Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 01.06.1995, Qupperneq 3

Fjarðarpósturinn - 01.06.1995, Qupperneq 3
FJARÐARPÓSTURINN 3 55. Vormót Hraunbúa verður haldið í Krýsuvík Forseti íslands heimsæk- ir mótið Um Hvítasunnuhelgina halda Hraunbúar sitt árlega vormót í Krýsuvík. Mjög verður vandað til þessa móts, enda er þetta í 55. sinn sem Hraunbóar halda vormót en á þessu ári halda þeir einnig upp á 70 ára afmæli sitt. Forseti Islands, Fró Vigdís Finn- bogadóttir mun heiðra mótsgesti með því að heimsækja þá á laugardaginn og mun hún gróðursetja fyrstu trén í nýjum lundi sem Hraunbóar eru að byrja gróðursetningu í, síðan munu allir mótsgestir fá tré til að gróður- setja í hinum nýja lundi. En það verður margt fleira sér til gamans gert, því fjölbreytt dagskrá verður á mótinu að vanda og meðal dagskráratriða má finna stórkostlega matreiðslukeppni, sem keppt verður í bæði á laugardag og sunnudag. Þar verður enginn annar en hinn land- skunni Sigurður L. Hali yfirdómari eða yftrsmakkari. Þá fer fram íþrótta- keppni, gönguferðir, söngur mun hljóma frá morgni til kvölds og síðast en ekki síst varðeldar en kveikt verð- ur í aðalvarðeldinum á sunnudags- kvöld. Settar verða upp fjölskyldubóðir, sem verða opnar allt mótið fyrir þá sem vilja koma til að rifja upp gömlu góðu vormótsstemminguna. I öllum keppnum mótsgesta er gert ráð fyrir harðri keppni í að reyna að móta dómurum. Til að það verði mögulegt eru þeir merktir sérstak- lega og tjöldin þeirra líka. Má því bó- ast við að ýmsu verði laumað til þeir- ra jafnt að nóttu sem degi. Og eitt er víst að glaumur, gleði og sannur skáta andi mun ríkja á mótinu. Hraunbúar hafa lagt mikla vinnu í að gera alla aðstöðu sem allra besta í Krýsuvík og hafa þeir m.a. sett upp nýja snyrtiaðstöðu. Hraunbóar ætla sér stóra hluti í Krýsuvík og verður gaman að fylgjast með starfi þeirra þar í framtíðinni. „Þátttaka okkar styrkir Aflavaka” -segir Magnús Jón Árnason bæjarstjóri KNATTSPYRNUSKOLI Ratleikir og þrautakóngur o. fl. Sumarnámskeið hefjast 5. júní fyrir yngri börn. Drengir fæddir '87 og yngri Stúlkur fæddar '86 og yngri frá kl. 10:00 - 12:00 (raá mæta kl. 9:00) Drengir fæddir '85 og '86 Stúlkur fæddar '84 og '85 frákl. 13:00 - 15:00 Allar upplýsingar á Asvöllum sími 565 2466 IA3-Drjh ípulagnir - Þjónust Allan sólarhringinn Allar almennar pípulat Farsími 985-33709 ^ * Ferðumst um eigið fsiand land i sumar sækjum. það heim! Bæjarstjórn hefur samþykkt samhljóða að Hafnarfjörður kaupi 20% hlut í Aflvaka Reykjavíkur en greint var frá þessu máli í síð- asta Fjarðarpósti. Auk þess að greiða 32 milljónir kr. fyrir hluta- féið mun bærinn leggja til 5 millj- ónir kr. á ári í rekstrargjöld til Afí- vaka. Samningurinn sem gerður hefur verið er til ársins 1999 og með honum er nafnið Reykjavík fellt ór heiti fyrirtækisins. Magnós Jón Arnason segir að þátttaka Hafnfirðinga í Aflvaka muni styrkja fyrirtækið. Magnós Jón hafði framsögu um málið á bæjarstjómarfundi í síðustu viku. í máli hans kom m.a. fram að eftir að Hafnarfjörður gengur til liðs við Aflavaka eru góðar líkur á að ýmsir sjóðir geri það