Fjarðarpósturinn - 01.06.1995, Page 3
FJARÐARPÓSTURINN 3
55. Vormót Hraunbúa verður haldið í Krýsuvík
Forseti
íslands
heimsæk-
ir mótið
Um Hvítasunnuhelgina halda
Hraunbúar sitt árlega vormót í
Krýsuvík. Mjög verður vandað til
þessa móts, enda er þetta í 55. sinn
sem Hraunbóar halda vormót en á
þessu ári halda þeir einnig upp á
70 ára afmæli sitt.
Forseti Islands, Fró Vigdís Finn-
bogadóttir mun heiðra mótsgesti með
því að heimsækja þá á laugardaginn
og mun hún gróðursetja fyrstu trén í
nýjum lundi sem Hraunbóar eru að
byrja gróðursetningu í, síðan munu
allir mótsgestir fá tré til að gróður-
setja í hinum nýja lundi.
En það verður margt fleira sér til
gamans gert, því fjölbreytt dagskrá
verður á mótinu að vanda og meðal
dagskráratriða má finna stórkostlega
matreiðslukeppni, sem keppt verður í
bæði á laugardag og sunnudag. Þar
verður enginn annar en hinn land-
skunni Sigurður L. Hali yfirdómari
eða yftrsmakkari. Þá fer fram íþrótta-
keppni, gönguferðir, söngur mun
hljóma frá morgni til kvölds og síðast
en ekki síst varðeldar en kveikt verð-
ur í aðalvarðeldinum á sunnudags-
kvöld.
Settar verða upp fjölskyldubóðir,
sem verða opnar allt mótið fyrir þá
sem vilja koma til að rifja upp gömlu
góðu vormótsstemminguna.
I öllum keppnum mótsgesta er
gert ráð fyrir harðri keppni í að reyna
að móta dómurum. Til að það verði
mögulegt eru þeir merktir sérstak-
lega og tjöldin þeirra líka. Má því bó-
ast við að ýmsu verði laumað til þeir-
ra jafnt að nóttu sem degi. Og eitt er
víst að glaumur, gleði og sannur
skáta andi mun ríkja á mótinu.
Hraunbúar hafa lagt mikla vinnu í
að gera alla aðstöðu sem allra besta í
Krýsuvík og hafa þeir m.a. sett upp
nýja snyrtiaðstöðu. Hraunbóar ætla
sér stóra hluti í Krýsuvík og verður
gaman að fylgjast með starfi þeirra
þar í framtíðinni.
„Þátttaka okkar
styrkir Aflavaka”
-segir Magnús Jón Árnason bæjarstjóri
KNATTSPYRNUSKOLI
Ratleikir og þrautakóngur o. fl.
Sumarnámskeið hefjast
5. júní fyrir yngri börn.
Drengir fæddir '87 og yngri
Stúlkur fæddar '86 og yngri
frá kl. 10:00 - 12:00 (raá mæta kl. 9:00)
Drengir fæddir '85 og '86
Stúlkur fæddar '84 og '85
frákl. 13:00 - 15:00
Allar upplýsingar á Asvöllum
sími 565 2466
IA3-Drjh
ípulagnir - Þjónust
Allan sólarhringinn
Allar almennar pípulat
Farsími 985-33709
^ *
Ferðumst
um eigið fsiand
land i sumar sækjum.
það heim!
Bæjarstjórn hefur samþykkt
samhljóða að Hafnarfjörður kaupi
20% hlut í Aflvaka Reykjavíkur
en greint var frá þessu máli í síð-
asta Fjarðarpósti. Auk þess að
greiða 32 milljónir kr. fyrir hluta-
féið mun bærinn leggja til 5 millj-
ónir kr. á ári í rekstrargjöld til Afí-
vaka. Samningurinn sem gerður
hefur verið er til ársins 1999 og
með honum er nafnið Reykjavík
fellt ór heiti fyrirtækisins. Magnós
Jón Arnason segir að þátttaka
Hafnfirðinga í Aflvaka muni
styrkja fyrirtækið.
