Fjarðarpósturinn - 01.06.1995, Síða 4
4 FJARÐARPÓSTURINN
Útgefandi:FJARÐARPÓSTURINN hf. Bæjarhraun 16, 220 Hafnar-
fjörður. Símar, ritstjórn 565 1945,auglýsingar 565 1745, símbréf 565 0835.
Framkvæmdastjóri: Óli Jón Ólason, ritstjóri: Friðrik Indriðason, íþróttir
og heilsa: Jóhann Guðni Reynisson, innheimta og dreifing: Steinunn
Hansdóttir, umbrot: Fjarðarpósturinn, prentun: Borgarprent.
Brimvörn í
Straumsvík
Málefni flotkvíar hafa verið til umræðu innan hafnar-
stjórnar og bæjarstjórnar á undanförnum vikum og hef-
ur Fjarðarpósturinn greint frá þeim umræðum. Tvær
hugsanlegar staðsetningar eru til umræðu, utan við Suð-
urgarð og í höfninni í Straumsvík. Síðari kosturinn er
um margt álitlegri einkum þar sem umrædd flotkví er
stórt mannvirki og því töluverð sjónmengun af henni
rétt utan við Suðurgarð. Auk þess væri flotkví góð bú-
bót við fyrirhugað iðnaðarhverfi sem áformað er að rísi
við Straumsvíkursvæðið í náinni framtíð.
En til að hægt sé að setja flotkví upp í Straumsvíkur-
höfn -þarf að byggja þar brimvarnargarð sem ver höfn-
ina fyrir vestan- og norðanáttum. Hugmyndir um slíkan
garð komu fyrst fram fyrir um 10 árum en ekkert hefur
verið gert í málinu síðan. Upplýsingar skortir um margt
en í sumar hefur verið ákveðið að ráðast í bæði berg-
málsmælingar og öldumælingar í Straumsvrk og fyrir
utan Suðurgarð. Aður en niðurstöður úr þeim mæling-
um liggja fyrir skortir allar forsendur til að gera kostn-
aðaráætlun um þetta verk en lauslega áætlað er talið að
bygging brimvarnargarðsins muni kosta á bilinu hálfur
til einn milljarður króna.
Eins og staðan er í dag komast tómu súrálskipin ekki
út úr höfninni í Straumsvík ef vindhraðinn er meir en 5
stig í fyrrgreindum áttum né inn í hana fullhlaðin. Og ef
af áformum um stækkun álversins verður er ljóst að urn-
ferð um höfnina mun aukast til muna. Það hlýtur því að
vera lag fyrir bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að koma þess-
um brimvarnargarði á dagskrá fari svo að ráðist verði í
stækkun álversins. Stækkun álversins hefur það í för
með sér að byggður verður nýr hundrað metra langur
viðlegukantur í Straumsvík til að mæta hinni auknu um-
ferð og kanna ber hagkvæmni þess að byggja brimvarn-
argarðinn samhliða þeim framkvæmdum.
Ljóst er að Hafnarfjörður hefur ekki bolmagn einn og
sér til að fjármagna byggingu brimvamargarðsins. Þar
þurfa ríkissjóður og/eða eigendur álversins einnig að
koma til sögunnar. Þessu máli þarf því að koma til skila
á þeim vettvangi hið fyrsta.
Flotkví sú sem hér um ræðir myndi verða töluverð
lyftistöng fyrir bæjarfélagið því hún skapar vinnu og
tekjur fyrir höfnina. Þar að auki eru þessi mannvirki tal-
in um margt hagkvæmari en þurrkvíar. Að öllu saman-
lögðu er um þarft mál að ræða og ástæða til að reyna af
öllu afli að veita því brautargengi.
Friðrik Indriðason
Börn frá leikskólanum Hlíðarbergi ganga fylktu Iiði yfir brúnna.
Setbergsbrúin tekin í notkun
Auknir möguleikar á útivist
í síðustu viku var formlega tek-
in í notkun ný brú yfir lækinn í
Hafnarfirði. Brúin tengir Set-
bergshverfið við nýja hverfið í
Mosablíð og með henni aukast
möguleikar á notkun útivistar-
svæðisins á Stekkjahrauni sem
liggur milli hverfanna.
Aður hafði verið ráðgert að veita
læknum um ræsi undir veginn sem
tengir þessi tvö hverfi en á fundi
bæjaráðs þann 29. spetember s.l. var
samþykkt að ráðast í brúarsmíðina.
Markmiðið með brúarsmíðinni var
að hrófla eins lítið við landi og kost-
ur er.
Það voru böm frá leikskólanum
Hlíðarbergi sem vígðu brúnna form-
lega og gengu svo fylktu liði yfir
hana.
