Fjarðarpósturinn - 26.10.1995, Page 4
4 FJARÐARPÓSTURINN
Útgefandi:FJARÐARPÓSTURINN hf. Bæjarhraun 16, 220 Hafnar-
fjörður. Símar, ritstjóm 565 1945,auglýsingar 565 1745, símbréf 565 0835.
Framkvæmdastjóri: Óli Jón Ólason, ritstjóri: Friðrik Indriðason
hs.555-2355, íþróttir og heilsa: Bjöm Pétursson, innheimta og dreifing:
Steinunn Hansdóttir, umbrot: Fjarðarpósturinn, prentun: Borgarprent.
Athyglisverðar hugmyndir
viðskiptaráðherra
Nú fyrir nokkrum dögum kom Finnur Ingólfsson, við-
skiptaráðherra, inn á það í ræðu, að hann teldi að taka þyrfti
til endurskoðunar lífeyrissjóðakerfið og lánamál hús-
byggenda.
Hér er ráðherra að koma af stað löngu tímabærri umræðu.
Vitað er að lífeyrissjóðakerfið getur ekki eða á erfitt með að
standa við skuldbindingar sínar og sífellt er húsnæðiskerfið
að koma fleiri fjölskyldum í fjárhagsvandræði.
Þegar 1 ífeyrissjóðakerfið var sett á laggimar voru menn
bjartsýnir á að þama væri fólk að leggja til efri áranna og
gæti lifað nokkuð góðu lífi þegar það hætti störfum. Hug-
myndin var góð. En margir halda því fram og hafa til þess
mörg og góð rök að fólk hefði getað haft meir úr að spila ef
það hefði t.d. keypt ríkisskuldabréf, eða fjárfest á annan hátt.
Ekki er þó víst að hinn almenni borgari hefði sett hluta af
launum sínum í kaup á skuldabréfum, til þess þurfti "stóri
bróðir" að koma inn í og skylda hann til þess.
A sínum tíma var settur af stað skylduspamaður fyrir ungt
fólk og átti að leggja 15% af launum þess inn á banka sem
það fékk síðan ásamt vöxtum, annað hvort við giftingu eða
þegar það varð 25 ára. Þarna var góð hugmynd, en sem því
miður varð hriplek eftir stuttan tíma. Sparimerkjagiftingar
urðu vinsælar og eins gátu menn fengið endurgreitt ef þeir
voru í skóla. í stað þess að laga gallana þá var kerfið látið
danka áfram þar til enginn tók mark á því.
Þegar húsnæðislánin komu var þörfu og góðu máli komið
af stað. Fólk sem átti litla möguleika á að eignast þak yfir
höfuðið, sá þama leið. Menn fengu húsnæðislán og lífeyris-
sjóðslán til viðbótar og lífeyrissjóðslánin voru samkvæmt
launavísitölu. Ef það tók þig hálfan mánuð að vinna fyrir af-
borgun og vöxtum af láninu, þá átti það alltaf að vera svo, á
meðan þú varst í sömu vinnu. Þetta var sagt við fólk, en einn
góðan veðurdag var launavísitölunni kippt úr sambandi við
lánin. Það ásamt mikilli verðbólgu setti margan á höfuðið og
þá komu "aumingjalánin", eins og margir kölluðu þau, hvert
af öðru. Alltaf var verið að "leysa" mál þeirra sem voru í
greiðsluerfiðleikum, með nýjum lánum, en aldrei tekið á
rótum vandans.
Orð viðskiptaráðherra voru því orð í tíma töluð. Það þarf
að skoða bæði húsnæðislánin og lífeyririssjóðina ofan í kjöl-
inn. Breyttar aðstæður og möguleikar kalla á það. Vonandi
verður þessi þarfa endurskoðun ekki kæfð í fæðingu af smá-
kóngum lífeyrissjóðanna.
Skoða þarf vel allar leiðir til að koma þessum málum í
betra horf. Athuga þarf hvort hægt sé að flytja húsnæðislán-
in inn í bankakerfið og lífeyrissjóðina inn til tryggingafélag-
anna, eða þá til Tryggingastofnunar ríkisins.
