Fjarðarpósturinn - 24.10.1991, Qupperneq 2
EIGNABÆR
Bæjarhrauni 8, sími 654222
VANTAR EIGNIR A SKRfl
Fjóluhvammur Hf. -einb.
330 fm einbh. Fallegur garöur.
Heitur pottur. Verð 21,0
Fjóluhvammur Hf. -einb.
Vandað 255 fm einbh. Góöur
garður. Verö 18 m.
Heiðvangur Hf. - einb.
4ra-5herb. einb.(timbur) ásamt 40
fm steinst. bílsk. Fráb. staösetn..
v/hraunjaðarinn. V. 15,5 m.
Suöurgata Hf. - 3ja herb.
Vorum aö fá í einkasölu skemmti-
lega íbúö í þríbýlishúsi. Áhv. 2,3
millj. Verð 5,8 millj.
Hverfisgata Hf. - 3ja.
80 fm íb. á 2. hæö. Nýtt parket.
Frábært útsýni. Mjög góð staðsetn.
Björt og skemtil. íb. Verð 6,2 m.
Háakinn Hf. - 6 herb.
6. herb. íb. í tvíb., hæð og ris. Bíl-
skúr. Alls rúml. 10 fm. Mögul. á tv.
íb. Verð 10,5 m.
Skerseyrarv. Hf. - 4ra herb.
Mjög falleg íbúð á 2. hæð í tvíbýl-
ishúsi. Róleg gata. Húsið nýlega
klætt að utan. Sólstofa. Nýlegir
gluggar og gler. Stór bílsk. og
geymsla. Ahv. Byggsjlán 3,8 millj.
V. 7,8 m.
Fagrakinn Hf. - 4ra herb..
4ra herb. íb. á 1. hæð í tvíbýli.
Innang. í kj. Áhv. byggsj. Verð 7,5
Álfholt Hf. - 2ja-3ja
82,1 fm íb. á 1. hæð. Sérgeymsla.
Afh. tilb. u. trév. Verð 6,4 m.
Laufvangur Hf. - 3ja herb.
Mjög skemmtíleg og rúmgóð íb. á
2. hæð. Aðeins 3 íbúðir i stiga-
gangi. Góð sameign. Mjög góðar
suðursvalir. íbúðin geturverið laus
fljótlega. V. 7,6 m.
Arnarhraun Hf. - 3ja
Mjög falleg rúml. 80 fm íb. Parket.
Góð sameign. Skípti mögul. á
4ra-5 herb. íb. íb. getur verið laus
fljótlega. V. 7,0 millj.
Þúfubarö Hf. - einb.
U.b.b. 170 fm einb. á tveimur
hæðum og 25 fm bílsk. Góð eign.
Garöavegur Hf. - 3ja herb.
3ja herb. íbúð á 1. hæð. Áhv.
byggingarsjóðslán. Verð 3,7 m.
Breiðvangur Hf. - 5 herb.
Rúml. 120 fm íb. á 1. hæð. Stór
sérgeymsla. Verð 9,1 milljón.
Flókagata Hf. - 4ra-5
Falleg íb. á 2. hæð í tvíbýli. U.þ.b.
120 fm. Mjög gott útsýni. Verð 9,5
Álfaskeiö Hf. - 2ja herb.
Falleg íb. á 4. hæð. Bílskúr. Mjög
góð sameigin. Verð 6,0 millj.
Alfaskeiö Hf. - 2ja.
íb. á jarðhæð. Bílsk. V. 5,8 m.
Hafnarfjörður - lön.húsn.
U.þ.b. 860 fm iðn.húsnæði á besta
stað í Hafnarf. Stórar dyr.
Vegna míkillar eftír-
spurnar óskum viö
eftir öllum tegundum
fasteigna á söluskrá.
Skoðum og verömet-
um samdægurs.
Elías B. Guömundsson,
viðskiptafr. - sölustjóri,
Hlööver Kjartansson, hdl.
Guömundur Kristjánsson, hdl.
IP
S. 654222
Gunnbjörn Svanbergsson og Unnur Helgadóttir, starfsmenn Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar.
