Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 15.06.1995, Page 8

Fjarðarpósturinn - 15.06.1995, Page 8
Bæjarstjórn og Skógræktarfélagið gera samning Til heilla fyrir Hafnfirðinga Bæjarstjórn og Skógræktarfé- lag Hafnarfjarðar hafa gert með sér saming um ræktun og umsjón með útivistarsvæðum. Samningur- inn var undirritaður í þessari viku en hann kveður m.a. á um að efnt verður til víðtækrar samvinnu milli uðilu um þróun, ræktun og umhirðu útivistarsvæða bæjarins. Yið undirritun sagði Magnús Jón Árnason uð samningurinn væri til heilla fvrir Hufnfirðinga en mikið verk væri framundan í þessum múlum. Björn Árnason bæjar- verkfræðingur sagði að menn hefði lengi dreymt um þennan samning og væru í hjarta þakklátir fyrir þetta framtak. Fyrirmyndin að samningi þessum hafa verið samningar sem Akureyri og Skógræktarfélag Eyjafjarðar gerðu um Kjamaskóg og Reykjavík- ur við Skógræktarfélag Reykjavíkur um Heiðmörk. Hafa þessir samning- ar orðið báðum aðilum til hagsbóta. Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir að ræktunar- og útivistar- svæðin ofan byggðarinnar verði ætl- uð almenningi til umferðar og afnota. Bæjarsjóður mun annast og kosta all- ar samgöngur svo sem ökuleiðir, gangstíga og áningarstaði eftir efnum og ástæðum hverju sinni. Gert er ráð fyrir að bæjarstjóm veiti Skógræktarfélaginu árlegan rekstrarstyrk sem tryggir að verulegu leyti efnalega tilveru félagsins. Þá er gert ráð fyrir að bæjarstjóm láti gera rammaáætlanir til fimm ára og ítar- legri framkvæmdaáætlanir til tveggja ára. Gert er ráð fyrir að vinnuskóli bæjarins taki virkan þátt í starfmu og nú eru til dæmis þrír vinnuflokkar að störfum undir þeim formerkjum. Magnús Jón Árnason bæjarstjóri og Hólmfríður Finnbogadóttir formaður Skógræktarfélagsins skrifa undir. V eitingahús r. fúní fHboö Rjómalöguð blaðlaukssúpa Hvítlauksristað lambafile eða grísastei með gráðostasósu og terta hússins ★ Rjómalöguð blaðlaukssúpa Nautasteik með koníakpiparsósu og terta hússins Fjaröargötu 13 - 15 sr 565 5625 Lítil tíðindi af fundi um flotkví Málið er í biðstöðu Eiríkur Ormur Víglundsson framkvæmdastjóri Vélsmiðju Orms og Víglundar segir að múl- efni flotkvíar í Hafnarfirði séu í biðstöðu eftir fund forráðamanna vélsmiðjunnar og bæjarstjórnar í síðustu viku. Á fundinum ítrekaði Magnús Jón Árnason bæjarstjóri þá afstöðu bæjarstjórnar að nauð- synlegt væri að rannsóknir færu fram áður en bæjarstjórn tæki frekari ákvarðanir í málinu. “Það kom lítið fram á þessum fundi annað en að málið er enn í at- hugun þar til niðurstöður úr rann- sóknum liggja fyrir,” segir Eiríkur Ormur. “Á meðan getum við ekkert annað gert en beðið.” Vélsmiðjan hefur tíma fram í ágúst til að koma flotkvínni til lands- ins en eftir þann tíma er ekki hægt að fá tryggingu fyrir siglingunni með hana til landsins. Það getur því farið svo að vélsmiðjan brenni inni með málið í ár. Hvað varðar þær hugmyndir að koma flotkvínni upp til bráðabirgða innan hafnarinnar þar til varanlegur samastaður fæst mun lítill hljóm- grunnur fyrir því. Samkvæmt heim- ildum Fjarðarpóstsins er litið þannig á meðal bæjaryfirvalda að til lítils sé að finna bráðabirgðalausn nema ör- uggt sé að varanleg lausn á staðsetn- ingu sé þegar fyrir hendi. Rafgeymarnir sem hent var í Kjóadal kært til lögreglu Eins og greint var frá í síð- asta Fjarðarpósti fannst tölu- verður fjöldi af rafgeymum utan vegar í Kjóadal í síðustu viku. Um var að ræða samtals 32 stykki af rafgeymum og hefur bæjarverkfræðingur kært þetta mál til rannsóknar- lögreglunnar í Hafnarfirði. Gissur Guðmundsson hjá RLH segir að málið sé í rann- sókn hjá þeim. “Þama hefur einhver óvand- aður hent þessu rafgeymum utan vegar þannig að þeir sáust ekki frá veginum sjálfum,” segir Gissur. “Á þessum stað var bíl- hræ fyrir og það er kannski spuming hvort ekki þurfi að hreinsa slíkt drasl jafnóðum og það sést svo menn falli ekki í þá freistni að bæta við rusli.” Það er helst talið að rafgeym- amir séu frá einhverjum aðila á borð við bílapartasölu en sem fyrr segir er nú leitað að eigenda þeirra. Fjórir bílþjófn- aðir upplýstir Ungur sf- brotamaður í fangelsi Rannsóknarlögreglan í Hafnarftrði hefur upplýst fjóra bílþjófnaði og innbrot í 15 bíla í bænum á undanförn- um vikurn. Það var ungur sí- brotamaður sem viðurkenndi að hafa staðið fyrir þessu og er hann nú korninn í fangelsi. Síbrotamaðurinn var á löngu skilorði vegna fyrri afbrotamála og þegar þetta upplýstist var hann sendur í at'plánun. Að sögn rannsóknarlögreglunnar viður- kenndi hann ails átta bflþjófnaði, þar af fjóra í Hafnarfirði og fjóra í Reykjavík.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.