Fjarðarpósturinn - 20.02.1992, Síða 4
FJflRMR
pösturtnn
Útgefandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: FRlÐA PROPPÉ
Auglýsingastjóri: HANNA FRIÐJÓNSDÓTTIR
íþróttir: ÞÓRÐUR BJÖRNSSON OG SVEINBJÖRN BERENTSSON
Dreifingarstjóri: HALLDÓRA GYÐA MATTHÍASDÓTTIR
Ljósmyndir og útlit: FJARÐARPÓSTURINN
Innheimtustjóri: INGA JÓNA SIGURÐARDÓTTIR
Prentvinnsla: GUÐMUNDUR STEINSSON og BORGARPRENT
Skrifstofa Fjaröarpóstsins er aö Bæjarhrauni 16, 3. hæö, Póstfang 220. Hafnarfirði.
Opiö er alla virka daga frá kl. 10-17. Sfmar: 651945, 651745, FAX: 650745.
Fjaröarpósturinn er aöili aö Samtökum bæjar- og héraösfréttablaöa.
Svört skýrsla Umferðarráðs
Ársskýrsla Umferöarráös um umferðarslys er ætíö
ömurleg lesning. Ef viö lítum afmarkaö á Hafnarfjörð í
þessari skýrslu þá hefur umferðarslysum í raun fækkaö
á milli ára, þ.e. úr 402 í 351, en í móti fjölgaði slösuð-
um vegfarendum.
Á sl. ári slösuöust 92 á móti 71 áriö áöur. Meiri háttar
meiðsli uröu í 13 umferðarslysum á móti 9 áriö 1990.
Þá létust fjórir á sl. ári í staö eins áriö 1990. Þetta þýöir,
aö þrátt fyrir færri umferðarslys eru þau alvarlegri, sem
eru ekki góð tíðindi.
Langflest umfeörarslys verða, aö sögn Sigurðar
Helgasonar hjá Umferöarráöi, vegna mannlegra mis-
taka. Túlka má niðurstöðurnar á þann veg, aö hraðinn
í umferöinni hafi aukist. Ekki er laust viö, aö viö verðum
þessa vör í umferðinni. Þaö getur veriö gott aö staldra
viö og skoöa þessar tölur, því enginn veit hver verður
næstur á þessum Ijóta lista yfir „lítiö“ og „mikið slasaöa,"
eins og þaö er orðað I skýrslunni, aö ógleymdum þeim
sem láta lífið vegna aðgæsluleysis í örskotsstund.
Furðuleg alþjóðleg samskipti
Þau opinberu samskipti sem leiðarahöfundur hefur
kynnst milli íslenskrar þjóöar og erlendra, hefur ætíö
einkennst af kurteisi og gangkvæmri virðingu. Þaö var,
svo dæmi sé tekið, stórkostleg upplifun aö vera viö-
stadduropinberaheimsóknfrúVigdísarFinnbogadóttur,
forseta íslands, á erlendri grund. Öll sú verðskuldaða
viröing og kurteisi, sem þjóðarleiðtogi okkar naut og
nýtur hvar sem hún ferðast opinberlega erlendis hlýjar
og eflir þjóðarstoltið.
Nú bregöur ööru vísi viö. Móttökur þær sem for-
sætisráðherra íslensku þjóöarinnar, Davíö Oddsson,
hlaut í ísrael er hreinn dónaskapur. Hér skal enginn
dómur lagður á nær hálfrar aldar atburði, sem varöa
sakleysi eöa sekt íslensks ríkisborgara. Aftur á móti skal
hér hreinlega fordæmt, hvernig Israelar taka á móti
leiötoga íslensku þjóöarinnar. Þannig getur engin þjóö
tekið í móti gestumsínum. Hérbýreitthvað aöbaki, sem
viö þurfum aö skoöa betur.
Eggjakast og skítlegt eðli
Fjaröarpósturinn undrast aö fólk skuli vera undrandi
yfir því aö unglingar skuli láta sér detta í hug að kasta
eggjum í ráöherra íslensku ríkisstjórnarinnar. Á meðan
kjörnir alþingismenn íslensku þjóöarinnar koma fram
fyrir alþjóð í ræöustóli á alþingi og nota lýsingarorð eins
og „skítlegt eöli“ er ekkert undarlegt viö þaö aö virðingu
þjóöarinnar fyrir þeim sömu mönnum hraki.
