Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 30.11.1988, Side 1

Fjarðarpósturinn - 30.11.1988, Side 1
>11IC FERÐASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266 FJflRÐnR 41. TBL 1988-6. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. NÓV. VERÐ KR. 50,- Stórgott, Snj^furí Margt rifjast upp, ennfleira skýrist Unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar frumsýndi sl. sunnudags- kvöld leikverkið „Þetta er allt vitleysa, Snjólfur.“ I einu orði sagt var árangurinn stórgóður, eða eins og leiklistargagnrýnandi Morgunblaðs- ins orðaði það í því blaði í gær: „Hreint engin vitleysa, Snjólfur.“ - Til hamingju krakkar og aðrir aðstandendur sýningarinnar. Það er Guðjón Sigvaldason leikari sem á veg og vanda að leik- verkinu, æfingunum, leiklistar- námskeiði og því, að fá krakkana til að koma sjálfum sér og samfé- laginu til skila eins og þau gera í „Snjólfi". Guðjón sagði í viðtali í Fjarðarpóstinum nýverið, að verkið væri „spunaverk" hans og krakkanna. Þau hafa einnig unnið alla undirbúningsvinnu undir handarjaðri leikhúsfólks og svo sannarlega hefur vel til tekist - og á þann eina einlæga hátt sem þess- um aldurshópi er unnt að gefa af sér. Það var enginn viðvaningsbrag- ur á leiklistinni hjá mörgum, sem þarna fóru um svið. Ekki er unnt að gera neinum einum meiri skil en öðrum, en af góðum leikara- efnum er þarna nóg. Þá á innihald verksins fullt erindi til foreldra, einnig afa og ömmu og síðast en ekki síst til unglinganna sjálfra. Margt rifjast upp, - enn fleira skýrist Það eina sem segja má að hafi skyggt á var, að salurinn var ekki fullsetinn. Boðsgestir, sem ekki þáðu boðið, mega áreiðanlega vera heppnir, ef þeir fá miða á næstu sýningar. Vonandi verður fjarvera þeirra ekki rakin til áhugaleysis á því sem æska bæjar- ins leggur að mörkum. - Snjólfur verður sýndur í kvöld kl. 20, þriðja sýning verður á sunnudag kl. 20. - Jólinkoma Aðventan boðar fólki frið og boðskap jólanna. Um síðustu helgi var troðfullt í verslun Burkna við Linnetsstíg. Þessi mynd var tekin á sunnudag og varð ljósmyndari Fjarðarpósts- ins vitni að því, er fólk úr Reykjavík hafði á orði, að ódýrara væri að versla í Firðinum en í Reykjavík. - Komum þessu til skila, a.m.k. til Hafnfirðinga. Snjólfur, lengsttilvinstri, gengur til móts við nýjar aðstœður, nýtt umhverfi. Myndir er tekin á lokaœfingu. Umferöaröryggiö aukið: UmferÖarljós á þijú gatnamót Oryggi vegfarenda er best tryggt í Firðinum næstu daga með því að allir fari að með gát. Vegagerð ríkisins boðar, að tekin verði í notkun umferðarljós á gatnamótum á þremur stöðum í Firðinum n.k. Iaugar- dag. - A morgun fimmtudag byrja Ijós að blikka gulu á þessum gatna- mótum til undirbúnings, en á laugardag þýðir ekkert að aka áfram, eins og ekkert hafi í skorist, því þá skiptast á hinir hefðbundnu þrír litir, ásamt tilheyrandi skyldum ökumanna. Gatnamótin, sem hér um ræðir, eru á mótum Hafnarfjarðar og Flatahrauns; Reykjanesbrautar og Lækjargötu/Lækjarbergs og á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Flatahrauns. Umferðarljósin á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Reykja- nesbrautar verða samtengd við umferðarljósin á Hafnarfjarðar- vegi í Garðabæ á sama tíma. Umferðarljósin á Hafnarfjarð- arvegi og Reykjanesbraut eru kostuð af Vegagerð ríksins en umferðarljósin á Reykjavíkur- vegi eru kostuð af Hafnarfjarðar- bæ. Samtals kostar uppsetning umferðarljósanna um fjórar mill- jónir króna. í viðtali Fjarðarpóstins við full- trúa Vegagerðarinnar kom í Ijós, að frá og með morgundeginum, þ.e. fimmtudegi, til laugardags, verður gult blikkandi ljós á nýju umferðarljósunum í þeim tilgangi að vara ökumenn við, áður en kveikt verður á þeim að fullu á laugardag. - Það má því benda ökumönnum, hafnfirskum á, að aka þennan rúnt til reynslu, þ.e. úr Engidal - Reykjanesbraut, nið- ur til hægri Lækjargötuna - í gegn- um miðbæinn og upp Reykjavík- urveginn, eða öfugan rúnt. - Þá ætti allt að vera á hreinu um hvar umferðarljósanna er að vænta, með öllum skyldum og réttindum í hraða hversdagslífsins. Gatnamót Reykjavíkurvegar og Flatahrauns. Ánægð ALI-börn í vinnustaðaheimsókn -sjábls.2 Útvarp Hafnarijörður einsársídag -sjabls.4 Þankar Magnúsar safnvaróar um Þórðana -sjábls.6 ^iíc Jr IHsr FERÐASKRIFSTOFA Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími652266

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.