einnig og að þannig verði fyrirtækið mun öflugra en það er nó. Þar að auki er áformað að bjóða öðrum sveitarfélögum inn- göngu í fyrirtækið á seinni stigum. Atvinnuefling hf. mun verða skráður eigandi hlutafjár bæjarins í Aflvaka og fram kom hjá bæjarstjóra að hlutimir þyrftu að ganga hratt fyr- ir sig í samingum um þetta mál því framhaldsaðalfundur Atvinnuefling- ar er í þessari viku og aðalfundur Aflvaka í jóní. Viðurkenningar veittar fyrir menningarstörf Viðurkenningar fyrir menning- arstörf verða veittar á Sverrisdegi, 1. jóní, í Hafnarborg. Hefst at- höfnin kl. 17.00 en þrír einstak- lingar verða heiðraðir fvrir að hafa auðgað menningar- og listalíf- ið í bænum. Fyrsta jóní 1993 var stofnaður minningarsjóður um hjónin Sverri Magnússon og Ingibjörgu Sigurjóns- dóttur en þau gáfu Hafnfirðingum hóseign sína og listaverkasafn. I ár verða í fyrsta sinn veittar viðurkenn- ingar ór sjóðnum. Við athöfnina munu þau Elín Osk Oskarsdóttir og Kjartan Olafsson syngja við undirleik Hólmfríðar Sig- urðardóttur. Skólalok í Flensborg á laugardag Rúmlega 40 stúd- entar luku prófum Skólalok vorannar í Flensborg verða á laugardaginn, 3. jóní, í Víðistaðakirkju og hefst athöfnin kl. 10.30. Alls luku rómlega 40 stódentar prófum í vor frá skólan- um. Að sögn Kristjáns Bersa Olafs- sonar skólameistara eru nó 20 ár lið- in frá því að Flensborg ótskrifaði stódenta í fyrsta skipi. Af þeim sök- um er von á fjölda gesta á skólaslitin nó. A þeim 20 ámm sem Iiðin em hefurskólinn ótskrifað rómlega 1500 stúdenta. HAFNARFJÖRÐUR Suður-Hvaleyrarholt Breyting á deiliskipulagi við Háholt, Akurholt HAFNARFJÖRÐUR og Suðurholt í samræmi við gr. 4.4 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985 er hér auglýst til kynningar breyting á deiliskipulagi við Háholt, Akurholt og Suðurholt á Suður-Hvaleyrarholti í Hafnarfirði. í tillögunni er gert ráð fyrir sambyggðri dagvistun, verslun og þjónustu allt að þrjár hæðir að Háholti í stað tveggja tólf hæða háhýsa fyrir íbúðir og þjónustu. Skólalóð er stækkuð inn á núverandi dagvistarlóð og Akurholti lokað að Suðurholti. Komið er fyrir fimm parhúsum, tíu íbúðum, þar sem nú eru átta einbýlishúsalóðir ofan Suðurholts. Ennfremur er lagt til að aðlaga lóðarmörk við Brattholt 1, 3 og 5. Jafnframt óskar bæjarstjórn eftir því við skipulagsstjóra ríkisins að hann undirriti uppdráttinn í samræmi við gr. 4.4.1 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985. Tillaga að breyttu deiliskipulagi var samþykkt af bæjarstjóm Hafnarfjarðar 11. apríl s.l. og tillaga að skipulags- og byggingarskilmálum fyrir þessa breytingu staðfest 23. maí. Tillagan liggur frammi í afgreiðslu tæknideildar að Strandgötu 6, þriðju hæð, frá 1. júní til 29. júní 1995. Abendingum og athugasemdum skal skila skriflega til bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir 13. júlí 1995. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni. 29. júní1995 Bæjarskipulag Hafnarfjarðar ATHUGIÐ! / A kynningartímanum verður Akurholt lokað við Suðurholt og við neðri mörk skólalóðar Hvaleyrarskóla.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.