Fjarðarpósturinn - 12.01.1995, Side 1
r
GLÆSIR
h
EFNALAUG • STOFNAÐ 1936
Efttalaug
Þvottahús
Smókingaleiga
Vinnufatahreinsun
Þrír íslendingar
um borð í
Anyksciai
Endurbæt-
ur upp á
53 millj-
ónir króna
Litháenski togarinn
Anyksciai er nú farinn á út-
hafskarfaveiðar á miðin suður
á Reykjaneshrygg. Þrír Is-
lendingar verða um borð í
þessari fyrstu veiðiferð togar-
ans á vcgum Sog hf. Togarinn
liefur legið í Hafnarfjarðar-
höfn frá því í nóvember meðan
unnið hefur verið að endur-
bótum á honum en þær kost-
uðu alls um 53 milljónir
króna.
Steingrímur Matthíasson
framkvæmdastjóri Sog lif.. sem
hefur togarann á leigu, segir að
endurbæturnar hafi m.a. verið að
setja nýtt vinnsludekk um borð,
nýja víra og hlera. ný siglingar
og fjarskiptatæki auk ýmislegs
annars viðhalds og endurbóta.
Anyksciai er rúmlega 2.000
tonn að stærð og um borð verða
33 erlendir sjómenn auk íslend-
inganna. Að sögn Steingríms er
mikil þekking og reynsla á út-
hafskarfamiðunum til staðar hjá
hinni erlendu áhöfn togarans.
Þar að auki megi nefna að togar-
inn var á veiðunt í ''sfldarsmug-
unni” í fyrra.
Togarinn fór fyrst út í
prufutúr í síðustu viku en kom
fljótlega inn aftur sökum hins
slæma veðurs sem gerði þá.
Hann lagði svo aftur af stað síð-
degis á sunnudag. íslendingarnir
um borð eru þau Hörður Guð-
jónsson fyrrum skipstjóri á Júní
sem er leiðangursstjóri, Einar
Bragi Bergsson sem verður að-
stoðarmaður hans og Jóhanna
Eiríksdóttir sem er vinnslustjóri.
Þrettándafjör
Hafnfirðingar urðu að fresta þrettándagleði sinni frá in og skemmtu allir sér hið besta. Töluverður fjöldi
föstudagskvöldi og frani á sunnudag vegna veðurs. Hins- jólasveina, álfa og annara furðufugla, var á ,sveimi á
vegar var mikið fjör á Ásvöllum þar sem gleðin var hald- hátíðarsvæðinu. SJÁ NÁNAR Á BLS. 2
Líkur á meirihlutasamstarfi Jóhanns og Alþýðuflokks minnka
Viðræðurnar stranda
á vali bæjarstjóra
Líkur á að Jóhann G. Bergþórs-
son og Alþýðuflokkurinn nái að
mynda nýjan meirihluta í bæjar-
stjórn fara nú minnkandi. Viðræð-
ur þessara aðila stranda á vali bæj-
arstjóra. Jóhann gerir þá ófrávíkj-
anlegu kröfu að bæjarstjóri verði
ópólitískur fagmaður en það geta
Alþýðuflokksmenn ekki sætt sig
við.
I samtölum við Fjarðarpóstinn
segja bæði Jóhann G. Bergþórsson
og Ingvar Viktorsson að helsta á-
greiningsefni þeirra í viðræðunum
sem nú standa yfir muni verða val á
bæjarstjóra. "Við óskum þess að bæj-
arstjórinn komi úr okkar röðum,"
segir Ingvar. Jóhann aftur á móti seg-
ir að hann eigi von á átökum í kring-
um skiptingu starfa og embætta í við-
ræðum þeirra.
Magnús Jón Árnason bæjarstjóri
segir að samstarf Alþýðuflokks og
Jóhanns hangi saman á heiftinni
einni. Magnús Gunnarsson oddviti
Sjálfstæðismanna segir að hann líti
svo á að Jóhann haft með ákvörðun
sinni sagt sig úr Sjálfstæðisflokkn-
um.
Meirihluti bæjarstjórnar féll á
sögulegum fundi í bæjarstjórn s.l.
þriðjudag. Enginn starfhæfur meiri-
hluti er nú til staðar og því ríkir
stjórnarkreppa í bænum. Bæði
Magnús Jón og Magnús Gunnarsson
segja að á meðan nýr meirihluti hafi
ekki verið myndaður haldi flokkar
þeirra um stjómtaumana
-SJÁ NÁNAR Á MIÐOPNU
Skemmd-
arverk
upplýst
Rannsóknarlögreglan í
Hafnarfirði heftir upplýst
hverjir stóðu að því að rústa
síniklcfanum í Strandgötu
aðfararnótt nýársdags. Þrír
18 ára piltar hafa viðurkennt
hlutdeiíd sína í verknaðinum.
Samkvæmt upplýsingum frá
RLH voru piltarnir undir áhrif-
um áfengis. Talið er að fleiri en
þeir hafi komið við sögu um
nóttina er klefinn var eyðilagð-
ur.
Póstur og sími vill taka
þennan símklefa niður enda er
hann oft skemmdur á hverju
ári. Bæjaryfirvöld hafa hins-
vegar lagst gegn þeim áformum
og vilja að klefrnn verði áfrani
á þessum stað.
Stúlkur - Fimleikar - Drengir
Fimleikar fyrir börn frá 5 ára aldri
SÉRSTAKIR LEIKSKÓLAHÓPAR fyrir 3-5 ára á sunnudögum.
Fimleikar auka sjálfstraust, félagslund og líkamsburð
FIMLEIKAFÉLAGIÐ BJÖRK, Haukahúsinu við Flatahraun, sími 565 2311