugmyndina og komu
fram ýmsar tillögur um hugsanleg
heiti á húsum einstakra bæjarfull-
trúa. Ingvar Viktorsson benti ein-
nig á, að til væri mjög merkileg
bók um örnefni í bæjarlandinu
eftir Gísla heitinn Sigurðsson og
væri nafnið Háigrandi á húsi Fisk-
markaðarins t.d. fengið úr þeirri
bók.
Styttist í jólin
Koma rjúpunnar niður í byggð minnir á, að það styttist í svartasta
skammdegið og þá einnig jólin. Nú eru aðeins tveir mánuðir til jóla og
rjúpan á skammt í það að verða drifhvít.
Að sögn kunnugra skotveiðimanna mun rjúpnastofninn í nágrenni
Hafnarfjarðar, t.d. á Reykjanesi og í Bláfjöllum, lítið breytast ár frá
ári hvað varðar stærð. Sveiflur eru aftur meiri milli ára í rjúpnastofnin-
um á Norðurlandi og Vesturlandi. Það breytir þó ekki því, að fjöl-
margir munda nú skotvopnin og líktu menn Bláfjallasvæðinu um síð-
ustu helgi við orustusvæði.