Fjarðarpósturinn - 21.09.1995, Side 8
STÓRMARKAÐUR HAFNARFIRÐI
r-'i- "
virka daga 9:00 - 22:00
helgar 10:00 - 20:00
120%
AFSí..rruR
Jlr
FILMUJR &
FRAMK#‘ LLUN
Mi&bæ ■ s. 565 4120“
Stefna VSÍ á hendur bæjaryfirvöldum
Yfirlýsingunni breytt eftir
undirskrift bæjaryfirvalda?
Svo virðist sem yfirlýsingunni
sem fylgdi með skuldabréfi Hyrn-
ingarsteins, starfsmannafélagi
Hagvirkis/Kletts, hafi verið breytt
eftir að hún var undirskrifuð. A
Ijósriti sem Fjarðarpósturinn hef-
ur er fyrirsögnin aðeins “Ynrlýs-
ing” en á eintaki Handsals er búið
að bæta orðinu “Abyrgðar” fyrir
ofan. Talsmenn Handsals halda því
fram að þetta hafi verið gert með
samþykki fjármálastjóra bæjarins
en hann segir það rangt. Ætlun
Handsals mun hafa verið að auð-
velda sölu bréfins með þessu móti.
Ingvar Viktorsson bæjarstjóri seg-
ir að gögnum hafi verið breytt og
að frumriti þeirra af yfirlýsing-
unni og eintaki Handsals beri ekki
saman að þessu leyti.
Eins og kunnugt er af fréttum hef-
ur kaupandi bréfsins, VSÍ, stefnt
bæjaryfirvöldum og krafið þau um
greiðslu þar sem skuldabréfið hafi
verið með bæjarábyrgð. Er í því sam-
bandi vísað til framangreindrar yfir-
lýsingar. Ekkert í yfirlýsingunni eins
og hún er upphaflega kveður á um
bæjarábyrgð, aðeins að samþykkt sé
að bæjarsjóður muni sjá til þess að
greitt verði af bréfinu af verksamn-
ingi um hönnun og byggingu dælu-
og jireinsistöðva.
I heild hljóðar yfirlýsingin svo,
undirrituð af fulltrúum Hafnarfjarð-
ar, Hagvirkis/Kletts og Handsali:
“Vegna skuldabréfs útgeflð 17.12.
1993 af Hymingarsteininum....að nú-
virði kr. 8.000.000 til 4 ára.
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar hefur
skv. meðfylgjandi yfirlýsingu sam-
þykkt að greiðslur skv. verksamningi
milli Bæjarsjóðs og Hagvirkis -
Kletts frá 28.01. 1994 um hönnun og
byggingu dælu- og hreinsistöðva í
Hafnarfirði muni renna til að greiða
niður umrætt bréf.
Verði vanskil á ofangreinsu bréfi í
framhaldi af þessu mun Bæjarsjóður
Hafnarfjarðar sjá til þess að bréf
þetta verði greitt upp á gengi... og þá
jafnframt hafa rétt til að nýta sér
bréfið sjálfir á móti áðunefndum
verksamningi.
Hagvirki - Klettur hf samþykkir
ofangreinda ráðstöfun á greiðslum úr
umræddum verksamningi milli Bæj-
arsjóðs Hfj. og Hagvirki - Kletts...”
Samkvæmt þessari yfírlýsingu eru
bæjaryfirvöld einungis að ábyrgjast
að greitt verði af bréfinu af greiðslum
til Hagvirkis/Kletts vegna framan-
greindra verkefna. Sem kunnugt er
varð ekki úr að Hagvirki/Klettur tæki
að sér þau verkefni og því líta bæjar-
yfirvöld svo á að málið hafi fallið
niður.
Bréf bæjarlögmanns
I bréfi sem bæjarlögmaður skrif-
aði til lögmanns VSI vegna þessa
máls er VSÍ fór að ganga eftir kröfu
sinni segir m.a.: “Hafnarfjarðarbær
stendur að sjálfsögðu við þá yfirlýs-
ingu sem greindu skuldabréfi fylgir...