Verslunarmannafélagið í stórhýsið við Lækinn:
Dæmi um 300 klst. mánaðarvinnu
Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar hefur tlutt skrifstofur
sínar úr Strandgötunni í nýja stórhýsið við Lækinn, nánar til-
tekið við Lækjargötu 34. Skrifstofan er þar í stórglæsilegu nýju
húsnæði, sem er 197 fermetrar, en opnað var á nýja staðnum á
63 ára afmæli félagsins 28. júní sl. Starfsmenn Verslunar-
mannafélagsins eru tveir, þau Unnur Helgadóttir og Gunnbjörn
Svanbergsson. Tíðindamaður Fjarðarpóstsins tók þau tali í
vikunni, en þá var einmitt verið að leggja lokahönd á frágang
utanhúss, þ.e. malbikun bílastæða.
í nýja húsnæðinu er hægt að
halda alla fundi og samkomur.
Húsnæðið er á jarðhæð og öll
aðstaða hönnuð þannig, að fatl-
aðir eiga léttan aðgang. Að sögn
þeirra Unnar og Gunnbjöms eru
félagsmenn í VH um 800 talsins,
en umdæmissvæðið er, auk
Hafnarfjarðar, Garðabær og
Bessastaðahreppur. Stærstu
vinnustaðirnir eru stórmarkað-
amir, þ.e. Fjarðarkaup og Mikli-
garður, en auk þess eru fjölmargir
félagar starfandi í ÍSAL.
Aðspurð um helstu baráttumál
félagsins sögðu þau launamálin
brýnust að venju. Launataxtar
verslunarmanna eru þeir lægstu
sem fyrirfinnast á landinu í dag,
að þeirra sögn, og flestir félaga
á taxtakaupi. Þau sögðu launa-
taxtanaveraámilli 50-60 þúsund
kr. á mánuði. Laun verslunar-
manns eftir 10 ára starf eru t.d.
rúmlega 56 þúsund krónur fyrir
40 stunda vinnuviku. Þau sögðu
verslunarfólk ekki hafa neitt
bónus- eða premiukerfi eins og
fiskvinnslufólk og því væm
þessir taxtar hryllilega lélegir,
eins og hver maður gæti séð.
Verslunarmannafélag Hafnar-
fjarðar hefur barist gegn helgar-
vinnu félagsmanna sinna. Við
spurðum nánar út í það. Þau
sögðu að upphaflega hefði bar-
áttan verið að ósk félagsmanna,
sem ekki hefðu átt aðra völ en þá
að vinna um helgar. Sumar
verslanir væru með mjög langan
vinnutíma og því ómannúðlegt
vinnuálag. Hins vegar væru
launin lág og því erfitt að berjast
gegn helgar- og næturvinnunni.
Sem dæmi sögðust þau t.d. hafa
fengið launaseðil í hendur vegna
eins og fjölmörgum gjaldþrota-
málum verslana á svæðinu þar
sem komið hefði fram, að einn
félagsmaður hefði unnið í 300
klst. á einum mánuði. Menn gætu
rétt ímyndað sér heimilislíf
viðkomandi.
Þrátt fyrir, að brauðstritið sé
eilífðarverkefni hjá Verslunar-
mannafélagi Hafnarfjarðar eins
og öðrum verkalýðsfélögum, þá
er ýmislegt gert til fræðslu og
skemmtunar. Félagið rekur sum-
arbústaði fyrir félagsmenn sína,
einnig eru haldin námskeið og
fundað um ýmis kjara- og fé-
lagsmál. í samvinnu við VÍS eru
félagsmenn sjúkra- og slysa-
tryggðir.
Unnur og Gunnbjöm sögðu að
lokum, að virkni félagsmanna
væri hvorki betri né verri en
gengur og gerist. A milli 40 til 50
manns mættu yfirleitt á fundi, og
fleiri, þegar launamálin væm til
umfjöllunar.
GAFLARIVIKUNNAR:
Fullt nafn? Rafn Sigurðsson.
Fæðingardagur? 20. ágúst
1938.
Fæðingarstaður? Akranes.
Fjölskylduhagir? Kvæntur
og á þrjú böm og eitt bamabarn
„Emu“.
Bifreið? Subaru Legacy
1990.
Starf? Forstjóri Hrafnistu,
dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna.
Fyrri störf? Sjómennska.
Forstjóri veitingahússins
„Skiphóll".
Helsti veikleiki? Góður mat-
ur.
Uppáhaldsmatur? Mjög
léttsteikt nautafillet með
kjör-sveppum og lauk.
Versti matur sem þú færð?
Svið.
Uppáhaldstónlist? Hressileg
sjómannalög og popplög.
Uppáhaldsíþróttamaður?
Ólafur Rafnsson, þjálfari
körfuboltaliðs Hauka.
