Fjarðarpósturinn - 16.02.1995, Side 1
Slökkvitæki - Reykskynjarar
Eidvarnarteppi 15 % afsláttur
RAFMÆTTI
Miðbæ - s. 555 2000
Upphlaup krata í bæjarstjórn
Stormur í vatnsglasi
Það var fjölmennt í áheyrenda-
sætunum á bæjarstjórnarfundi s.l.
þriðjudag. Þar var mættur Sverrir
Ólafsson, listamaður og staðar-
haldari í Straumi ásamt fríðu tiði
listamanna og tjölmiðlafólks frá
höfuðborginni. Tilefnið var sú á-
kvörðun meirihluta bæjarráðs,
gegn atkvæðum alþýðuflokks-
manna, að segja Sverri upp starfi
umsjónarmanns í Straumi eins og
segir í bókun bæjarráðs frá 9. þ.m.
Einhver hafði lekið því í útvarpið
að búast mætti við átakafundi í
Opna Café
Royale
menn
hótel?
Þeir bræður á Café Royale,
Helgi og Ingólfur Einarssynir,
vinna nú hörðum höndum að því
að kanna til hlítar möguleika á að
opna hótel í Strandgötunni. “Við
erum að athuga möguleika á að
kaupa húsið hér í Strandgötu 28,
en það er í eigu tveggja Lífeyris-
sjóða, það mun skýrast á næstunni
hvort það getur gengið.
Við höfum látið gera grófa kostn-
aðaráætlun og teljum grundvöll til
rekstursins ef hagstæð lán fást. Það
eru fjögur ár síðan við fórum fyrst að
huga að þessu, en á meðan umræðan
um hóteltuminn var í gangi, þá á-
kváðum við að bíða og sjá hvað yrði
úr þeim hugmyndum. Þegar það mál
datt upp fyrir, þá fórum við aftur af
stað”. segja þeir bræður. “Það er mik-
il uppsveifla í ferðamálum í Hafnar-
firði í dag og ef við ætlum að fá ann-
að en molana frá Reykjavík, þá verð-
um við að koma upp góðu hóteli
bæta þeir við.
bæjarstjórn um þetta mál og því
litu nokkrir Hafnfirðingar inn fyr-
ir forvitnissakir.
Það kom fram í umræðunum að
fyrripart árs 1993 var ákveðið að
stjórn um rekstur Straums undir for-
ystu Jónu Óskar Guðjónsdóttir, sem
bæjarstjóm hafði kosið, yrði sett af
og starfsstjórn þriggja embættis-
manna bæjarins sett á til að koma
með tillögur um framtíðarskipun
mála í Straumi. A meðan var um-
sjónarmaður staðarins, Sverrir Ólafs-
son, ráðinn tímabundið í 50% starf
eða þar til nefndin hefði lokið störf-
um. Samkvæmt því hefði Sverrir átt
að hætta störfum um leið og tillög-
umar lágu fyrir. Meirihlutinn ákvað
hins vegar að segja Sverri upp með
þriggja mánaða fyrirvara. Starfs-
nefndin skilaði inn tillögum seint á
síðasta ári og kom þar með fjóra
möguleika um framtíðarskipun
Straums. Það mátti heyra á meirihlut-
anum að líkur væri á að endanlega
yrði gengið frá framtíðarskipun mála
í Straumi innan þriggja mánaða og ef
ákveðið væri að ráða umsjónarmann
áfram þá gæti Sverrir að sjálfsögðu
sótt um staifið.
Kratar töluðu mikið um að meiri-
hlutinn gerði mikið af því að skjóta
fyrst og spyrja svo, en þeir virðast nú
í þessu máli hafa hent frá sér vopni
Astrala “Boomerangi” sem hefur
þann slæma vana, að hann kemur í
hnakkann á þeim sem kastar ef hann
hittir ekki skotmarkið. Tillögu krata
um að bæjarstjóm hætti við uppsögn
Sverris var vísað til Bæjarráðs.
Ekkert nema sigur kemur
til greina, segir Birgir
Björnsson
Hann segir frá fyrstu HM
sem ísland tók þátt í.
Sjá viðtal á bls. 4
Hver verður ímynd
Hafnarfjarðar í framtíð-
inni? Brandarabær,
Víkingabær eða fallegi
bærinn í hrauninu.
Sjá viðtal við Ásu Maríu
Valdimarsdóttir á bls. 5
Stjörnuspá
vikunnar
á bls. 2
Hann byrjaöi um 1960,
og þá að lyfta
járnbrautarhjólum.
Og hann er enn að,
hann Júlíus Bess.
Sjá bls. 7.
Víkinga-
leiöangur
til Hamborgar
sjá bls. 2.
Biskupinn og Gaflararnir
„Ég fæ þá að vera Gaflari dálitla stund,” sagði herra Ólafur Skúlason biskup þegar hann var beðinn um að
koma og vera með Hafnfirðingunum á mynd eftir vígslu fimm djákna s.l. sunnudag. Þar af voru þrír Hafn-
firðingar sem hér skipa neðri röðina. F.v.: Rósa Krist jánsdóttir, Brynhildur Ósk Sigurðardóttir og Sigríður
Kristjánsdóttir. Meðal vígsluvotta voru ennfremur tveir prestar héðan, þeir séra Einar Eyjólfsson og séra Sig-
urður H. Guðmundsson, en hann er eiginmaður Brynhildar Óskar.
Eins og sjá má á myndinni, sem var tekin eftir vígsluna, ríkti góður andi í hópnum á þessari hátíðarstund. Orð
biskups eru ekki síst dæmi um það og gaman þótti blaðamanni Fjarðarpóstsins að heyra og sjá kirkjunnar
fólk slá á létta strengi í dómkirkjunni.
Valkostur
i skoðun bifreiða
............fyrir þig
.... viS Helluhraun
Aöalskoöun hf.