Abyrgð bæjarins samkvæmt yfir-
lýsingunni tók til þess að sjá um að
greiðslur samkvæmt tilteknum verk-
samningi, sem tilgreindur er í yfirlýs-
ingunni, rynnu til greiðslu á skulda-
bréfinu.
Þar sem skuldari, Hagvirki-Klettur
hf, er nú gjaldþrota og getur því ekki
efnt samninginn mun eðlilega ekki
verða af þessu greiðslufyrirkomu-
lagi.
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar mun
ekki taka á sig frekari ábyrgð en yfir-
lýsingin kveður á um.”
Lögmaður VSI mótmælti þessari
túlkun bæjarlögmanns með bréfi í
febrúar og gerði um leið formlega
kröfu um að bæjarsjóður greiddi
skuldabréfið í samræmi við yfirlýs-
inguna. I svari sínu áréttar bæjarlög-
maður það sem hann hafði þegar sagt
og segir svo: “Fjármálastjóri hefur
enga heimild til þess að skuldbinda
bæjarsjóð með þeim hætti sem þér
haldið fram. Vísa ég til 89. gr. sveit-
arstjómarlaga nr. 8/1986 því til stað-
festu. Það getur bæjarstjóm ein og þá
með einfaldri ábyrgð og gegn trygg-
ingum sem hún metur gildar...”
Stefna VSÍ
I stefnu þeirri sem VSÍ hefur
lagt fram í Héraðsdómi Reykja-
ness kemur m.a. fram í rökstuðn-
ingi fyrir aðalkröfu VSI að byggt
er á að fjármálastjóri hafi undirrit-
að yfiriýsinguna í umboði bæjar-
stjórnar. Síðan segir m.a.: “Hafi
honum verið falið það sérstaklega
af bæjarstjórn að hlutast til um að
rita undir fyrir hönd bæjarins og
bæjarstjórn verið í lófa lagið að
mótmæla heimild hans til undirrit-
unar hafi hann án sérstaks umboðs
eða heimildar bæjarstjórnar undir-
ritað yfirlýsinguna. Á fundi í bæj-
arráði Hafnarfjarðar þann 15. sept-
ember 1994 er það bókað að minn-
isblað fjármálastjórans um fjár-
hagsleg samskipti bæjarsjóðs og
Hagvirki-Kletts hafi verið kynnt af
bæjarstjóra og niðurstaða hans af
kynningunni verið samþykkt sam-
hljóða. I aðgerðarleysi bæjar-
stjórnar og bæjarráðs felist því eft-
irfarandi samþykki umboðs hið
minnsta...”
Ferðasaga
Nú í sumar voru haldnir Alþjóðasumarleikar þroska- trúi Hafarfjarðar var sundkonan Anna María Bjamadóttir.
heftra í New Haven í Bandaríkjunum. Frá Islandi fóru 28 Ohætt er að segja að íslenski hópurinn hafi staðið sig með
einstaklingar auk þjálfara og fararstjóra. I miklum ágætum í þessari ferð.
Fjarðarpóstinum í dag er sögð ferðasaga hópsins en full- -SJÁ BLS. 7
Ibúar við Suðurgöt-
una setja upp skilti
Nokkrir íbúar við Suðurgötuna
tóku sig saman á sunnudag og
settu upp skilti við götuna með
orðsendingum til ökumanna. Á
skiltunum voru ökumennirnir
beðnir um að aka ekki hraðar en
30 km og að sýna tillitsemi.
Sem kunnugt er af frétt í síðasta
Fjarðarpósti eru umferðarmál við
götuna ofarlega í hugum flestra íbúa
þar. Að þeirra sögn var þetta örþrifa-
ráð til að takmarka ökuhraðann því
úrbætur eru ekki á döfinni af hálfu
bæjaryfirvalda þrátt fyrir bréfa-
skriftir, símtöl og undirskriftasöfn-
un.
Einnig vantar tilfinnanlega ör-
uggt leiksvæði fyrir böm við göt-
una. Þar búa 85 böm og næsti leik-
völlur er við Selvogsgötu og er hann
ónýtur og í raun hættulegur bömum.