Fjarðarpósturinn - 19.01.1995, Page 1
Góður árangur hjá Héraðsdómi Reykjaness
Fjöldi mála jókst um
tæplega 200 milli ára
Meirihluti sakamála afgreiddur innan mánaðar frá ákæru
Alls komu 560 mál til meðferðar
hjá Héraðsdómi Reykjaness á síð-
asta ári og jókst máiafjöldinn um
tæplega 200 frá árinu 1993 er 376
mál voru afgreidd frá dóninum. Af
málafjöldanum í fyrra voru 2/3 hlut-
ar sakamála afgreidd frá dónmum
innan mánaðar frá ákæru, eða sam-
tals 370 mál, og alls voru á árinu af-
greidd 533 mál sem telja verður
mjög góðan árangur hjá dómnum.
Samkvæmt upplýsingum frá Hér-
aðsdómi Reykjaness komu 601 ein-
staklingur við sögu hjá dómnum á
síðasta ári. Skipting mála milli ríkis-
saksóknara og lögreglustjóra var
þannig að frá ríkissaksóknara komu
115 mál til meðferðar og fjöldi á-
kærða í þeim nam 140 einstakling-
um. Frá lögreglustjórum komu 442
mál og fjöldi ákærðra í þeim nam
458 einstaklingum. Fjölgun mála
milli áranna er að mestu hjá lög-
reglustjórum.
Þegar skoðað er yfirlit yfir mála-
tíma hjá dómnum kemur í ljós eins
og fyrr segir að meirihlutinn hlaut
afgreiðslu innan mánaðar frá ákæru.
Yfir 90% mála hlaut afgreiðslu hjá
dómnum innan 90 daga frá ákæru.
Af þessum málum lauk 235 þeirra
með dómum en 152 með viðlagaá-
kvörðunum. Niðurfelldar kærur voru
129 talsins, endursendar kærur 6
talsins og í tveimur tilvikum var á-
kæru vísað frá dómi.
Fjölmenni á rússneskum dögum
Fjölmenni var á rússneskum dögum í Hafnarborg um síðustu helgi. Þar var dóttir forstöðumaður Hafnarborgar segir að dagamir hafi heppnast vel en hin-
sett upp myndlistarsýning með verkum eftir rússneska myndlistarmenn frá ir rússnesku listamenn hurfu af landi brott í gær eftir að hafa komið fram víða
Tatarstan. Auk þess komu fram tónlistarmenn frá þessu héraði. Pétrún Péturs- á höfuðborgarsvæðinu.
Sættir í
Sjálfstæð-
isflokknum
Sættir hafa nú tekist í
Sjálfstæðisflokknum í Hafn-
arfirði og fyrri meirihluti
flokksins og Alþýðubanda-
lags er kominn aftur til valda.
Jóhann G. Bergþórsson hefur
ákveðið að taka sér frí frá
störfum sem bæjarfulltrúi
þar til félagsmálaráðuneytið
liefur fjallað um kæruna á
viðskipti Hagvirkis-Kletts og
bæjarsjóðs.
Það voru þeir Þórarinn Jón
Magnússon formaður fulltrúa-
ráðs Sjálfstæðisflokksins og
Arni Grétar Finnsson fyrrum
oddviti flokksins í bæjarstjóm
sem náðu sáttum við Jóhann en
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra kom einnig við sögu og
var samkomulagið innsiglað á
skrifstofu forsætisráðherra í
vikunni.
-SJÁ NÁNAR Á BLS. 2
Keyrt aftan
á lögreglu
Strætisvagn keyrði aftan á
lögreglubfl í Engidal á þriðju-
dagsmorguninn. Um harðan
árekstur var að ræða og var
einn lögreglumaður fluttur á
slysadeild en meiðsli hans
munu ekki talin alvarleg.
Þetta er í þriðja sinn á tveim-
ur mánuðum sem lögreglubfll
frá Hafnarfirði lendir í um-
ferðaróhappi.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var mikil hálka orsök
þessa óhapps. Lögreglubíllinn
skemmdist töluvert og varð að
flytja hann af slysstað með
kranabíl.
Umferð í Hafnarfirði hefur
að öðm leyti verið stóráfalla-
laus undanfama daga þrátt fyrir
að mjög þung færð hafi verið í
bænum.
Stúlkur - Fimleikar - Drengir
Fimleikar fyrir börn frá 5 ára aldri
SÉRSTAKIR LEIKSKÓLAHÓPAR fyrir 3 - 5 ára á sunnudögum
Fimleikar auka sjálfstraust, félagslund og líkamsburð
FIMLEIKAFÉLAGIÐ BJÖRK, Haukahúsinu við Flatahraun, sími 565 2311