Fjarðarpósturinn - 24.10.1991, Qupperneq 3
Aðalfundur Samtaka bæjar- og héraðsfréttablaöa:
Fagnar uppsögn ráðherra
á einu áskriftareintaki
-RAFBUÐHI
ÁLFASKEIÐ/ 31 - S/M/ 53020
AUGLÝSINGASÍMINN ER j 651745 1 FJflRÐflR póstunnn
Aðalfundur Samtaka bæjar- og héraðsfréttablaða var haldinn
í Vestmannaeyjum um helgina. I samtökunum eru sextán
bæjar- og héraðsfréttablöð. Auk venjulegra aðalfundarstarfa
voru þrjú fræðsluerindi fiutt á fundinum. Gestur Traustason frá
Tölvustofunni fjallaði um tölvuvæðingu blaða með Macintosh.
Sigurjón Jóhannsson, útlitshönnuður og fjölmiðlakennari, flutti
fróðlegt erindi um fyrstu dagblöðin á Islandi og leiðbeindi um
hönnun. Omar Valdimarsson, blaðamaður, fjallaði um fjöl-
miðlun almennt og gaf leiðbeiningar um bæjar- og héraðs-
fréttablöðin.
Samtökin hafa starfað í tvö ár.
Þau einbeittu sér fyrst í stað að því
að ná meira jafnrétti gagnvart
„stóru“ fjölmiðlunum t.d. í aug-
lýsingamálum og áskriftum frá
hinu opinbera. Það kom fram á
fundinum, að sú barátta hefur
verið árangurslítil. Því voru
fundarmenn á því að einbeita sér
að fræðslumálum og áframhald-
andi góðri samvinnu og kynningu
aðildarblaðanna, sem gefið hefur
góða raun. Það kom einnig fram
á fundinum, að aðstandendur
blaðanna telja, að þróunin í fjöl-
miðlaheiminum í dag skapi aukið
og betra svigrúm fyrir bæjar- og
héraðsfréttablöðin og vert sé að
vekja athygli stjómvalda á þeirri
þjónustu sem þau veita.
Svohljóðandi ályktun var
samþykkt samhljóða: „Aðal-
fundur Samtaka bæjar- og hér-
aðsfréttablaða, haldinn í Vest-
mannaeyjum 18. til 20. október
1991, lýsir yfir ánægju sinni með
þá ákvörðun fjármálaráðherra, að
segja upp því eina eintaki af
hverju aðildarblaða samtakanna
sem keypt var.
Aðalfundurinn hvetur stjóm-
völd til að stíga skrefið til fulls,
segja upp öllum fjölmiðlaá-
skriftum og afnema alla flokks-
pólitíska útgáfustyrki. Þar með
sitja allir fjölmiðlar við sama
borð.
Aðalfundur Samtaka bæjar- og
hérðasfréttablaða ítrekar, að blöð
innan samtakanna vilja standa á
eigin fótum, án nTdsstyrks. Engu
að síður álítur fundurinn, að hið
opinbera mætti í mun ríkari mæli
en gert er, nýta sér þá þjónustu
sem blöðin bjóða upp á.
"Móttökur aðstandenda að-
ildarblaðanna í Vestmannaeyj-
um, þ.e. Frétta og Dagskrár, voru
frábærar. Ritstjómm og fylgdar-
liði var boðið í kynnisferðir, m.a.
bátsferð í kringum eyjamar.
Ennfremur var boðið til móttöku
í Akogeshúsinu og kvöldverðar
með skemmtidagskrá.
Ný stjóm var kjörin á aðal-
fundinum. í henni eiga sæti:
Sigurður Sverrisson, Skagablað-
inu, formaður; Fríða Proppé,
Fjarðarpóstinum, ritari; Gísli
Valtýsson, Fréttum, gjaldkeri.
Ennfremur þeir Páll Ketilsson,
Víkurfréttum og Sigurjón Sig-
urðsson, Bæjarins Besta á Isa-
firði.
ÞAKKARÁVARP
Hafnflrðingar - Garðbæingar - Bessastaðhreppsbúar
Þökkum af alúð þeim félagasamtökum öllum, eintaklingum
og fyrirtækjum, sem á einn eða annan hátt sýndu stuðning
sinn við óbreyttum rekstri St. Jósefsspítala, Hafnarfirði,
með því að gera undirskriftasöfnunina jafnglæsilega og
raun varð á.
BANDALAG KVENNA HAFNARFIRÐI
DEKKID
Reykjavíkurvegi 56
Sími51538
NÚ ER TÍMI VETRARDEKKJANNA!
Bjóðum úrval af nýjum dekkjum,
ásamt sóluðum NORDEKK
FLJÓT
OG GÓÐ
ÞJÓNUSTA
GREIÐSL UKORTAÞJÓNUSTA
VANIR
MENN
3