Fjarðarpósturinn - 27.04.1995, Blaðsíða 1
Háholtið selt G S Múr-
verki á 50 milljónir kr.
-Bæjarsjóður Hafnarfjarðar fær því 15 milljón króna veð sitt til baka
Bæjarráð hefur samþykkt
samhjóða að selja G.S. Múrverki
eignina Háholt 16 fyrir sléttar 50
milljónir króna. Með því fær
bæjarsjóður 15 milljón króna veð
sitt til baka en þetta veð var veitt
Byggðaverki á sínuin tíma.
Viðskiptabanki Byggðaverks átti
hinsvegar 35 milljón kr. veð á
undan veði bæjarsjóðs.
Magnús Gunnarsson formaður
bæjarráðs segir að með sölunni sé
Kvartað
undan
hana-
gali
Lögreglunni í Hafnarfirði
barst kvörtun frá íbúum við
Austurgötu vegna hanagals úr
garði við Hverfisgötu. Hani
þessi mun hafa þann sið að
gala ætíð kl. 4.00 á morgnana
og að sögn kunnugra er hægt
að stilia klukkuna eftir galinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni mun garðurinn við
Hverfisgötu vera eina "pútna-
húsið" í bænum en heimilisfólk-
ið þar hefur nokkur hænsni í
garðinum. Þetta mun ekki í fyrs-
ta sinn sem kvartað er undan
gali hanans af nágrönnum sem
þykir töluvert ónæði af hljóðun-
um svo snemma morguns.
Að sögn lögreglunnar mun
hún koma kvörtunum á framfæri
við bæjaryfirvöld.
þetta mál í höfn hvað bæjaryfirvöld
varðar.
“Vonandi verður síðan hröð og
góð uppbygging á því sem eftir er að
gera við eignina,” segir Magnús.
Nú er verið að leita kaupenda að
fleiri eignum sem bæjarsjóður leysti
til sín frá Byggðaverki eins og lóð í
Garðabæ. Samtals var bæjarsjóður í
ábyrgð fyrir um 100 milljónum kr.
hjá Byggðaverki.
Eins og kunnugt er af fréttum
Fjarðarpóstsins var Háholtið auglýst
tvisvar sinnum til sölu en öllum
tilboðum sem bárust var hafnað.
Hinsvegar töldu bæjaryfirvöld að
tilboð G.S. Múrverks væri grunnur til
áframhaldandi viðræðna við fyrir-
tækið og nú liggur niðurstaðan fyrir
Töluverðar deilur
Töluverðar deilur urðu um söluna
á Háholti 16 á bæjarstjómarfundi
sem haldinn var fyrir páska. Ámi
Hjörleifsson hóf þá umræðu með
fyrirspum um afhverju hæsta tilboði í
eignina hefði ekki verið tekið.
Magnús Jón Ámason bæjarstjóri
svaraði því til að bæjarráð hefði
samþykkt einróma að ganga til
samninga við G.S. Múrverk í
framhaldi af því að öllum tilboðum
var hafnað og það fæli ekki í sér að
verið væri að taka lakara tilboði.
Metþátttaka í víðavangshlaupi
Metþátttaka varð í víðavangshlaupi Hafnarfjarðar og Myndin er tekin þegar flokkur stúlkna 5 ára og yngri
Eimskips á sumardaginn fyrsta. Alls tóku 640 þátt í lagði af stað í hlaupinu.
hlaupinu en keppt var í níu flokkum. SJÁ NÁNAR Á BLS. 7
Patrick
Huse í
Hafnarborg
-sjá bls.2
Lögreglu-
félagið
er 40 ára
-sjá bls.4
Löggiltir
slökkvi-
■iðsmenn
-sjá bls.5
Úrslitin
í lceCup
mótinu
-sjá bls.7