Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 26.10.1995, Page 8

Fjarðarpósturinn - 26.10.1995, Page 8
ALÞRIF BILAÞVOTTASTOÐ BÍLAGEYMSLU MIÐBÆJAR SÍMI 555-2442 24 ferkílómetra kjúklingabú? Félag sem heitir Gallía-Icebird hefur farið þess á leit við bæjaryf- irvöld að fá úthlutað 24 ferkíló- metrum lands undir kjúklingabú. Um yrði að ræða samstarfsverk- efni íslenskra og bandarískra aðila ef af þessum áformum verður. Ingvar Viktorsson bæjarstjóri seg- ir að það sé vart hægt að finna svo mikið landflæmi innan bæjar- markanna en bæjaryfirvöld séu með málið til skoðunar. Hugmyndir fyrrgreinds félags fel- ast m.a. í að virkja Trölladyngju því mikla gufu þarf fyrir kjúklingafram- leiðsluna. Ætlunin er að á þessu risa- stóra búi sé allt frá eldi til slátrunar og víst munu svo töluverð verðmæti fólgin í dritinu sem til fellur. EMBLA Kveri' og barnafataverslun Erum flutt að Strandgötu 26, (yfir götuna) OREBLU kynning fimmudag hl. 13-18 20% AFSLÁTTUR Sindri á leið inn í flotkvína Flotkvíin er komin með öll tilskilin leyfi frá Sigling- armálastofnun og öðrum þeim aðilum sem þurfa að gefa vottorð til að starfsemin sé lögleg. Það sem vantar í dag er nægjanlegt dýpi til að starfsemin geti orðið eðlileg og hægt sé að taka upp skip án þess að til þurfi stórstreymi. Ekki er heldur hægt að ganga endanlega frá kvínni, fyrr en dýpi er nægjanlegt. Að sögn Eiríks Orms er verið að ljúka ýmsum frágangi, sem ekki stóð til að gera fyrr en næsta sumar. Sindri sem nú er tekinn upp, til að taka af honum skrúfuna og öxulinn, verður í 2-3 sólarhringa uppi og síðan mun hann bíða fram í desember, þegar nýr gír kemur. Ekki er útlit fyrir að neitt skip verði tekið upp á meðan. Nú er aðeins beðið eftir að lokið verði við að dýpka undir flotkvínni, en hvenær það verður sagðist Ei- rflcur Ormur ekki hafa hugmynd um. „Það gerist ekkert" sagði hann að lokum. el þú kaupir dekk og felgur saman HJOLBARÐAVIÐGERÐIR - UMFELGUN - SANDBLASTUR NYJAR OG NOTAÐAR FELGUR HJOLBARÐAVERKSTÆÐI DALSHRAUNI 1, HAFNARFIRÐI SÍIVII 565-5632 & 565-5636 SANDBLÁSTUR-ZINKHÚÐUN VIÐ REYKJANESBRAUTINA SÍIVll 564-1904 & 564-2046 Fvrirspurn á alþingi um sjóvarnargarð í Hafnarfirði Búið að vera til umræðu síðan 1989 Hjálmar Árnason, einn þing- manna Reykjaneskjördæmis, hef- ur lagt fram fyrirspurn til sam- gönguráðherra á alþingi. Fyrir- spurnin er svohljóðandi: "Er áætl- að að reisa sjóvarnargarða í Hafn- arfirði í kjölfar aukinnar umferð- ar um höfnina og þar með tak- markaðs athafnarýmis?" Már Sveinbjörnsson framkvæmda- stjóri hafnarinnar segir að þetta mál sé búið að vera til umræðu síð- an 1989, það er brimvarnargarð frá Hvaleyri út í Helgasker. "Samkvæmt öldulíkani sem gert var 1994 kemur í ljós að setja þarf brimbrjót í höfnina svo hægt sé að minnka óróann í henni í vestsuðvest- an áttum," segir Már. "Það hefur ekk- ert verið ákveðið með þetta ennþá og májið er til umræðu áfram." I máli Más kemur ennfremur fram að hafnaryfirvöldum er umhugað um að þetta sé gert en um dýra fram- kvæmd sé að ræða. Samkvæmt hafn- arlögum eru ytri hafnargarðar sem þessir styrkhæfir af hálfu rfkisins um allt að 90% en það sé svo pólitísk ákvörðun sem ráði hvaða verk eru styrkt hverju sinni. Verkamannafélagið Hlíf hefur ályktað um þetta mál og gert kröfu um að farið verði í þetta verk sem fyrst. Hinsvegar eru nokkuð skiptar skoðanir innan bæjarfélagsins um ágæti þessa sjóvamargarð þar sem uppi eru sjónarmið um að viðhalda eigi Hvaleyrinni eins og hún er.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.