Magnós Jón hafði framsögu um
málið á bæjarstjómarfundi í síðustu
viku. í máli hans kom m.a. fram að
eftir að Hafnarfjörður gengur til liðs
við Aflavaka eru góðar líkur á að
ýmsir sjóðir geri það einnig og að
þannig verði fyrirtækið mun öflugra
en það er nó. Þar að auki er áformað
að bjóða öðrum sveitarfélögum inn-
göngu í fyrirtækið á seinni stigum.
Atvinnuefling hf. mun verða
skráður eigandi hlutafjár bæjarins í
Aflvaka og fram kom hjá bæjarstjóra
að hlutimir þyrftu að ganga hratt fyr-
ir sig í samingum um þetta mál því
framhaldsaðalfundur Atvinnuefling-
ar er í þessari viku og aðalfundur
Aflvaka í jóní.
Viðurkenningar veittar
fyrir menningarstörf
Viðurkenningar fyrir menning-
arstörf verða veittar á Sverrisdegi,
1. jóní, í Hafnarborg. Hefst at-
höfnin kl. 17.00 en þrír einstak-
lingar verða heiðraðir fvrir að
hafa auðgað menningar- og listalíf-
ið í bænum.
Fyrsta jóní 1993 var stofnaður
minningarsjóður um hjónin Sverri
Magnússon og Ingibjörgu Sigurjóns-
dóttur en þau gáfu Hafnfirðingum
hóseign sína og listaverkasafn. I ár
verða í fyrsta sinn veittar viðurkenn-
ingar ór sjóðnum.
Við athöfnina munu þau Elín Osk
Oskarsdóttir og Kjartan Olafsson
syngja við undirleik Hólmfríðar Sig-
urðardóttur.
Skólalok í Flensborg á laugardag
Rúmlega 40 stúd-
entar luku prófum
Skólalok vorannar í Flensborg
verða á laugardaginn, 3. jóní, í
Víðistaðakirkju og hefst athöfnin
kl. 10.30. Alls luku rómlega 40
stódentar prófum í vor frá skólan-
um.
Að sögn Kristjáns Bersa Olafs-
sonar skólameistara eru nó 20 ár lið-
in frá því að Flensborg ótskrifaði
stódenta í fyrsta skipi. Af þeim sök-
um er von á fjölda gesta á skólaslitin
nó. A þeim 20 ámm sem Iiðin em
hefurskólinn ótskrifað rómlega 1500
stúdenta.
HAFNARFJÖRÐUR
Suður-Hvaleyrarholt
Breyting á deiliskipulagi við Háholt, Akurholt
HAFNARFJÖRÐUR og Suðurholt
í samræmi við gr. 4.4 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985 er hér auglýst
til kynningar breyting á deiliskipulagi við Háholt, Akurholt og Suðurholt á
Suður-Hvaleyrarholti í Hafnarfirði.
í tillögunni er gert ráð fyrir sambyggðri dagvistun, verslun og þjónustu allt að þrjár
hæðir að Háholti í stað tveggja tólf hæða háhýsa fyrir íbúðir og þjónustu.
Skólalóð er stækkuð inn á núverandi dagvistarlóð og Akurholti lokað að
Suðurholti. Komið er fyrir fimm parhúsum, tíu íbúðum, þar sem nú eru
átta einbýlishúsalóðir ofan Suðurholts.
Ennfremur er lagt til að aðlaga lóðarmörk við Brattholt 1, 3 og 5.
Jafnframt óskar bæjarstjórn eftir því við skipulagsstjóra ríkisins að hann undirriti
uppdráttinn í samræmi við gr. 4.4.1 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi var samþykkt af bæjarstjóm Hafnarfjarðar 11. apríl
s.l. og tillaga að skipulags- og byggingarskilmálum fyrir þessa breytingu
staðfest 23. maí.
Tillagan liggur frammi í afgreiðslu tæknideildar að Strandgötu 6, þriðju hæð,
frá 1. júní til 29. júní 1995.
Abendingum og athugasemdum skal skila skriflega til bæjarstjórans í Hafnarfirði
fyrir 13. júlí 1995. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast
samþykkir henni.
29. júní1995
Bæjarskipulag Hafnarfjarðar
ATHUGIÐ!
/
A kynningartímanum verður Akurholt lokað við Suðurholt og við
neðri mörk skólalóðar Hvaleyrarskóla.