Hvaða stjórnmálamanni
hefur þú mestar mætur á?
Engum.
Hvert er eftirlætis-
sjónvarpsefnið þitt?
Fréttir og alíslenskir
þættir.
Hvaða sjónvarps-
efni finnst þér
leiðinlegast? Breskir
hvítflibba-þættir frá
síðustu öld.
Uppáhalds
útvarps- og sjón-
varpsmaður?
Þorsteinn Vil-
hjálmsson og Ómar
Ragnarsson.
Uppáhaldsleikari?
Sigurður Sigurjóns-
son.
Besta kvikmynd
sem þú hefur séð?
Böm náttúrunnar.
Hvað gerir þú í
frístundum þínum?
Dvel í sumarbústað
mínum við Vest-
urhóp í Húnavatns-
gýslu
Fallegasti staður
sem þú hefur komið
á? Borgarvirki.
TI , , , , . , „ . Hvaða persónu langar þig mest
Hvað metur þu mest i far, aðhittaFoghversvegna? Sighvat
annarra? Hreinskiln, og heið- BjörgvinsSson. heilbrigðisráð-
ar el a' herra og gefa honum góð ráð, án
Jóhannes, ritstjóri Víkur-
blaðsins á Húsavík, er rneð
skemmtilegustu pennum. A að-
alfundi Samtaka bæjar- og hér-
aðsfréttablaða í Vestmannaeyj-
um um síðustu helgi kom fram,
að Jóhannes hefur á stundum
runnið svolítið til á "ættfræði-
vellinu". Honum sagðist t.d.
þannig frá, er hann var að út-
skýra tengsl sín við svila sinn.
"Við erum eitthvað tengdir, -
erum giftir sömu systrunum, eða
þannig."
Forseti bæjarstjórnar er
seinhcppinn með afbrigðum
þessa dagana. A síðasta bæjar-
stjórnarfundi gaf hún Þorgils
Ottari orðið. Hann reyndi tví-
vegis að hefja mál sitt, en jafn-
harðan þaggaði forsetinn niður
í honum með leiðréttingum. Hún
sagði fyrst: "Ekki breyting á
teikningum", þegar Óttar hafði
nefnt orðið teikningar. Pá reyndi
hann að fjalla um lóðar- og
hæðarblöð. " Ekki breyting á lóð
og hæðarblöðum" greip forset-
inn á ný fram í. Óttar þagnaði,
enda vart um annað að ræða.
Hann þagði síðan þar til bæjar-
stjóri sá sig knúinn til þess að
spyrja forsetann, hvort hún
mætti grípa fram í fyrir ræðu-
mönnum.
Það kom að því á ný síðar á
fundinum, að forsetinn var ekki
sammála ræðumanni. í stað þess
að mótmæla hástöfum, eins og
hún gerði við Óttar, hristi hún
nú höfuðið stíft og ákaft framan
í viðkomandi ræðumann.
A ný lenti forsetinn í ógöngum
á fundinum og þá gleymdi hún
að leita mótatkvæða. Eftir að 10
bæjarfulltrúar höfðu sagt "já",
tilkynnti hún að málið væri
samþykkt með 10 samhljóða at-
kvæðum. Var hún þá leiðrétt á
ný, því ellefti bæjarfulltrúinn
vildi fá að láta skoðun sína í Ijós,
sem var að sitja hjá.
þess að ræða við hann um
Hafnarfjarðarspítala.
Hvaða námsefni líkaði þér
verst við í skóla? Eðlisfræði
og grasafræði.
Hvað myndir þú vilja í
afmælisgjöf? Fleiri bama-
böm.
Ef þú gætir orðið ósýnilegur,
hvar myndir þú helst vilja
vera? Eg þori ekki að segja
það.
Ef þú værir í spurninga-
keppni, hvaða sérsvið myn-
dir þú velja þér? Islensk skip
og báta.
Hvað veitir þér mesta af-
slöppun? Sitja á veröndinni
við hús mitt norðan heiða og
horfa í kvöldkyrrðinni á sil-
unganetalögn mína.
Hvað myndir þú gera, ef þú
værir bæjarstjóri í einn dag?
Að sjálfsögðu að reyna að
koma betra skipulagi á
öldrunarmál í Hafnarfirði.
Uppáhalds-Hafnarfjarðar-
brandarinn þinn? Þegar
Hafnfirðingar fjölmenntu
niður í fjöru fyrir jólin til að
bíða eftir bókaflóðinu.
2