Gamaldags bogabrú
Brúin er samsett úr fjórum stálbit-
um þvert á lækinn sem tengdir eru
við sökkla við hvom enda brúarinn-
ar. Um miðbik hennar standa tveir
stálbogar úr ryðlituðu stáli. Efnisval
og útlit brúarinnar er með það í huga
að undirstrika ákveðnar andstæður,
byggð - óhreyft land og manngert -
náttúrulegt.
Hönnuðir brúarinnar eru arkitekt-
amir Jakob Líndal og Kristján As-
geirsson og verkfræðistofa Bjöms og
Stefáns. Verktakar voru Feðgar sf og
um stálsmíði sá Suðulist.
Hart deilt á formann bæjarráös og bæjarstjóra
Vissi ekki af kæru
og lögreglurannsókn
segir Ingvar Viktorsson oddviti minnihlutans í bæjarstjórn
Ingvar Viktorsson deildi hart á
Magnús Gunnarsson fortnann
bæjarráðs og Magnús Jón Arna-
son bæjarstjóra á síðasta bæjar-
stjórnarfundi. Ingvar gerði að um-
ræðuefni kæru þá sem ríkissak-
sóknari vísaði nýlega frá um sam-
skipti fyrri meirihluta og Hagvirk-
is/Kletts. Ingvar segir að hann hafi
ekki vitað af kærunni né að hann
væri í rannsókn hjá lögreglu fyrr
en liann las um það í fjölmiðluin að
kærunni hefði verið vísað frá.
“Við sitjum við sama borð í bæjar-
ráði og bæjarstjóm og því hefði ver-
ið hægðarleikur fyrir þessa menn að
láta okkur vita af kærunni,” segir
Ingvar. Hann fordæmdi þessi vinnu-
brögð og málatilbúnað allan af hálfu
formanns bæjarráðs og bæjarstjóra
og sagði að sá aðili sem hefði mest
skaðast sökum hans væri sveitarfé-
lagið.
I framhaldi af máli sínu lagði
Ingvar fram tillögu þar sem segir
m.a. að bæjarstjóm harmi framgöngu
bæjarfulltrúana Magnúsar Jóns
Ámasonar og Magnúsar Gunnars-
sonar í kærumálum er lúta að sam-
skiptum bæjarsjóðs og Hagvirk-
is/Kletts á umliðnum árum.
Síðan segir í tillögunni: “Bæjar-
stjóm telur að framganga bæjarfull-
trúana....hafi skaðað bæjarfélagið
auk þess að vera ærumeiðandi í garð
hinna kærðu og bæjarfulltrúa Jó-
hanns Gunnars Bergþórssonar....Því
fagnar bæjarstjóm að bæjarfulltrú-
amir tveir sem að kærunum stóðu
skuli hafa séð að sér og lýst því yfir
að málinu sé lokið af þeirra hálfu.
Þar með hafa þeir í reynd viðurkennt
að málatilbúnaður þeirra hafi verið
markleysa frá upphafi til enda.”
Áður en tillagan kom til atkvæða
Valgerður Guðmundsdóttir einn
fulltrúa Alþýðufiokksins í bæjar-
stjórn bar fram fvrirspurn um
hvort eitthvað væri hægt að gera
fyrir 14 ára unglinga í atvinnumál-
um í sumar. Sem kunnugt er af
fréttum hafa bæjaryfirvöld ákveð-
ið að spara í rekstrinum með því
að fella þennan aldurshóp úr
vinnuskólanum. Valgerður kvað
nauðsynlegt að þessi aldurshópur
hefði eitthvað að gera í sumar og
hún taldi að kostnaðurinn við að
veita honum vinnu, 12 milljónir kr,
væri of hátt metinn.
tók Jóhann G. Bergþórsson til máls
og kvaðst ekki taka þátt í atkvæða-
greiðslu um hana þar sem málið væri
sér of skyit. Hinsvegar telji hann
ástæðu til að taka undir með Ingvari
um að harma bæri framgöngu fyrr-
greindra fulltrúa og að málið hefði
aldrei átt að koma til umfjöllunnar í
bæjarstjórn þar sem viðskiptin hefðu
verið eðlileg. Að svo búnu féll tillag-
an á jöfnum atkvæðum.
Magnús Jón Ámason bæjarstjóri
svaraði því til að vissulega væri
æskilegt að vinnuskólinn gæti sinnt
nemendum í 8. bekk. Hinsvegar
hefði bæjarfélagið þurft að taka á sig
með vaxandi þunga atvinnuleysi
meðal ungs fólics. Það mætti nefna
að á meðan skorið væri niður hjá 8.
bekk væri lengdur sá tími sem 10.
bekkingar gætu unnið en þeir þyrftu
helst á fé að halda.
Þá mætti nefna að ýmislegt yrði
gert fyrir unglingana í staðinn fyrir
atvinnu eins og auknar tómstundir í
sumar.
Sumarvinna 14 ára
unglinga til umræðu