Víst er að margir eru ekki hrifnir af þessum hugmyndum
ráðherrans, en þær sýna þó að hann sér að þama er vanda-
mál sem þarf að skoða og vinna að breytingum á, áður en
það verður um seinan.
Óli Jón Ólason
Sameiginlegt leiðakerfi almenningsvagna á höfuð-
borgarsvæðinu
Myndi skila þjóðarbú-
inu 7-800 milljónum kr.
Meöal þeirra sem fluttu erindi á
samgönguráöstefnu SSH sem
haldin var í Kópavogi um síðustu
helgi var Pétur Fenger fram:
kvæmdastjóri Almenningsvagna. I
máli hans kom m.a. fram aö eitt
samræmt leiðakerfi almennings-
vagna fyrir allt höfuðborgarsvæð-
ið undir einni yfirstjórn myndi
skila þjóðarbúinu ábata sem næmi
7-800 milljónum kr, árlega.
I máli Péturs kom fram að með
stofnun Almenningsvagna bs. hefðu
menn náð hálfa leið að þessu marki
þegar Hafnarfjörður, Kópavogur,
Garðabær, Mosfellsbær, Bessastaða-
hreppur og Kjalameshreppur sam-
einuðust um rekstur eins fyrirtækis
sem sér um almenningsamgöngur í
þessum bæjarfélögum og milli þeirra
ásamt akstri til og frá Reykjavík.
Svipmynd frá fundinum sem haldinn var í félagsheimili Kópavogs.
Pallborðsumræður um samgöngumál
Ekki á döfinni að af-
létta sköttum af
almenningssamgöngum
Á pallborðsumræðum sem
voru í lok samgönguráðstefnu
SSH kom fram í svari Halldórs
Blöndal samgönguráðherra við
fyrirspurn um skatta ríkisvalds-
ins á almenningssamgöngur að
ekki er á döfinni að aflétta þeim
sköttum. "Það er áhugamál að
hægt væri að lækka tolla af
strætisvögnum, hópflutningabíl,
vörubílum og fleirum en menn
hafa ekki treyst sér til að lækka
þessa skatta. Það er skattapóli-
tísk ákvörðun," segir Halldór
Blöndal.
Þátttakendur í pallborðsumræð-
unum auk samgönguráðherra voru
þau Guðrún Agústsdóttir forseti
bæjarstjórnar Reykjavíkur, Helgi
Hallgrímsson vegamálastjóri, Ingv-
ar Viktorsson bæjarstjóri í Hafnar-
firði og Sigurður Geirdal bæjar-
stjóri í Kópavogi.
Fyrrgreind fyrirspurn kom frá
Ingvari Viktorssyni en eins og
kunnugt er af frétt í síðasta
Fjarðarpósti var samþykkt ályktun
um þetta mál á aðalfundi SSH ný-
lega þar sem fram kom að skattar
ríkisins af rekstri AV nema nú rúm-
lega 100 milljónum kr. á ári.
Gunnar I. Birgisson formaður
bæjarráðs Kópavogs beindi þeirri
fyrirspurn til samgönguráðherra
hvort fyrirhugað væri að skera nið-
ur framkvæmdafé vegna átaks í
vegamáium á höfuðborgarsvæðinu
eins og heyrst hefði en höfuðborg-
arsvæðið hefði lengi verið svelt í
fjárveitingum til vegamála. Svar
Halldórs Blöndal var á þá leið að
vegaáætlun væri í endurskoðun og
ekkert meir um það að segja á
þessu stigi.
Ingvar Viktorsson beindi þeirri
fyrirspurn til vegamáiastjóra hvort
eitthvað væri búið að ræða frekar
byggingu svonefnds "Ofanbyggða-
vegar" það er tengibraut milli borg-
arinnar, Kópavogs, Garðabæjar og
Hafnarfjarðar. Þessi vegur væri
orðinn aðkallandi þar sem Reykja-
nesbrautin væri nú orðin eins og
innanbæjargata í Hafnarfirði. Helgi
Hallgrímsson svaraði að vinnuhóp-
ur væri í gangi um vegakerfið á
höfuðborgarsvæðinu þar sem þetta
væri m.a. til umræðu en hópurinn
hefði ekki sent frá sér niðurstöður.
)