Fjarðarpósturinn - 15.12.1988, Blaðsíða 7
Bráðum koma blessuð jólin
Það var sannkölluð jólastemmning í miðbænum á laugardaginn, eftir að ijósin höfðu verið tendruð á jólatré frá
vinabæ okkar í Danmörku, Fredriksberg, á Thorsplani. Frá því er sagt á forsíðu.
Eftir athöfnina á Thorsplani var hátíðardagskrá á þremur stöðum í bænum. I Vitanum var daskrá fyrir börnin, dans-
að var í kringum jólatré, sungin jólalög og tekið á móti góðum gestum, jólasveinunum Stúfi og Kertasníki. Víst er
af undirtektum í Vitanum, að börnin voru farin að hlakka æði mikið til jólanna.
í Hafnarborg voru tónleikar. Þar komu fram nokkrir þjóðkunnir hljóðfæraleikarar, kór Þjóðkirkjunnar, Blásara-
sveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þrestir. Gestir voru fjölmargir og fengu listunnendur kærkomið tækifæri til hvíld-
ar frá erli jólaundirbúningsins. Fjölmargir heimsóttu einnig kaffistofuna í Hafnarborg og nutu þar frábærra veitinga,
m.a. óáfengs jólaglöggs.
í Álfafelli var tónlist við hæfi eldri kynslóðarinnar, auk þess sem boðið var upp á kaffi.
Guðmundur í hinni nýju verslun sinni við Helluhraumð.
Ný húsgagnaverslun
Ný húsgagnaverslun var opnuð að Helluhrauni 10 í Hafnarfírði sl. laugardag. Verslunin heitir GP-húsgögn
og er eigandi hennar Guðmundur Pálsson, en Guðmundur hefur framleitt húsgögn úr gleri, plexígleri og
stáli í nokkur ár.
Framleiðsla Guðmundar er
seld í mörgum húsgagnaverslun-
um á landinu. Helstu vörurnar eru
sófaborð, sjónvarps- og mynd-
bandsvagnar, hillusamstæður og
blómasúlur.
GP-húsgögn hafa tekið þátt í
húsgagnasýningum á Bella Center
í Danmörku og er unnið að mark-
aðssetningu erlendis.
Auk eigin framleiðslu verður
Guðmundur með á boðstólunum
vörur frá þekktum framleiðend-
um, m.a. frá Ítalíu, Bonaldo
Casa, Casagrande, Vavassori,
Marka Ítalía og handunna gler-
vöru frá Paolo treversi, en það eru
vasar og lampar.
Verslunin verður opin frá kl. 9
til 18 virka daga og kl. 10 til 16
laugardaga. Fram til jóla verður
einnig opið föstudagskvöld og
sunnudag frá kl. 10-18. Verslunin
er í næsta húsið við Bifreiðaeftir-
litið. Þarsemnýjisíminnfæstekki
settur inn á símaskrá upplýsinga-
þjónustu Pósts og síma bað Guð-
mundur Fjarðarpóstinn að koma
númerinu á framfæri, en það er
651234.
„Svoddan jólasveinif
Umferðarráð bregður á leik
fyrir jólin, eins og undanfarin ár.
Jólasveinninn er hafður með í
ráðum og hann bregður á leik með
aðdáendum sínum, börnunum.
Leikurinn felst í getraun. Öll
börn á aldrinum 6-12 ára fá get-
raunablöð send. Þau eigasíðan að
svara 11 spurningum og leysa þar
með úr jafnmörgum umferðar-
Leikritið um Fúsa
froskagleypi er komið
út á plötu og snældu.
Þið muniðflest eftir
sýningu Leikfélags Hafnarfjarðar á
þessu skemmtilega verki Ole Lund
Kirkegaard. Núna getur þú
endumýjað kynni þín af Fúsa,
fakobi, mér, Bardínó sirkusstjóra,
Golíat og öllum hinum.
Platan og snældan fást í öllum
plötuverslunum.
Útgefandi: Leikfélag Hafnarjjarðar ■ Dreifing: Skífan
Þeir jólasveinabrœðurnir Kertasníkir og Stúfur skemmtu börnunum í Vitanum. Flest virtust hafa gaman af, en nokkur
kusu að hafa pabba eða mömmu nœrtœk, efþeir Sveinkar tækju upp á einhverjum hrekkjabrögðum..
vandamálum jólasveinanna, sem
eru að koma í bæinn. Aðstand-
endur eru hvattir til að fá börnin
til að glíma við þetta verkefni og
aðstoða þau.
Dregið er úr réttum lausnum.
Þau börn sem heppnust eru, fá
einkennisklæddan lögregluþjón í
heimsókn á aðfangadag með
bókaverðlaun.
