Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 09.11.1995, Síða 1

Fjarðarpósturinn - 09.11.1995, Síða 1
Flestir bæjarfulltrúar lýsa ánægju sinni með stækkun álversins Allt að 400 manns munu vinna við framkvæmdina Rætt við Viðar í Miðbæ hf ■sjá bls. 4 Byggður verður nýr 100 metra viðlegukantur í Straumsvík Flestir bæjarfulltrúar lýstu yfir ánægju sinni með stækkun álvers- ins á bæjarstjórnarfundi s.l. þriðjudag. Ingvar Viktorsson bæj- arstjóri hóf umræðuna með því að greina frá samningi þeim sem nú liggur fyrir um stækkun og aukn- ingu framleiðslugetu ÍSAL um 62.000 tonn. Fram kom í máli Ingv- ars að allt að 400 manns munu vinna við framkvæmdina í einu Fylgi- blað með Fjarðar- póstin- um í dag Eins og lesendur taka eftir fylgir Fjarðarpóstinum í dag kvnning á verslunarmiðstöð- inni Garðatorg í Garðabæ. Auglýsendur eru í vaxandi mæli að gera sér grein fyrir að Fjarðarpósturinn og Kópa- vogspósturinn. sem eru gefin út af sama útgefanda, þó blöðin séu rekin sjálfstætt, ná til um 14% íbúa þjóðarinnar eða um 36.000 íbúa á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. Hægt er að ná mjög hagstæð- um auglýsingasamningum ef auglýst er í báðum blöðunum. þegar mest verður og að verkið muni hefjast eftir tvær vikur. Áætl- aður kostnaður Alusuisse Lonza er rúmlega 14 milljarðar króna en m.a. er gert ráð fyrir að byggður verði nýr 100 metra viðlegukantur í höfninni í Straumsvík. "Við fögnum því að þessum áfanga er náð en sennilega snertir þetta Hafnfirðinga mest allra Islendinga," segir Ingvar Viktorsson. "Og það er ljóst að hér skapast mikill fjöldi star- fa næstu tvö árin." Ingvar lagði síðan fram tillögu á fundinum þess efnis að bæjarráði yrði falið að ganga endan- lega frá samkomulagi um skatta og stækkun hafnarinnar í Straumsvík og var hún samþykkt. Meðal þeirra sem til máls tóku á eftir Ingvari voru Lúðvík Geirsson, Magnús Gunnarsson, Magnús Jón Ámason og Ellert Borgar Þorvalds- son og lýstu allir ánægju sinni með málið. Magnús Gunnarsson segir að stækkun álversins verði mikil lyfti- sjöng fyrir bæjarfélagið. Magnús Jón Ámason segir að augljóslega beri að fagna þessu með tilliti til þess hvem- ig atvinnuástand hefur verið í bænum og raunar landinu öllu og Ellert Borg- ar Þorvaldsson segir að samningurinn um stækkunina auki bjartsýni á fram- tíðina. Forsetinn í heimsókn Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heimsótti Hafnarfjörð í síðustu viku er hún var heiðursgestur á kvöldverðarfundi Bandalags kvenna í Hafnarfirði. Fundurinn fjallaði um umhverfismál og á myndinni má sjá Emu S. Mathiesen formann Bandalagsins ásamt frú Vigdísi og tveimur af þremur fyrirlesurum kvöldsins, þeim dr. Páli Skúlasyni prófessor og Ögmundi Einarssyni framkvæmdastjóra Sorpu. Fundurinn var fjölsóttur og þótti heppnast vel. -SJÁ B LS. 2 M FASTEIGNASALA Sími 565 2790 Fax 565 0790 Klettagata 8 (491) Nýlegt 2ja íbúða 325 fm. einbýli. 188 fm. íbúð á efri hæð, 82 fm. 3ja her- bergja íbúð á jarðhæð og 55 fm. bíl- skúr. Góð staðsetning. áhvílandi Byggingasj.ríkis. 1,8 millj. Einiberg 25 (497) Einbýlishús á einni hæð með innbyg- gðum bfiskúr. Samtals 174 fm. Mjög rólegur og góður staður. Skipti á ódýrari eign kemur til greina. Verð 14,2 millj. Klausturshvammur 5 (140) Fallegt 276 fm. raðhús á tveimur hæðum, ásamt hluta í kjallara og 30 fm. bflskúr. Falleg og fullbúin eign. Skipti möguleg. Verð 13,8 millj. Traðarberg 25 (415) Nýlegt 214 ffn. parhús á tveimur hæðum, með innbyggðum bfiskúr. Vandaðar innrétt. Flísar, verönd með potti. Áhvfiandi Byggingasj.Ríkis. 5,2 millj. Verð 14,9 millj. INGVAR GUÐMUNDSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNARSALI - JÓNAS HÓLMGEIRSSON -KÁRI HALLDÓRSSON

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.