Fjarðarpósturinn - 06.04.1995, Blaðsíða 1
J
FRÉTTABLAÐ HAFNFIRÐINGA
14. tbl. 13. árg. 1995
Fimmtudagur 6. apríl
Verð kr. 100,-
Þvottavélar - Þurrkarar
Eldavélar - ísskápar
RAFMÆTTI
Miðbæ - s. 555 2000
Veiðileyfa- gjald er til umræðu -sjá bls. 5
Bæjaryfirvöld hafna umsókn starfsfólks leikskóla í STH
STH stefnir bæjaryfir-
völdum fyrir dómstóla
Könnun á
húsnæöis-
málum
aldraöra
-sjá bls.7
Skátar leita
eftir
stuðningi
-sjá bls.10
Nöfn
ferming-
arbarna um
páskana
-sjá bls.6
Bæjaryfirvöld hafa ákveðið að
hafna umsókn starfsfólks á Icik-
skólum bæjarins á inngöngu í
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
(STH). Þetta var samþykkt á síð-
asta fundi bæjarráðs. Stjórn STH
hefur í framhaldi af þessu ákveðið
að stefna bæjaryfirvöldum fyrir
dómstóla til að fá úrskurð þeirra í
málinu. Arni Guðmundsson for-
maður STH segir að málsóknin sé
fyrst og fremst byggð á því að fólk
eigi að geta valið sjálft hvaða
verkalýðsfélagi það vilji tilheyra.
Gunnar Rafn Sveinbjörnsson bæj-
arritari segir að bæjaryfirvöld hafi
ætíð haft þá skoðun að verkalýðs-
félögin eigi sjálf að skera úr um í
þessu álitamáli þó að þau í sjálfu
sér viðurkenni rétt einstaklinga til
að velja sér stéttarfélag.
Eins og Fjarðarpósturinn hefur
áður greint frá er hér um að ræða 81
starfsmann leikskólanna sem nú til-
heyra Verkalýðsfélaginu Framtíðin
en hafa sótt um inngöngu í STH.
Framtíðin hefur verið alfarið á móti
þessum fyrirætlunum og segir að fé-
lagið eigi samningsbundinn forgang
til þessara starfa og að ef starfsfólkið
gangi úr Framtíðinni verði störf
þeim auglýst að nýju.
Ámi Guðmundsson segir að fleiri
hópar en starfsfólk leikskólanna hafi
sótt um inngöngu í STH og nefnir
sem dæmi ræstitækna í skólum bæj-
arins. “Það eru nokkur svipuð mál í
gangi annarsstaðar á landinusegir
Árni. “Svipað og hér hafa þessi for-
gangsákvæði um rétt einstakra
verkalýðsfélaga til ákveðinna starfa
valdið töluverðri óánægju meðai
starfsfólksins.”
-SJÁ NÁNAR Á BLS. 10
Sú fegursta úr Hafnarfirði
Berglind Ólafsdóttir 17 ára stúlka úr Hafnarfirði var kjörin Ungfrú
Reykjavík um síðustu helgi. Þetta mun í fyrsta sinn sem hafnftrsk stúlka
hlýtur þennan eftirsótta titil. -SJÁ NÁNAR Á BLS.
Músíktilraunir Tónabæjar
Þær bestu eru
úr Hafnarfirði
Það er óhætt að segja að ungir
hafnfirskir tónlistarmenn hafi
komið séð og sigrað á
Músíktilraunum Tónabæjar sem
lauk um síðustu helgi. Hafnfirskar
hljómsveitir náðu bæði fyrsta og
öðru sætinu í keppninni en alls
tóku 32 hljómsveitir af öllu land-
inu þátt.
Hljómsveitin Botnleðja varð í
fyrsta sæti og Stolía í öðm sæti kepp-
ninnar. Þess má til gamans geta að
trommuleikararnir _ í báðum
hljómsveitunum em bræður.
Botnleðja sem leikur pönkskotið
rokk er skipuð þeim Heiðari Emi
Kristjánssyni á gítar/söngur, Haraldi
Frey Gíslasyni á trommur og
Ragnari Páli Steinssyni á bassa.
Stolía sem leikur melódískt rokk
án söngs er skipuð þeim Amari Þór
Gíslasyni á trommur, Jóhanni
Gunnarssyni á bassa og Einar Loga
Snorrasyni á gítar. Amar var valinn
besti trommuleikari keppninnar og
Jóhann besti bassaleikarinn.
Heiðar Örn Kristjánsson segir í
samtali við Fjarðarpóstinn að þeir
ætli að halda sínu striki og næst á
dagskrá sé að gefa út geisladisk með
fmmsömdu efni. Þeir fengu samtals
35 upptökutíma í tveimur
hljóðvemm og ætla sér að nýta þá í
það.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Hafnfirðingar sigra í keppninni því
hljómsveitin Naflastrengir sigruðu
árið 1991.
Næsta blað kemur út þann 27. apríl
Næsta tölublað Fjarðarpóstsins kernur út þann 27. apríl þar sem tveir næstu
fimmtudagar eru skírdagur og sumardagurinn fyrsti. Ritstjóm blaðsins óskar
öllum Hafnfirðingum nær og fjær gleðilegra páska.
MIÐBÆR
HAFNARFIRÐI
BINGO BIOSSI I MIÐBÆ
á milli ki 14 - 16 laugardag
22 Verslanir - Næg bílastæöi
Banki - Veitingahús - Apótek
Skemmilegar uppákomur - Hlýlegt umhverfi
Opið
Mán. - Fim. 1OtiO - 78.-OÖ
Föstud. 10flO -19d)0
Laugard. 10K)0 - 16fi0