Blásarasveit Hafnarfjarðar lék fyrir gesti Hafnarborgar, þegar Ijósmyndara Fjarðarpóstsins bar að garði. Gestirnir, sem
voru fjölmargir, kunnu auðheyranlega vel að meta það sem þarna var boðið upp á.
Vantar..,...
solubom
Fjarðarpóstinn vantar nokkur hörkudugleg
sölubörn. Upplýsingar í símum 65 19 45
(símsvari, eftir lokun) og 6517 45.
FJflRDfK
ptetunm
0, ÞU HYRIHAFNARFJORÐUR:
„kreist af Ijótum skratta“
Umsjónarmanni þáttarins „Ö, þú hýri Hafnarfjörður“ varð heldur
betur á í lestri á handskrift Sofus Berthelsen, sem kom fram í síðasta
tölublaði. Því varð úr línan: „Að sultast áfram Sjóla í“ í staðinn fyrir
„Að sullast áfram Sjóla í“.
Þetta leiðréttist hér með og er
Sofus beðinn velvirðingar á mis-
lestrinum. Hins vegar fagnar
umsjónarmaður því, að Sofus seg-
ist hér eftir ætla að nota vandaða
rafmagnsritvél sem hann á, í stað
þess að handskrifa bréf til þáttar-
ins.
Sofus lét þetta þó ekki hrekja
sig út af ljóðlínunum og með rit-
vélina góðu að vopni sendi hann
okkur eftirfarandi línur:
„Þegar bjarga þarf þjóðfélag-
inu út úr kreppu, eða fjárhagserf-
iðleikum, þá skal verkalýðsskríll-
inn blæða, þar felast bjargráðin.
Þá þurfa betri borgarar ekki að
herða sultarólina. Stundum hefur
verið haft á orði, að sagan endur-
taki sig - eða er hann með öllu
gleymdur Gúttóslagurinn 9.
nóvember 1932?
Það sem snýr að sjálfum mér, er
hægt að binda í eftirfarandi vísu.
Nú er þrýst á karlsins kaun
kreist af Ijótum skratta.
Þeir mín vilja nú lækka laun
og líka hækka skatta.“
Tilkynning frá
Hafnarfjarðarhöfn
Hér meö tilkynnist aö eigendur eða forsvars-
aðilar lausamuna á hafnarsvæöinu, sem í leyfis-
leysi hafa vistaö þá á svæöi Hafnarfjarðarhafnar,
skulu á brott meö þessa muni eigi síðar en 20.
desember næstkomandi. Að öðrum kosti verða
þeir munir fjarlægðir af hálfu hafnaryfirvalda á
kostnað og ábyrgð eigenda.
Er þar með talið að eigendur þessara lausam-
una hafi gefið eftir eignarhald sitt. í samræmi við
það verður þeim fyrirkomið bótalaust af hálfu
hafnarinnar.
HAFNARSTJÓRINN í HAFNARFIRÐI
Mario
Trönuhrauni 6, Hafnarfirði
Sími 651147
Vorum að
taka upp
nýjar vörur
otniarion
verslun fyrir þig
: ÞÚ FAGRA VOR
■ 24L0G eftir Árna Gunnlaugsson ®
Ljóð eftir Hafnfirðinga við flest lögin.
Bókin er í vönduðu bandi. - Er til sölu í bókabúðum
í Hafnarfirði, hjá höfundi að Austurgötu 10, en í
Reykjavík fæst bókin hjá ístóni og Máli og menningu.
APOTEK
NORÐURBÆJAR
MIÐVANGI 41 - SÍMI 53966
Opnunartími hátíðadagana:
Laugardaginn 17. desember kl. 10.00-22.00
Þorláksmessa kl. 9.00-23.00
Aðfangadagur, jóladagur, annar í jólum
og gamlársdagur kl. 10.00-14.00
Upplýsingar í símsvara um vaktir
apótekanna í Reykjavík og nágrenni í
síma 53966.
FRAMKÖLLUN Á STUNDINNI
A11 .j MYNDAVÉLAR
Allt tll ÚRVAL RAMMA
SJÓNAUKAR
SMÁSJÁR
jólagjafa
5% staðgreiðsluafsláttur til jóla
LJÓSMYNDAVERSLUN isitáuj
MYNDAHUSIÐ
DALSHRAUN113 - SÍMI 53181
Nýtt á íslandi:
Mjög sérstakir útskornir
motiv-speglar,-vasar. Klukkur
og skreytingar frá V. Pýska-
landi.
Jólaskreytingar - Jólastjörn-
ur á kr. 695, -
Styttur frá Rustica. Margs
konar gjafa- og jólavörur.
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10 til 21
Garðablóm
Garðatorgi 3 Sími 656722
6