Fjarðarpósturinn - 26.10.1995, Síða 7
FJARÐARPÓSTURINN 7
íþróttir og heilsa
Umsjón Björn Péturson
Rjúpnaveiðitímabilið hafið
Labrador hundurinn Rommel með stokkönd.
Rjúpnavertíðin byrjar 15. októ-
ber og stendur til 22. desember.
Veiðin í ár hefur farið rólega af
stað, en þó heyrast sögur af einum
og einum sem lent hafa í góðri
veiði. Algengt er að menn skreppi
stutt fyrstu dagana, og fara Hafn-
firðingar þá mikið út í Hafnar-
fjarðarhraun, á Miðnesheiðina, í
Krísuvík eða á Bláfjallasvæðið. A
þessum svæðum er oft reytingur af
fugli en veiðin þar hefur þó verið
frekar dræm það sem af er tímabil-
inu.
Fjarðarpósturinn tók einn af mestu
veiðimönnum hafnfirðinga, Guð-
mund Pétursson, tali og báðum hann
að segja okkur frá veiðunum. Að
hans mati er fátt skemmtilegra en að
ganga í góðu veðri heilan dag koma
svo heim þægilega þreyttur og endur-
nærður og jafnvel með einhvem afla
sem er meira svona punkturinn yftr i-
ið.
Guðmundur segir að enginn geti
gengið að rjúpunni vísri, maður hefur
það stundum á tilfinningunni að hún
sé dyntóttasti fugl í heimi. Oft hefur
hann lent í góðri veiði og allt er
krökkt af fugli en daginn eftir er allt
farið svo þriðja daginn er nóg af fugli
aftur, þrátt að veður og önnur skilyrði
hafi ekki breyst. Honum finnst mjög
gaman að reyna að átta sig á hvað
stjómar þessari hegðun og hvar fugl-
inn er að finna, eftir veðrabreyting-
um, ef snjóar eða snjó tekur upp og
þess háttar. Guðmundur segir að
sjálfsagt séu margar kenningar uppi
um þessi atriði, en engin algild regla.
Fyrst veiddi Guðmundur hundlaus
og þótti mjög gaman, en þegar hann
ákvað a3 fá sér hund opnaðist honum
nýr heimur í sambandi við veiðamar.
Hann fékk sér fyrst Labrador retriver
sem hann kallar Rommel. Mikill
tími fer í þjálfun á hundi en það er
mjög skemmtilegt verkefni sem skil-
ar sér margfalt til baka, segir Guð-
mundur. Labradorar em "sækjarar"
og eru þjálfaðir aðalega í að sækja
bráð. Þeir nýtast best við gæsa og
andaveiðar og sækja þá bráð bæði á
landi og í vatni. Rommel nýttist hon-
um einnig mjög vel í að finna rjúpur
og sá hann á hundinum ef hann fékk
veður af þeim. Ekki var óalgengt að
Rommel "teymdi" Guðmund nokkur
hundmð metra að rjúpu.
Fyrir rúmu ári fékk Guð-
mundur sér svokallaðan "standandi
fuglahund" Krapa af tegundinni
German shorthaired pointer sem á að
hlaupa mun stærra svæði og finni
hann fugl á hann að "frjósa" og bíða
eftir skyttunni og svo sækja fuglinn
ef hann næst. Eftir mikla þjálfun og
fyrstu dagana í rjúpnaveiðinni lofar
Krapi mjög góðu. Nú orðið finnst
Guðmundi 50-70% af skemmtuninni
við veiðarnar vera að vinna með
hundunum, og hann mundi verða
miklu latari við að hreyfa sig og
veiða væri hann hundlaus.
Að lokum segir Guðmundur
að stefnan sé að vera duglegur að
ganga til rjúpna, nú í vetur og fara
nokkra lengri túra, þá norður eða
austur á land og ná í rjúpur í jólamat-
inn.
Styrktarmót Keilis
Nú í sumar sigraði sveit golf-
klúbbsins Keilis í sveitakeppni
Golfsambands Islands og vann sér
þar með rétt til þátttöku í Evrópu-
keppni félagsliða í golfi. Evrópu-
keppnin verður haldin í Vila-
moura í Portugal dagana 23 -26
nóventber næstkomandi. Vegna
þátttöku Keilismanna á mótinu
hafa þeir staðið fyrir mótum til
styrktar feriðinni og hefur þátt-
taka í þeim verið mjög góð. Fjög-
ur mót hafa þegar verið haldin, og
um næstu helgi verður það fímmta
og síðasta.
Glæsileg verðlaun eru fyrir hvert
mót, en aðalvinningamir, utanlands-
ferðir hljóta þeir sem hafa bestan ár-
angur á þr^mur mótum af fimm,
bæði með og án forgjafar. Áður höf-
um við sagt frá úrslitum í tveimur
fyrstu mótunum. Urslit í þriðja
styrktarmóti Keilis, sem haldið var
laugardaginn 14. októbereru eftirfar-
andi:
An forgjafar:
Ásgeir Guðbjartsson GK 69
Einar Long GR 70
Gunnsteinn Jónsson GK 71
Með forgjöf:
Sverrir Magnússon GK 61
Rúnar Guðmundsson GR 61
Lucinda Grímsdóttir GK 61
Laugardaginn 21. nóvember var
fjórða mótið í mótaröðinni haldið.
Álls kepptu 116 kylfingar og urðu úr-
slit mótsins sem hér segir:
Án forgjafar:
Guðlaugur Georgs. GSE 71
Birgir Hafþórsson GL 71
Sigurður Albertsson GS 72
Með forgjöf:
Gísli Gíslason GR 61
Öm Sveinsson GK 64
Bragi Jónsson GR 64
Þorsteinn Pétursson GK 64
Guðmundur Pétursson rjúpnaskytta með vænan feng.
Björgvin Sigurbergsson, íslandsmcistari í golfí, reynir sig við hólmann.
Hólmagolf
Undanfarna laugardaga hafa
verið haldin styrktarmót hjá golf-
klúbbnum Keili. Þá daga sem
mótin hafa verið haldin hefur
einnig verið boðið upp á svo kall-
að Hólmagolf.
Hólmagolf er nándarkeppni þar
sem slegið er af 16. teig á hólmann í
andartjöminni í gamla sædýrasafn-
inu. Leikurinn er til styrktar sveit
Keilis sem fer í Evrópukeppni fé-
lagsliða í Portúgal í nóvember.
Hólmagolf fer þannig fram að kepp-
endur borga 100 krónur fyrir hvert
högg. Stöðvist boltinn á hólmanum
fær kylfingurinn einn bolta í viðbót,
ókeypis. því næst er mæld nálægð
boltans við pinna og sá sem kemst
næst pinnanum á hverjum mótsdegi
hlytur 40 % af innkomu þess dags.
Mikil og góð þátttaka hefur verið í
Hólmagolfinu og hafa að meðaltali
um 200 kylfingar tekið þátt hvem
mótsdag.