Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 02.02.1995, Page 1

Fjarðarpósturinn - 02.02.1995, Page 1
Slökkvitæki - Reykskynjarar Eidvarnarteppi 15 % afsláttur RAFMÆTTI Miðbæ • s. 555 2000 500.000 kr til Súðavíkur Bæjarstarfsmenn í Hafnar- firði stóðu fyrir söfnun til handa Súðvíkingum og var mjög mikil þátttaka í henni. Alls söfnuðust rúnúega 250 þúsund krónur en hver bæjar- starfsmaður lét 500 kr. af hendi rakna. A síðasta fundi bæjarráðs var síðan ákveðið að leggja fram jafnháa tjárhæð á móti bæjar- starfsmönnum þannig að í heild mun bærinn með þessu móti leggja fram rúmlega hálfa milljón kr. Þá hefur Samband ísl. sveitar- félaga ákveðið að hefja undirbún- ing að samvinnu allra sveitarfé- laga á landinu um aðstoð við Súðavfkurhrepp og tekur Hafnar- fjörður þátt í því starfi. Taliö að 3-4 stöðugildi vanti til að fullmanna lögregluliðið Fjör í leikhúsinu Unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar sýnir nú leik- inu á frumsýningu en myndin er af hluta hópsins fyrir þá ritið Leiðina til hásætis sem byggt er á sögu Jan Terlows. sýningu. Næst verður verkið sýnt annað kvöld. föstudag, Alls taka 23 unglingar þátt í sýningunni en þau koma úr kl. 20 og á þriðjudaginn á sama tima. Leikstjórar eru grunnskólum bæjarins. Góður rómur var gerður að verk- Gunnar Gunnsteinsson og Sóley Elíasdóttir Stöðugildum við lögregluna í Hafnarfirði hefur ekki fjölgað undanfarin fjögur ár þrátt fyrir mikla fjölgun bæjarbúa á því tímabili. Talið er að nú skorti 3-4 stöðugildi til að mannafli lögregl- unnar sé í eðlilegu Itorfi. Gissur Guðmundsson rannsóknarlög- reglumaður segir að leynt og ljóst konii þessi samdráttur niður á frumkvæði í rannsóknum. Guð- mundur Sophusson sýslumaður segir að ekki megi gleyma að þrátt fyrir þennan samdrátt sé haldið uppi fullri löggæslu í bænum. Hinsvegar fylgi þessu ástandi mik- ill aukakostnaður í yfirvinnu og því sé ekkert hagkvæmara að lög- regluliðið sé ekki fullmannað. “Nefna má að undanfarið höfum við tekið mun minna af bruggurum en áður þótt ekkert bendi til að starf- semi þeirra fari minnkandi,” segir Gissur. “Þetta er meðal annars afleið- ing þess að yfirvinnukvótar eru fljótt uppurnir sökum þess að manna verð- ur vaktir með aukamannskap.” I máli Gissurs kemur ennfremur fram að á sama tíma og þetta ástand er hefur orðið auking í kærumálum vegna innbrota og skemmdarverka. “Þetta er vandamál sem ekki hefur enn verið tekið á, það er aukning verkefna á sama tíma og fjöldi lög- gæslumanna hér hefur staðið í stað í nokkur ár,” segir Gissur. Guðmundur Sophusson sýslumað- ur segir að bæta þurfi við 3-4 stöðu- gildum í lögreglunni í Hafnarfirði til að rekstur hennar sé þægilegur og geti mætt tilfallandi áföllum eins og veikindum. “Eins og ástandið er nú höfum við þurft að kaupa mikið af aukavöktum og það er dýrt. Því er enginn spamaður fólgin í því að fjölga ekki mönnum,” segir Guð- mundur. “Og það er rétt athugað hjá Gissuri að þegar yfirvinnukvótinn er skertur kemur það niður á starfi rann- sóknardeildar en þar á bæ hafa menn verið duglegir við að upplýsa fíkni- efna- og bruggmál.” Guðmundur segir að þrátt fyrir á- standið sé haldið upp öflugu og góðu almennu lögreglustarfi í bænum og menn geri sitt besta til að hafa þau mál í lagi. Tilboð opnuð í Höfðabakkabrúnna Hafnfirskir verk- takar voru með lægsta tilboðið Tilboð hafa verið opnuð í Höfðabakkabrúnna og voru tvö hafnfirsk verktakafyrirtæki, JVJ hf. og Hlaðbær-Colas hf, ásamt Alftarós með lægsta tilboðið. Að sögn Kolbrúnar Jónsdóttur fram- kvænidastjóra JVJ eru allar líkur á að þessi hópur fái verkið en til- boð þeirra nam rúmlega 374 milljónum kr. eða 85.5% af kostn- aðaráætlun. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúmlega 437 milljónir kr. og buðu fjórir aðilar í verkið. Hæsta tilboð átti Istak og var það 99,7% af kostn- aðaráætlun. Kolbrún Jónsdóttir segir að verkaskipting hópsins sem átti lægsta tilboðið sé þannig að JVJ sjái um jarðvinnu, Hlaðbær-Colas um malbikun og Alftarós um sjálfa brúnna. Framkvæmdir við .verkið eiga að hefjast strax og fyrsti áfangi verks- ins, það er umferð um brúnna, eigi að vera tilbúinn í september en loka- áfangi, það er frágangur verksins, á næsta ári. JVJ og Hlaðbær-Colas hafa unnið náið saman að mörgum verkefnum að undanfömu og er þetta verk einn þáttur þess samstarfs. Samdráttur í löggæslunni kemur niður á rannsóknum ' Árshátiðir Þorrablótið Hjá okkur fáið þið matinn Veitingahúsið GAPi-mn Arshátíðir - Erfisdrykkjur Brúðkaup - Árgangaveislur Fermingar o. fl. Seljum m.a frá smurbrauðsstofu snittur - kaffihlaðborð - kokkteilboð v/Reykjanesbraut s. 555 4477 Verð pr. mann út í bæ frá 1.200 • 1.400 Verð pr. mann í veislusölum okkar frá 1.800 • 2.000

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.