Fjarðarpósturinn - 29.06.1995, Qupperneq 1
Gefið út í tilefni af Víkingahátíð í
Hafnarfirði í júlí 1995.
Gefið út í samvinnu Landnáms hf.,
Ferðamálanefndar Hafnarfjarðar
og Fjarðarpóstsins.
Upplag 11,000 eintök.
Dreift frítt
5'65HÆ
Víkingahátíðin verður sú stærsta sinnar tegundar í sumar
Menningarviðburður
en ekki vopnabrak
Stjórn Landnáms efndi til viða-
mikillar kynningar fyrir fjölmiðla í
síðustu viku á víkingahátíðinni sem
haldin verður í Hafnarfirði í næsta
mánuði. Ellert Borgar Þorvaldsson
formaður stjórnar Landnáms segir
að um menningarviðburð verði að
ræða en ekki eitthvert vopnabrak.
“Hugsunin á bakvið hátíðina er að
vekja okkur til umhugsunar uin
uppruna okkar og kynnast því
hvernig lífi víkingarnir íifðu,” segir
Ellert. A kynningunni kom m.a.
fram að þessi víkingahátíð verður
sú stærsta sinnar tegundar í heim-
inum í sumar en á hverju ári er efnt
til nokkurra slíkra hátíða víða í
Evrópu.
Það var Rögnvaldur Guðmunds-
son ferðamálafulltrúi sem kynnti
dagskrá hátíðarinnar. Hjá Rögnvaldi
kemur fram að dagskráin hefst strax
þann 29. júní með sýningu á víkinga-
skartgripum í Norræna húsinu og síð-
an fyrirlestrum um kvöldið. Fyrir-
lestrar verða í boði allt fram á
fimmtudaginn 6. júlí að hátíðin verð-
ur formlega sett á Þlngvöllum og síð-
an hefst aðalhátíðin á Víðistaðatún-
inu daginn eftir.
Alls munu flutt hingað þrjú vík-
ingaskip og 80 stór tjöld sem sett
verða upp á Víðistaðatúninu. Rögn-
valdur segir að kjaminn í hátíðinni
verði stór handverksmarkaður á
Víðistaðatúninu þar sem m.a. 15-20
íslenskir handverksmenn munu sýna
og selja verk sín.
Jóhannes V. Bjamason veitinga-
maður á Fjörkránni mun hafa veg og
vanda að matargerðinni á hátíðinni.
Skyndibitinn mun verða í þjóðlegum
stíl og þannig ekki hægt að fá hina
hefðbundnu pulsu og kók.
Jóhannes segir að einn þekktasti
kokkur Dana, Sören Gericke, muni
koma til landsins en hann hefur sér-
hæft sig í matargerðarlist víkingatím-
ans. Auk þess að elda fyrir hátíðar-
gesti mun Sören verða í eldhúsinu á
Fjömkránni.
Flugfarmur af Dönum
Sem kunnugt er af fréttum hefur
víkingahátíðin vakið töluverða at-
hygli ytra og von er á tæplega 500 er-
lendum gestum á hana sem þátttak-
endum. Sem dæmi um áhugann má
nefna að 150 danskir víkingar hafa
tekið flugvél á leigu til að koma sér
til Hafnarfjarðar og fljúga þeir beint
frá Billund. Auk danskra víkinga
mun fólk frá hinum Norðurlöndun-
um, Þýskalandi og Bretland verða
fjölmennt á hátíðinni.
Aðstandendur hátíðarinnar reikna
með að á bilinu 10.000-15.000 gestir
muni koma á hátíðina og hafa verið
gerðar ráðstafanir til að taka á móti
þeim fjölda.
Gifting
í ásatrú
Á víkingahátíðinni mun danskt par
giftast að heiðnum sið. Gifting í ása-
trú er um margt frábrugðin því sem
fólk á að venjast í kristnum sið. Og
reikna má með að við athófnina verði
þrír lúðrablásarar viðstaddir sem
blása í forna lúðra frá Þjóðminjasafn-
inu.
Athöfnin hefst á því að allsherjargoð-
inn helgar staðinn sem giftingin fer fram
á. Eftir að helgi hefur verið lýst er m.a.
farið með kafla úr Völuspá og parið
drekkur mjöð úr homi. Tveir svaramenn
eru til staðar. bæði fyrir brúður og brúð-
guma.
Eitt er eins og í kristni. Þegar goðinn
hefur lýst þau hjón má brúðguminn
kyssa brúðurina.
★
Börnum sinnt
sérstaklega
Börnum mun verða sinnt sérstak-
lega á víkingahátíðinni. Meðal annars
má nefna að á sérstöku svæði fvrir
börn verður hægt að kaupa hreinsuð
horn, leggi og kjálka á lágu verði og
þau geta leikið sér með þessi fornu
leikföng þar.
Áhugavíkingar frá York á Englandi
munu einnig verða með sérstaka
kennslu og fræðslu fyrir böm um vík-
ingaöldina. Spil og leikir Bodil Poulsen
verða á staðnum og hestaleiga verður
fyrir böm jafnt sem fullorðna alla daga.
★
Skeggprýði og
hárfegurð
Á víkingahátíðinni verða valin
skeggprúðasti maður hátíðarinnar og
hárfegursta konan. Valið á hinum
skeggprúða fer fram á laugardaginn
8. júlí en fegursta hárið verður valið á
sunnudeginum.
Verðlaun verða veitt fyrir bæði þessi
atriði en verðlaun fyrir hárfegurðina
verða kennd við Hallgerði langbrók. Sú
kona var óumdeilanlega hárprúð og
raunar átti hún þekktasta hár íslendinga-
sagna.
Svipmyndir úr daglegu lífi víkinga skipa stóran sess á hátíðinni.
Veitingahús *
DCÆNÁNI
Tilbod á Víkingahátíð VEITINGASTOFA
Rjómalöguð blað aukssúpa í jitiáuðlíifjöiri in (i i rilðíRði''iri)
Hvítlauksristað lambafi e eða grísasteik Kænumarkaóurinn
með gráðostasósu og terta hússins
Fjarðargötu 13 - 15 s: 565 5625
Litljósritun
Prentun á boli
Gæða framköllun
t
FILMUR &
FRAMK#* LLUN
Mi&bæ-s. 565 4120