Fjarðarpósturinn - 06.07.1995, Side 1
Ingvar Viktorsson nýkjörinn bæjarstjóri
Yfirlýsing forsætisráð-
herra er með eindæmum
Ingvar Viktorsson nýkjörinn
bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir að
yfirlýsing Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra um sjálfstæðis-
mennina í hinum nýja meirihluta
sé með eindæmum. “I fyrstu hélt
ég að Davíð væri fluttur til Hafnar-
fjarðar og það hefði verið gott mál
en svo er ekki. Þetta var slysaskot
hjá honum að mínu mati enda sé
ég ekki að þetta sé hans mál,” seg-
ir Ingvar.
Sem kunnugt er af fréttum nýlega
lýsti Davíð Oddsson forsætisráð-
herra yfir andstöðu sinni á gjörðum
þeirra Jóhanns G. Bergþórssonar og
Ellerts Borgars Þorvaldssonar sem
myndað hafa meirihluta með Al-
þýðuflokknum í mikilli óþökk fjölda
frammámanna í Sjálfstæðisflokkn-
um í Hafnarfirði. “Það hefur komið
mér verulega á óvart hversu mikil
harka er í málinu af hálfu forystu-
manna Sjálfstlæðisflokksins,” segir
Ingvar.
Ingvar Viktorsson segir að mynd-
un hins nýja meirihluta hafi gengið
mjög vel fyrir sig. Alls voru haldnir
sjö fundir með aðilum áður en
stefnuskráin lá fyrir en á þessum
fundum sátu fimm bæjarfulltrúar Al-
þýðuflokks og þeir Jóhann og Ellert
ásamt Magnúsi Kjartanssyni og
Hjördísi Guðbjörnsdóttur. Engin
veruleg ágreiningsmál komu upp um
stefnuna en fyrir utan bæjarstjóra-
stólinn og embætti forseta bæjar-
stjómar á eftir að skipa í nokkur
önnur embætti og segir Ingvar að
það verði gert mjög fljótlega.
Aðspurður um fyrstu verkefni sín
í stóli bæjarstjóra, segir Ingvar að
það verði að fara yfir stöðu fjármála
bæjarins og reyna að koma böndum
á reksturinn. “Síðan em atvinnumál-
in ofarlega í huga enda atvinnuá-
stand þannig að brýn nauðsyn er á
úrbótum,” segir Ingvar. “Slíkt er best
að gera í samvinnu við aðila vinnu-
markaðarins hér í bænum.”
-SJÁ NÁNAR Á MIÐOPNU
Fríður
hópur
vík-
inga
Það var fríður hópur víkinga
sem kontu út úr, Védísi, flugvél
Flugleiða í gærmorgun. Allir voru
í víkingaskrúða sínum, jafnt ungir
sem eldri víkingar, konur sent kar-
lar. Ekki heilsaði veðurguðirnir
þessum ágætu gestum okkar of
vel, talsverður vindur og rigning
annað slagið, en það var glatt yfir
þessuni 150 manna hóp og auðséð
að þeir hlökkuðu til Islandsdvalar-
innar.
I Fjarðarpóstinunm í dag er fjallað
um víkingahátíðina sem hafin er í
Hafnarfirði. Ekki er að efa að margir
munu leggja leið sína í bæinn um
helgina en forráðamenn hátíðarinnar
reikna með 10-15.000 gestum.
-SJÁ NÁNAR Á BLS. 6
Skötferslun
Hafnarfjarðar
20% afsláttur
af öllum skóm föstudag og laugardag 7-8 júlí
Glæsilegt úrval á^alte fjölskylduna
• SÍMI 565 4960 VIKINGATHBOÐ A VIKINGAD0GUM