Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 25.05.1995, Síða 1

Fjarðarpósturinn - 25.05.1995, Síða 1
Tæknivinna vegna flotkvíar kynnt í hafnarstjórn Kostnaður talinn vera um hálfur milljarður kr. Kom alla leiö frá Ástralíu -sjá bls. 5 Bergmálsmælingar í höfninni og Staumsvík ákveðnar Hafnaryfirvöld hafa látið reikna út kostnaðinn sem yrði samfara uppsetningu á flotkví í höfninni. Kostnaðurinn er talinn nema um 475 milljónum króna en nokkrir óvissuþættir eru inn í þeirri upp- hæð sem gæti lækkað hana. Helsta óvissan er botninn fyrir utan Suð- urgarð þar sem áformað er að staðsetja flotkvínna. Af þeim sök- um hefur verið ákveðið að fram- kvæma bergmálsmælingar á þess- um stað sem og í höfninni í Straumsvík. Valgerður Sigurðardóttir formaður hafnarstjómar segir að ákveðið hafi verið að fá verkfræðistofu Kjartans Thors til að annast bergmálsmæling- amar. “Við ákváðum að láta stofuna bergmálsmæla einnig botninn í Straumsvík því slíkt er hagstæðara fyrir okkur þar sem líkur eru á að flotkvíin yrði staðsett þar í framtíð- inni,” segir Valgerður. “Við vitum ekki hvemig botninn er á þessum stöðum en það liggur fyrir að 13 metra dýpi þarf fyrir flotkvínna. Ef botninn er sandur eða leðja mun kostnaður okkar lækka mikið heldur en ef um fast berg er að ræða sem sprengja þarf í burtu.” Valgerður segir einnig að það sé möguleiki á að koma flotkvínni fyrir í Straumsvík fari svo að sjávarbotn- inn fyrir utan Suðurgarð sé illviðráð- anlegur. “Það var Stuðull sem vann fyrir okkur kostnaðarútreikninga og tæknivinnu. I þeim kemur fram að helsta óvissan er botninn og hve mik- ið verk það verður að ná nauðsynlegu 13 metra dýpi.” Málið kom til um- ræðu á bæjarstjómarfundi á þriðju- dag þar sem Valgerður ræddi framan- greinda stöðu þess. Heiðmörk Tvær aspir sagaðar niður Lögreglan í Hafnarfirði hafði afskipti af ökumanni setn sagaði niður tvær aspir í Heiðmörk um helgina. Mað- urinn ók bíl sínum utan vega í Heiðmörk og lenti með bílinn í sjállheldu. Hann greip því til þess ráðs að ná í sög og saga niður aspirnar en samt sem áður sat bíllinn fastur. Að sögn lögregiu fannst bíll- inn í Heiðmörk á laugardags- morgunn. Aspimar sem maður- inn sagði niður voru báðar um 7 metra háar þannig að ljóst er að um töluverð spjöll er að ræða. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur er atvik þetta átti sér stað. Víkingar vekja athygli ytra Víkingahátíðin sem fyrirhugað er að halda í Hafn- hollenskra blaðamanna. Víkingatíminn var settur á svið arfirði í sumar hefur vakið töluverða athygli í fjölmiðlum fyrir þá á við Kaldársel. erlendis. í Fjarðarpóstinum í dag er fjallað um heimsókn -SJA NANAR A MIÐOPNU Skóg- ræktin svarar -sjá bls. 6 Hafnar- fjarðar rallið -sjá bls. 7 Meistari í skylm- ingum -sjá bls. 10 Mikið úrval af hinum vinsxlu ítölsku XAMPOX skóm —------------ Mikið Sköverslun jatnaði a Sanna imnrnmi - s. 565 4960 Herramenn Miðbæ - s. 565 4960

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.