Alþýðublaðið - 28.02.1924, Blaðsíða 4
.4
'&LÞ'ir ÐÐILABIÐ
>atvinnuvegum< eiga þeir ávalt
við atvinnurekendur, eignamenn
lacdsins, auðvaldið íslenzka.
Um önnur atriði nægir að
vekja athygli á þvi, að þau eru
að sumu ieyti ekki annað en
moldviðri, svo sem það, er vikið
er að bótum á fjárhag ríkis’ns,
því að greindum mönnum má
vera ljóst, að óhugsandi er að
ná nema innarstómum tölujöfnuði
á fjárhag ríkissjóðp, meðan eng-
inn jöfnuður er á lífskjörum
Iandsfóiksins, en að sumu leyti
aftur mjög viðsjárverð og skað-
leg, svo sem >niðurlagning eða
samanfærs!a< ýmsra iands-stofn-
ana og -fyrirtækja, én ýmislegt
að því lútandi er jafnan reynt
að skýra sem .b^zt hér í blaðinu,
og skal þvf ekki vikið nánara
að því að sinni.
>íha!dsfiokkurinn< er kominn
á koppinn.
Trúlegt er, að hinura gáfaðri
mönnum í landinu hgfði eftir
ástandi og aðstæðum þótt meiri
þörf fyrir tilveru öflugs umbóta-
fiokks en steinnn íhaidsflokks,
en stórir hópðr, svo sem heilar
þjóðir, eru lengur að átta sig en
einstaklingar, sem reynsla sýcir
og eðlilegt er, og það skýrir
þetti annars fremur dularfulla
fyrirbdgði á þrefngingatmum:
stofnun fhaldsflokks á íslandi.
En ef þjóðin ber gæfu til að
átta sig, þá mun vafalaust um
hann verða >fyrst alt frægast.<
Alþingi.
Nýmæli hins heiziu, er fram
hafa komlð, eru þessi: Jónas
vill takmarka tölu nemanda í
lærdómsdeild mentaskólans með
þingsályktun. Sveinn og Jörund-
ur vilja með lögum tela forstjóra
landsvcrzlunar forstöðu áfengis-
verzlunarinnar í sparnaðarskyni.
Jónas vill með lögum sameina
háskólakennaráembættið í hag-
nýtri sálarfræði og forstöðu
Landsbókasafnsins og flytja
grískudósentinn úr háskólanum
í mentaskólann og láta hann
kenna þar annað. Enn vill hann
breyta lögunum um fræðslu
barna 1 það horf að >sjpara em-
bætti fræðslumálastjóra og að
fela kennnrum kennsraskóians
að vera stjórninni til aðstoðar<
í træðslumálum. Jón Baidvinsson
flytur írv. um breyting á lögum
um atvinnu við vélgæziu á mót-
orskipum. Tryggvi Þórhallsson
flytur þrjú frv., er öll vita að
Norðmönnum á- þann veg að
jafna á þeim fyrir kjöttellinn.
Er eitt um síldarbræðslu og
skiiyrði fyrir þeim atvinnurekstri,
annað um sérstakt Iestagjaid af
útlendum vöruflutningsskipum og
um sérstakan vörutoll, þar sem
flokkunin er tekln ettir vörutolls-
lögunum og toilhæðin tffölduð.
Magnús Jónfsou, Jakob Möiler,
Þorl. og Sigurjónsson Jónsson
flytja frv. um heimlld fyrir bæj-
arstjórnir til að takmarka eða
banna hundahald f kaupstöðum.
Þeíta er íyrsta þingmannafrum-
varpið, sem fram kemur eftlr
stofnun fhnldsflokksins, og virðist
hægt að koma upp íhaldsstjórn
á grundvelli þess eftir því að
dæma, hverjlr eru flutningsmenn.
Á. Pl. flytur þingsál.till. um frest-
un á framkvæmd laga um eftir-
litsmann með bönkum og spari-
sjóðum (»eftirlitsdýrið<), þangað
tii útkljáð er um, hvernig fer
um seðlaútgáfuna. — Stjórnarfrv.
er komið fram um nauðasamninga
en svo er þar kallaður >samn-
ingur, gerður með albeina skifta-
réttar milii skuldunáuts og lög-
mælts meiri hiuta lánardrottna
hans um skuldgrsiðslur, og bind-
ur samningurinnn einnig minni
hluta lánardrottnauna<.
í neðri deild kom fyrst til 2.
umræðu 1 gær frv. Ág. Fi. um
undanþágu frá lögum um rétt til
fiskveiða f landhelgl (Hafnar-
fjarðartogararnir). Höfuðröksemd
þeirra, er gegn því mæltu, Jóns
Auðunar og Sigurjónssonar Jóns-
sónar, var sú, að ekki mætti
auka framleiðslu á físki, því að
það myndi spilla markaði fyrir
fisk. Ásg. Asg. kvaðst hafa sér-
stöðu að því, að óheppilegt væri
að veita einum kaupstað undan-
þágu (þvf lík sérstaða er einkar-
hentng til að koma sér undan
fylgd við nauðsynjumál). Öðru
vfsi fór Jón Baldvinsson að og
drengilegar, því að hann studdi
trv., þótt andttæðingur hans bæri
málið fram, og hann hefði að
vissu leyti einnig sérstöðu sam-
kvæmt stefnu Alþýðuflokksins
og hefði heldur kosið, að Hafn-
aríjarðarbæ væri hjáfpað til að
gera út togara tii atvinnubóta.
Mæiti hann með frv. með flutn-
ingsmanni. Úrslit urðu þau, að
frv. var telt með 23 atkv. gegn
4 (Á. FI., Jón Baldv., Hák. og
Tr. Þ.).
Næst var til 1. umr. frv. Jör.
Br., Bernh. St. og J. B. um afnám
kennaraembættis í hagnýtri sál-
arfræði við Háskóla íslands (G.
Finnb). Hafði Jör. Br. orð fyrir
frv. og kvað tilefnið til þess vilja
til sparnaðar, en ekki óvild til
þess >heiðursmanns< (iiann marg-
tók það orð), sem í embættinu
sæti. Bjarni frá Vogi snerist til
varnar og flutti langa, sköruiega
og harðorða ræðu gegn frv.
Sýadi hann fram á, að sparnað-
urinn við þetta væri hégómi
(i°/oo af útgjöldum ríkisins), en
margfalt meira andlega og fé-
mætu verðmæti væri tapað með
því. Bernharð Stefánsson mælti
með frv., og fleiri hötðu kvatt
sér hljóðs, er málinu varð að
fresta, og önnur mál voru tekin
út af dagskrá, með þvf að fund-
artími var út runninn.
í dag er einkafundur í sam-
einuðu þingi, og er víst ekki að
vita, nema af þeim samgangi
deildanna kunni að spretta hin
væntanlega íhaldsstjórn. Eftir
þann fund verður furdur í neðri
deild, og er meðal annars á dag-
skrá gengisviðauki við tolla.
Viðtalstími Páls” tannlæknis
10 — 4.
U. M. F. R. FjðlmenniS á
fund í kvöld.
>Æfintýrið< verður ielkið í
kvöld kl. 8 í Iðnó. Þykir það
logandi skemtilegt.
Rltetjúr! @g ábyrgðarmaður: Hallbjörn HaUdórssna
Pr<9«f*íaiðjji Hsilgris** B9n®iikt»s@nRr; B«rgsfpð?stræti