Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 05.10.1995, Qupperneq 1

Fjarðarpósturinn - 05.10.1995, Qupperneq 1
Álit bæjarlögmanns á bílageymslunni undir Miðbæ Bærinn hefur óheftan og ótímabundinn afnotarétt Ólíklegt að gjaldþrot myndi leiða til riftunar á þessum réttindum Guðmundur Bcncdiktsson bæjarlögmaður telur að bær- inn hafi greitt fyrir og því keypt óheftan aðgang að bíla- geymslunni undir Miðbæ fyr- ir þá sem erindi eiga um mið- bæ Hafnarfjarðar. “Réttur bæjarins til bifreiðageymsl- unnar er því óheftur og ótímabundinn afnotaréttur sem er óbeinn eignarréttur og er meiri réttur en leiguréttur. Það eru öfugmæli þegar hinu gagnstæða er haldið fram,” segir í áliti bæjarlögmanns sem lagt var fram á síðasta fundi bæjarráðs. Alit bæjarlögmanns er svar við spurningum sem Magnús Gunnarsson bæjarfulltrúi lagði fyrir hann nýlega um bíla- geymsluna en sem kunnugt er af fréttum hyggjast bæjaryfir- völd kaupa bílageymsluna af Miðbæ hf. að sögn til að trygg- ja hagsmuni bæjarsjóðs og koma í veg fyrir gjaldþrot fé- lagsins. Álit sitt byggir bæjarlögmað- ur á samþykkt bæjarráðs frá 14. janúar 1993 þar sem segir m.a. að áformum um að byggja bíla- geymslu undir Miðbæ hf. sé fagnað og bæjarráð samþykkir að endurgreiða hluta gatnagerð- ar- og bílastæðagjalda. Endur- greiðslan samsvari u.þ.b. 3,3 milljónum kr. á ári næstu 15 árin og greiðsla þessi tryggi þeim sem erindi eiga í miðbæ Hafnarfjarðar óheftan aðgang að bílageymslunni. Hvað varðar hugsanlegt gjaldþrot Miðbæjar hf. segir bæjarlögmaður að hann álíti það mjög ólíklegt að það myndi leiða til riftunar á þessum þing- lýstu afnotaréttindum enda sé ljóst að með þinglýsingunni var ekki verið að koma hugsanleg- um verðmætum undan hugsan- legum gjaldþrotaskiptum þar sem bæjarsjóður keypti þennan rétt fullu verði. -SJÁ NÁNAR Á BLS.5 Syngja saman á geisladisk Barnakórar kirknanna þriggja í Hafnarfirði, Fríkirkjunnar, Hafn- arfjarðarkirkju og Víðistaðakirkju, komu saman um síðustu helgi í Víðistaðakirkju til að syngja saman á geisladisk og snældu sem gefin verða út á vegum Skálholtsútgáf- unnar í næsta mánuði. Alls eru um 140 börn í þessum kórum en upp- takan fór fram í Víðistaðakirkju. Auk kóranna í Hafnarfirði munu 13 aðrir bamakórar víðsvegar um landið taka þátt í útgáfu geisladisksins en á honum verða 43 lög, þar af 13 ný lög. Allt eru þetta bamasálmar og söngvar sem þekktir eru í bamastarfi kirkjunn- ar en nafn disksins og snældunnar verður “Eg get sungið af gleði.” Upptökumar í Víðistaðakirkju tókst mjög vel og vom bömin til fyr- irmyndar í alla staði. SKOTKEPPNIFYRIR U A kl 1)1101 T A l)A #HD DIXIELAND- KRAKKA KL 15.00 il #> ll l/ D k I #■% W HLJÓMSVEIT KL. 13.00 í MIÐBÆ - VERSLUNARMIÐSTOÐ OG HAUKAR BERJAST í SKOTKRAFTI, HITTNI OC REIPTOGI KL. 14.00 DAOSKRÁIN HEFST KL. 13.00'LAUGARDAG. C3 MÆTUM ÖLL Á CÓÐA SKEMMTUN! S®

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.