Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 11.05.1995, Síða 1

Fjarðarpósturinn - 11.05.1995, Síða 1
Hafnarfjörður, Kópavogur, Garðabær og Bessastaðahreppur Hugmyndir um sam- eiginlega vatnsveitu Bæjarfélögin Hafnarfjörður, Kópavogur Garðabær og Bessa- slaðahreppur hafa hug á að því að koma sér upp sameiginlcgri vatns- veitu. Málið er á frumstigi en bæj- arráð Kópavogs hefur samþykkt fyrir sitt leyti að fenginn verði hlutlaus ráðgjafi til að skoða nánar hagkvæmni þessa. Málið hefur einnig verið kynnt í bæjarráði Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Magnús Jón Arnason bæjarstjóri segir að þetta sé hugmynd sem er vel þess virði að skoðuð sé nánar. Þórarinn Hjaltason framkvæmda- stjóri framkvæmda- og tæknisviðs Kópavogsbæjar segir að lausleg at- hugun bendi til að þessi sameiginlega vatnsveita sé hagkvæm enda hefði ekki verið farið af stað nema svo væri. “Það er lítið annað hægt að segja um málið á þessu stigi,” segir Þórarinn. Aðspurður um hvort neytendur myndu finna fyrir hagkvæmni í formi lægra vatnsverð segir Þórarinn að svo ætti að vera til lengri tíma litið. Hinsvegar sé um kostnaðarsama framkvæmd að ræða ef farið verður út í verkið. Ef af þessum hugmyndum verður mun hin nýja vatnsveita fá vatn úr Kaldárbotnum í Hafnarfirði. Bjöm Amason bæjarverkfræðingur í Hafn- arfirði segir að þar sé nægilegt vatn að finna til að þjóna þessu svæði og gott betur. “Kaldá er yfirfall úr þess- ari lind og ef út í það er farið er vatnsmagnið þarna hið sama og Reykvíkingar hafa úr að spila,” segir Bjöm. I máli bæjarverkfræðingsins kem- ur fram að það séu einkum tveir þætt- ir sem kanna þurfi í þessum hug- myndum um sameignlega vatnsveitu. Annarsvegar sé um öryggisþáttin að ræða en Almannavarnarnefnd geri þá kröfu að vatnsveitan yrði tengd við Reykjavík og hinsvegar vatnsöflunin en ljóst sé að vatnsmagnið er örugg- lega viðunandi. Heinaste kominn með 500 tonn Verksmiðjutogarinn Heinaste er kominn nteð unt 500 tonna afla á úthafskarfa- miðunum suður á Reykjanes- hrygg. Jón Guðmundsson for- stjóri Sjólaskipa sem gerir út togarann segir að Heinaste liafi verið mánuð á miðunum nú. I upphafi hafi veiðin verið treg en á síðustu dögum hafa aflabrögðin skánað. Ekki er von á Heinaste til heimahafnar í bráð enda getur togarinn verið úti í þrjá mánuði í einu án þess að koma til hafn- ar. Um borð er hægt að taka allt að 1500 tonna afla í einum túr. Annar togari Sjólaskipa, Har- aldur Kristjánsson landaði full- fernti af úthafskarfa í síðustu viku, alls 320 tonnum. Hann er farinn aftur á miðin. HM stemming Fjarðarpósturinn heimsótti íþróttahúsið í Kaplakrika Rússlands og Kúbu. Það voru ekki hvað síst þegar fyrsti leikurinn í HM þar fór fram í upphafi vikun- grunnskólanemendur sem settu svip sinn á áhrofend- nar. Þótt ekki sé hægt að segja að gestir hafi fyllt húsið var abekkina enda syðja þau hver sitt lið. samt ágætisstemming á leiknum sem var á milli -SJÁ NÁNAR Á BLS. 10 Árni | kjörinn formaður i Vímu- varnar- hlaupið -sjá bls. 6 A karla- ráðstefnu f Svfþjóð -sjá bls. 11 Bæjarstjór-1 inn heldur I með Kúbu I -sjá bls. 10 — Hafnarfjarðar MIÐ B Æ Hafnarfirði sími 565 4960 CRRUMCHN

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.