Alþýðublaðið - 29.02.1924, Qupperneq 1
'út mf ^&lþýðufioklrmms
1924
Föstudaglnn 29. febrúar.
51. tölublað.
E.. s. „Gullfoss44
fer írá Reykjiivik 8. marz nm Bergen tll Kanpmannaliafnar.
T< kur flsk fyrir gegnumgangandi flntnlngsgjald til Spánar og
Italín til cmMeðslu í Bergen 15 marz. — Flját og góð ferð
fyrir Ssksendingar til Miðjarðariiafsins.
H.f. Eimskipafélag Islands.
Maðar brennur inni.
ísafirbi 29. febr.
1
Fangahúsið bór brann í nótt.
Unglingspiltur 17 ára, BjömKristj-
ánsson að nafni, brann iuni til
bana í því. FB.
Erlend símskejti.
Khöfn 27. febr.
Takmörkun vígbúnaðar.
Ráðstefna alþjóðabandalagsios
um takmörkun vígbúnaðar á sjó
er talin haia orðið árangurslaus,
enda þótt alþjóðasatnbandinu
væru í lok ráðsteinunnar sendar
ýmsar tiílögur í málinu. Það eru
einkum Rúsaar(?) og Spánverjar,
sem hafa beltt sér á móti tiilög-
um þoim, sem íram voru bornar
um takmörkun vígbúnaðar.
Khöfn, z8. febr.
Belgjastjórn fellnr.
Frá Briisitl er símað: Ráðu-
neyti Theuniss hefir sagt at sér.
Astæðan til frátararinnar er sú,
að þingið hefir með 95 atkvæð-
um gegn 79 felt frumvarp stjórn-
arinnar um viðskiftasamning við
Frakka.
Yerkbaunið víkkað.
Frá Kristjaníu er símað: Vinnu-
veitendur hafa íært út verk-
bannið, og hafa nú bæzt við
12000 verkamenn við brugghúsin,
verksmlðjur tii áburðarvinslu úr
loftinu og við sögunarœylnur.
Bretar og ítulir.
Eitir að það fiéttist, að Bretar
ætli að láta meginhluta flota
sfns verða í Miðjarðarhafinu
framvegis, hefir Mussolini tilkynt
ráðuueytl sfnu, að uú beri ítöl-
um að fara að undirbúa stór-
felda ankningu ítalska flotans.
Hcnderson Kvassyrtur.
Arthur Henderson innanríkis-
ráðherra Breta hefir á kjósenda-
fundi ráðist mjög einbeltt á frið-
arsamningana frá Versailles og
talið þá vera hinn eiginlega
þröskuld í götu fjárhagslegrar
viðreisnar Evrópu. Urðu þessi
ummæli til þess, að um 30 fyr-
irspurnir komu fram til stjórnar-
innar f neðrl málstofu enska
þingsins.
MacDonald hefir f tilefni af
þessu lýst yfir þvf, að þessi um-
mæli væru að eins einkaskoðun
Hendersons. Á ráðherrafundi f
gærkveldi brýndi hann fyrir ráð-
herrunum að vera varkárari f
orðnm framvegis. Þó 'ráðuneytið
f heiid væri rnáske sammála
Henderson, yrði framvegis að
forðast, að þessu Ifk ummæli
kæmu fram, vegna bandamSnna
Breta.
Hafís.
ísaflrfti 28. febr.
í gær sáu bátar, sem réru til
fiskjar, hafís út af ísafjaröardjúpi,
en líklegt er, að það sé að eins
hrafl.
Aflabrögb eru betri en ábur, en
sjaldan gæftir. (FB.)
Vísnakver Fornölfs
kostár að eins kr 7,50 innb.
>Sú var ekki svikin rót,
er svona spratt af leggur;
af íslands fæddist engri snót
íslenzkari seggur.<
Vísnakver Fornól s er íslenzk-
asta bókin, sem út hefir komið
á sfðustu ttmum.
>DagsbPÚn<.
Til leiðbeiningar þeim mönnum
úr >Styrktarsjóði verkamanna í
Dag>brún<, er ekki mættu á að-
alfundi sjóðsins, svo og þeim
Dagsbrúnarmönnum, er kynnu að
óska að verða sjóðstyrkjendur,
gefst hér naeð til kynna, að
stjórn sjóðsins skipa þesslr menn:
Kjartan Ólafsson Hverfisg. 58 A.,
Ottó N. Þoriáksson Vesturg. 29,
Björn Jónssou Stýriœaonastíg 8B,
Jón Jónssou Bræðraborgarstíg
21 og Bjarni Einarsson Selíand -
stíg 30.
I. O. G. T.
Sfejaldbrelðarfondnr í kvöid.
Ný bók. Maðup frá Suður-
■......... Ameriku. Pantanir
afgreiddar ■ síma 1269.
Stúlká um fermingu óskast
strsx til léttrá stsrfa. Örsnur
atúlka tyrir. A. v. á.