Fjarðarpósturinn - 21.09.1995, Page 3
FJARÐARPÓSTURINN 3
Enginn árangur af fundi Sparnaðarráðs og STH
Launakerfið er ónýtt
-segir Árni Guðmundsson formaður STH
Gnginn árangur varð af fundi
talsmanna STH og Sparnaðar- og
hagræðingarráðs nýlega þar sem
rædd voru áform ráðsins um að
segja upp sérkjarasamningum
bæjarstarfsmanna. Arni Guð-
mundsson formaður STH segir að
launakerfi bæjarins sé ónýtt og að
STH sé til umræðu um endurbæt-
ur á því, enda sjálfsagt að leiðrétta
það.
„I launakerfinu nú er til dæmis
ekkert tillit tekið til stjómunará-
byrgðar, faghópar eru illa launaðar
og má þar nefna að verkfræðingar
og tæknifræðingar fá borguð laun
sem eru undir töxtum félagsins og
ekki er greiddur Iífeyrir af yfir-
vinnu,“ segir Ámi. „Það er svo mat
STH að allir séu á of lágum grunn-
launum."
Sem fyrr segir varð engin niður-
staða af fundinum og hefur annar
fundur ekki verið boðaður. Árni
lagði fram tillögu um að hætt yrði
við áform spamaðarráðs í núverandi
mynd en ekki reyndist vilji fyrir því.
Nýr æfingavöllur á Haukasvæöinu á Asvöllum
Ingvar Viktorsson leggur síðustu torfuna á völlinn.
Fyrir
yngstu
aldurs-
hópana
Um síðustu helgi var lokið við
að tyrfa nýjan æfingavöll fyrir
yngstu aldurshópana á Hauka-
svæðinu á Ásvöllum. Það var Ingv-
ar Viktorsson bæjarstjóri sem
lagði síðustu torfuna. Lúðvík
Geirsson formaður Hauka segir að
með þessum áfanga hafi félagið
endanlega yfirgefið gamla svæðið
á Hvaleyrarholtinu.
„Við emm með 14 aldursflokka í
knattspymunni og það var mikil
ásókn hjá yngstu hópunum í að kom-
ast á æfmgasvæði. Hingað til höfum
við notað Hvaleyrarholtið. Þessi
völlur sem við lukum við nú kemst í
gagnið strax næsta vor og þá ætti öll
starfsemin sem verið hefur á Hval-
eyrarholtinu að flytjast á Ásvelli,"
segir Lúðvík.
I máli Lúðvíks kemur fram að
þegar þessi nýji grasvöllur kemst í
gagnið sé lokið við gerð grasæfinga-
svæða á Ásvöllum. Næsta stórverk-
efni félagsins sé svo bygging á nýju
íþróttahúsi. Það liggi fyrir framdrög
að hönnun þessa húss og óskað hafi
verið eftir heimild hjá bæjaryfirvöld-
um að hanna það endanlega. „Við
munum gefa öllum deildum félags-
ins kost á að koma með sínar ábend-
ingar og athugasemdir um tilhögun í
húsinu," segir Lúðvík. „Síðan verður
það hannað og teiknað í endanlegri
mynd.“
Nám.stlokkar Ilafuarfjardar
Nú er vetrarstarfið að hef jast!
Námskráin er komin út.
Fjölbreytt úval námsgreina í boði
á haustönn.
Innritun fer fram dagana 25.-29. september á
skólaskrifstofu Hafnarfjarðar Strandgötu 4,
3ju hæð milli kl. 10 og 17.
Upplýsingar eru veittar í síma 555 3444
milli kl. 10 og 16
og í síma 565 1322 milli kl. 17 og 19.
Ath! Námsgjöld greiðist við innritun.
Greiðslukortaþjónusta.
Kennsla hefst skv. stundaskrá 2. október.
Haustvörurnar komnar
HerrA
HAFNARFJÖRÐUR
í MIÐBÆ, SÍMI 565 0073
Á mvndinni má sjá Höllu Benediktsdóttir (standandi), skólastjóra
Prjónaskóla Tinnu, ásamt fyrstu nemendunum á almennu prjónanám-
skeiði. (mynd Hugi Hreiðarsson).
Prjónaskóli Tinnu
settur á stofn
Þann 4. september s.l. var stofn-
settur Prjónaskóli Tinnu, en hann
er til húsa að Hjallahrauni 4 í
Hafnarfirði. Undirbúningur að
skólanum hefur staðið yfir í eitt ár
og munu tveir kennarar starfa þar
í vetur.
Ein helsta ástæðan fyrir stofnun
skólans er sú þróun sem átt hefur sér
stað í mörgum löndum Evrópu. Þar
hefur prjónþekking verið að tapast
og kynslóðir að koma fram sem ekki
kunna að prjóna. Nú síðustu ár má
greina merki þess í grunnskólum hér
á landi að minni áhersla er lögð á
handmenntir. Þessari þróun vil!
Prjónaskóli Tinnu snúa við og hjálpa
til í starfi íslenskra skóla í eflingu á
handmenntinni. I vetur verður boðið
upp á fjögur námskeið, unglinga-, al-
mennt-, prjónatækni- og hekl. Skóla-
stjóri er Halla Benediktsdóttir, en
hún hefur meðal annars starfað við
kennslu í Verkmenntaskólanum á
Akureyri og hjá Menntasmiðju
kvenna á Akureyri. Það er Gambúð-
in Tinna í Hafnarfirði sem er stofn-
andi skólans.
ALLAR VIÐGERÐIR: • Hjólastillingar • Vélastilling • Hemlaprófun • Réttingar • Bílasprautun • Endurskoðun • Shell smurstöð Við erum númer eitt - ÍKaplahrauni - / að þjóna þér FAGGILT ENDURSKOÐUNARVERKSTÆÐI níT
jtíj BÍLASPÍTALINN þ=>
KAPLAHRAUN11 • 220 HAFNARFIRÐI • Símar: 565 4332 og 555 4332 • Fax: 565 4336
UNGLIIUGA-EROBIK
4 vikur kr. 3900,-
m/5 tima Ijósakorti kr. 4400,-
8 vikur, kr. 7.500,-
m/5 tíma Ijósakorti kr. 8000,-
HRFXS
LIKAMSRÆKT OG L.TOS
Leiðbeinandi Þór Sverris
BÆJARHRAUNI 4, HF. SÍMI 565 2212