Þaö er sífellt rætt um minnkandi viröingu fyrir alþingi
og ráðamönnum. - Leiötogar þjóöarinnar geta varla
vænstviröingaraf hálfu þjóöarinnarásamatímaog þeir
bera slíka lítilsvirðingu á torg, jafnt fyrir störfum sínum
og sjálfum sér.
í andlitsbaði hjá Rósu á Snyrtistofunni Rósu í Miðvangi:
Góð leið til þess að
láta sér líða vel
Margir fínna fyrir þreytu í skammdeginu. Það getur
verið erfitt að hafa sig á fætur á morgnana í kulda og
myrkri. Oft er gott við þessar kringumstæður að líta á
björtu hliðarnar, en þær eru m.a., að dagarnir lengjast sí-
fellt, framundan er vorið og sumarið. Fólk notar ýmsar
aðferðir til að gera sér dagana léttari og vera betur á sig
komið fyrir vorið og sumarið. Heilsuræktarstöðvarnar
eru fullar af fólki, sífellt fleiri stunda sund og skokk. Fólk
er almennt orðið meðvitaðra um samspil líkamlegrar og
andlegrar líðanar.Fyrir þá sem ekki hafa burði eða getu
til að stunda erfiðar líkamsæfingar eru einnig til leiðir til
að hressa upp á líkamann og um leið sálartetrið. A snyrti-
stofum er t.d. hægt að fá ýmis konar þjónustu sem veitir
slökun, aukið sjálfstraust og þar af leiðandi betri líðan.
Rósa Jónasdóttir, snyrtifræðingur, sem til skamms
tíma rak snyrtivöruverslunina Dísellu í Miðvangi, rekur
nú Snyrtistofu Rósu, sem einnig er í Miðvangi. Til að gefa
lesendum ofurlitla innsýn í þessa tegund slökunar, bauð
hún tveimur blaðamönnum Fjarðarpóstsins í andlitsbað í
síðustu viku. Þess má geta að þetta var ný reynsla fyrir
báða blaðamennina
vöðvar í andliti, t.d. í kringum
kjálka, stífna, er þetta stórkostleg
meðferð, einnig er þetta góð aðferð
gegn vöðvabólgu íherðum. Nuddið
fær blóðstreymið fram í húðina og
örvar efnaskipti. Afslöppun og
slökun, sem leiðir niður bak og
handleggi, er árangurinn. -
Að loknu nuddinu er settur á
„maski“, sem hreinsar vel upp úr
húðinni t.d. húðorma, sem oft vilja
sækja á nef og aðra viðkvæmahluta
andlits. „Maskinn“, semekkiergott
aðfinnaíslensktorðyfir,virtisteins
og hvert annað krem, en hann gefur
húðinni líf og er rakagefandi.
Maskinn harðnaði ekki, og lét Rósa
hann vera á húðinni í 20 mínútur.
Þessar 20 mínútur er unnt að ná
mjög góðri slökun, jafnvel sofna
fyrir þá sem það kjósa.
Að lokum er „maskinn“ hreins-
aður af húðinni og sett á hana
nærandi krem. Nú er andlitið tilbúið
Rósa tók af sinni alkunnu alúð
á móti okkur. Dúðaðar teppum í
þægilegum stól fengum við síðan
meðhöndlun á húðinni í andliti,
hálsi, herðum og bringspölum.
Fyrst er húðin hreinsuð með
hreinsimjólk og andlitsvatni. Þá
eru hár fjarlægð, ef með þarf. Til
þess er notað vax úr náttúruefnum.
Því er rúllað á með þar til gerðri
rúllu. Tilheyrandi renningur er
lagður ofan á, sem síðan er rifinn
upp og hárin fylgja með. Þetta vax
er einnig hægt að nota á fótleggi
og aðra staði líkamans. Það hefur
það fram yfir rakvélar og plokkara,
að ekki myndast gróf hárrót.
Gott gegn
vöövabólgu
Að lokinni þessari meðhöndlun
var húðin nærð og hituð og þvínæst
hófst besti hlutinn, en það er
nuddið. Rósa nuddaði húðina á
fagmannlegan hátt og notaði til
þess olíu með orkideum. Þeir sem
kannast við þá tegund streitu, að
Rósci Jónasdóttir á snyrtistofu sinni, en á efri myndinni er Rósa að
setja á maska.
4