Fjarðarpósturinn - 28.09.1995, Blaðsíða 8
AFSL&\TJ*UR
s
g&MÍa£ki J UlÆQUM
FiLMU.R &
FRAMK# LLUN
- *■■«■■■■
Miðbæ - s. 565 4120
Deila STH við bæjaryfirvöld
vegna leikskólastarfsfólks
Dómur er fall-
inn f sam-
bærilegu máli
í nýjasta töluhlaði STH Fréttir
er greint frá dómi sem féll í sumar
í máli Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga gegn borgarstjóranum í
Reykjavík. Um var að ræða sam-
bærilega deilu og Starfsmannafé-
lag Hafnarfjarðar hefur átt í við
bæjaryfirvöld vegna vilja leiðbein-
enda á leikskólum bæjarins að
ganga í STH. Dómurinn féll stétt-
arfélaginu í vil.
I STH Fréttir segir að af þessum
sökum muni STH væntanlega ekki
þurfa að höfða mál gegn bæjaryfir-
völdum. Það sé mat STH að við
þessa niðurstöðu sé það einungis frá-
gangsmál frá hendi launadeildar og
starfsmannastjóra að flytja þá leið-
beinendur sem þess óska yfir í STH.
Stjóm STH fagnar þessum málalykt-
um.
Eins og fram hefur komið í Fjarð-
arpóstinum eru fyrrgreindir leiðbein-
endur nú félagar í Verkakvennafélag-
inu Framtíðin og Framtíðin hefur
staðið fast á móti því að þeir flyttust
yfir í STH enda hafi félagið forgang
til þessara starfa.
I dóminum aftur á móti var niður-
staðan byggð á lögum um samnings-
rétt nr. 94/1986 en auk þess vísaði
stéttarfélagið til 11 gr. Mannréttinda-
sáttmála Evrópu og 5 gr. Félags-
málasáttmála Evrópu.
Á gangi með skátum
Hin hefðbundna Hafnarfjarðarganga skáta var s.l.
sunnudag en að þessu sinni var gengið um gömlu
vatnsveituna. Gangan er síðasta sunnudag í hverjum
mánuði og hefur þátttaka verið með ágætum eða allt
að 200 þátttakendum hverju sinni.
Göngustjóri að þessu sinni var Albert J. Kristinsson
starfsmaður Rafveitunnar og stórskáti og fræddi hann
göngumenn um ýmislegt sem tengist gömlu vatnsveit-
unni er lá frá Kaldárbotnum.
Farið var frá íþróttahúsinu við Strandgötu að Kaldár-
botnum en þaðan gengið eftir gömlu lögninni og síðan
niður í Lækjajbotna og að síðustu leyfum gömlu leiðsl-
unnar við Uthlíð. A myndinni sést hópurinn ásamt
göngustjóranum.
.
TUR, SUMAR, VOR 0
Rafgpymar
í flesta bíla
Kveikjtthhttir
naust
RUR FYRIR BILINN
Kerti, lok,
þræðir,
platínur
og annað í
kveikju-
rafkerfi
Mikið úrval af efnavöru, t.d. bón og aðrar
bílasnyrtivörur, lakk, rúðupiss, frostlögur,
lím, vélbætiefni og margt fleira.
Bæjarhrauni 6, Hafnarfirði. Sími 565 5510.
- Borgartúni 26 Bfldshöfða 14 Skeifunni 5 Bæjarhrauni 6
A 4 stöðum Reykjavík Reykjavík Reykjavík Hafnarfirði
Samþykkt að
kosta öryggis-
kerfi í 30 íbúðir
Á síðasta fundi bæjarráðs var
samþykkt að kosta öryggiskerfi í
30 öldrunaríbúðir bæjarins við
Álfaskeið og tengingu þess við ör-
yggiskerfi íbúða Hafnar. Kostnað-
ur við þetta er um 20 þúsund kr. á
íbúð en lagt var til að gerður yrði
sérstakur samningur um þetta
verkefni við Höfn og hann síðan
lagður fyrir bæjarráð til staðfest-
ingar.
Það voru þeir Jóhann G. Bergþórs-
son og Tryggvi Harðarspn sem lögðu
fram tillögu um málið. \ henni kemur
m.a. fram auk ofangreinds að bæjar-
ráð hafnar frekari kaupum á tóm-
stundaaðstöðu í kjallara Sólvangs-
vegar 1 en samþykkir að felld verði
niður sem svarar 70% af þegar álögð-
um fasteignagjöldum á Sólvangsvegi
1. Skilyrt er að þetta komi íbúunum
eða íbúðareigendum beint til góða í
húsgjöldum.
Þá kvað tillagan ennfremur á um
að endurgreiða Höfn stofn gatnagerð-
argjalda enda komi sú endurgreiðsla
íbúum til góða og bæjarráð samþykk-
ir að skipta á 2 stórum íbúðum að
Sólvangsvegi 1 og 2 minni á Sól-
vangsvegi 3 enda náist samkomulag
um milligjöf. Ennfremur var sam-
þykkt að kaupa 1 íbúð á neðstu hæð
Sólvangsvegar 3 auk félagsaðstöðu á
sömu hæð.
Viðgerð frest-
að við Lækinn
Ákveðið hefur verið að fres-
ta viðgerðinni á holræsislögn-
inni yfir Lækinn fram á næsta
vor. Á meðan munu vegspott-
arnir sem liggja frá sitthvor-
um bakkanum út í Lækinn
standa.
Kristinn O. Magnússon bæj-
arverkfræðingur segir að höfuð-
ástæðan fyrir frestun fram-
kvæmda sé fjárskortur en verkið
kostar um 7 milljónir kr. “Það er
einnig hugmyndin að leita ann-
arra leiða við framkvæmdina þar
sem hún reyndist kostnaðtnsam-
ari en við áttum von á,” segir
Kristinn. “Við höfum því hugsað
okkur að bjóða verkið út að nýju
á næsta ári.”